Hagskýrslur um fiskveiðar - 01.01.1922, Page 14
12*
Fiskiskýrslur 1919
aflaðist á botnvörpunga 1912—19 ekki verið tekinn með í yBrlitið,
enda þykir liklegast, að koli sá, sem aflast hefir árin þar á undan,
hafi að mestu eða öllu fallið úr skýrslum þá.
Árið 1919 nam afli sá, sem yfirlitið nær yfir, um 2 61/* mil-
jónum fiska alls á þilskip og báta. Er það að tölu til um 2l/2
miljón fiskum fleira beldur en aflaðist næsta ár á undan, árið 1918,
og um 31/* miljón fiskum fleira heldur en aflaðist að meðaltali næstu
5 árin á undan, 1914—1918.
Þilskipaaflinn hefir orðið miklu meiri heldur en nokkru sinni
áður, rúmlega 2 miljón fiskum meiri heldur en meðaltal næstu 5
ára á undan (1914—18). Bátaaflinn hefir líka orðið um l1/^ miljón
fiskum meiri heldur en meðaltal næstu 5 áranna á undan, en þó
nál. 2 milj. minni heldur en síðasta árið á undan (1918).
í 4. yfirliti (bls. 11*) er sýnd þyngd aflans árið 1919 miðað
við nýjan flattan fisk. Þilskipaaflanum, sem gefinn hefir verið upp í
öðru ástandi, hefir því verið breytt í nýjan fisk flattan og afhöfðaðan
eftir þeim hlutföllum, sem skýrt er frá í Fiskiskýrslum 1915, bls. 9*.
Nýi fiskurinn, sein getið er um i skýrslum botnvörpunga, mun hvorki
vera flattur nje afhöfðaður, og hefir honum því (að undanskildu heil-
agfiski, skötu og öðrum fisktegundum) verið breytt í nýjan fisk flatt-
an, með því að draga þriðjung frá þyngd hans. Því af bátaaflanum,
sem gefið hefir verið upp í tölu, hefir einnig verið breytt í þyngd
samkvæmt hlutföllum þeim, sem tilfærð eru í Fiskiskýrslum 1913,
bls. 11*—12*, i sambandi við hlutföllin milli fullverkaðs fisks og nýs.
Þyngd aflans 1919 hefir þannig orðið 65 miljón kg eða um 13
miljón kg meiri heldur en árið á undan og um 4 miljón kg meiri
en árið 1916, er aflaþyngdin hefir áður verið mest. Aflinn skiftist
þannig hlutfallslega niður á þilskipin og bátana siðustu árin:
1915 191(> 1917 1918 1919
Botnvörpuskip 29.2 •/. 31.o °/o 24.9 •/. 10.7 */o 17.0 •/.
Önnur þilskip 21.3 — 21.4 — 23.4 - 26.5 — 30.« —
Mótorbátar (minni en 12 tonna) 27.1 - 29e — 28.6 — 34.5 — 31.i —
Róðrarbátar 22.4 — 18.o — 23.i — 28.3 — 21.i —
Samtals .. lOO.o •/» lOO.o °/o lOO.o •/. lOO.o •/. lOO.o •/.
Eftirfarandi hlutfallstölur sýna, hvernig aflinn 1919 skiftist hlut-
fallslega eftir þyngdinni á einstakar tegundir fiska á botnvörpuskip-
unum, öðrum þilskipum, mótorbátum og róðrarbátum.