Hagskýrslur um fiskveiðar - 01.01.1935, Blaðsíða 11
Fiskiskýrslur 1933
9
Meðaltal skipverja á hverjum hát het'ur verið:
Mótor- Róðrar- Mótor- Róðrar-
bátar bátar bátar bátar
1929 ... . . . 4.6 3.o 1932 ... 4.i 3.i
1930 ... . . . 4.3 3.o 1933 ... . . . 4.o 3.4
1931 ... 4.2 3.3
í töflu V (bls. 32) er skýrsla um v.eiðitíma bátanna. Sýnir hún,
að veiðitími mótorhátanna er yfirleitt lengri heldur en róðrarbátanna.
Algengasti veiðitími mótorbáta er 2—3 mánuðir, en róðrarbáta 1 mán-
uður og þar undir.
II. Sjávaraflinn.
Iiesultats <Ies péches maritimes.
A. Þorskveiðarnar.
Itcsultals dc la pcchc dc la mornc.
Um skýrslufyrirkoinulagið sjá Fiskiskýrslur 1912, bls. 11—12, Fiski-
skýrslur 1913, Ids. 11 —12* og Fiskiskýrslur 1915, l)ls. 9*.
4. yfirlit (bls. 10) sýnir árangur þorskveiðanna á þilskip og báta
sér i lagi og samtals árið 1933 samanborið við afla undanfarandi ára.
Fram að 1912 var aflinn einungis gel'inn upp í fiskatölu og er sam-
anhurðurinn í yfirlitinu miðaður við það. Hefur því þilskipaaflanum árin
1912—33 og því af bátaaflanum 1913—33, sem gefið hefur verið upj) í
þyngd, verið hreytl í tölu el'tir hlutföllum þeim, sem skýrt er frá i Fiski-
skýrslum 1913, hls. 11*—12*, sbr. Fiskiskýrslur 1915, hls. 9*. Þó hefur
kolinn, sem aflaðist á botnvörpunga 1912—1933 ekld verið tekinn með í
yfirlitið, og líklegast þykir, að koli sá, sein aflast hefur árin þar á nnd-
an, hafi að mestu eða öllu lallið úr skýrslum þá.
Árið 1933 hefur afli sá, sem yfirlitið nœr yfir, orðið 77 milj. fiska
á þilskip og háta alls. Er það rúml. 11 milj. fiskum meira en 1932 og
líka heldur meira en 1931.
í 5. yfirliti (hls. 11) er sýnd þyngd aflans árið 1933 miðað við
nýjan flattan fisk. Þilskipaaflanum, sem gefinn hefur verið upp í öðru
ástandi hefnr því verið breytt í nýjan fisk flattan og afhöfðaðan eftir
þeim hlutföllum, sem skýrt er lrá í Fiskiskýrslum 1915, hls. 9*. Nýi fisk-
urinn, sem getið er um í skýrslunum mun hvorki vera flattur né afhöfð-
aður, og hefur honum því (að undanskildu heilagfiski, skötu og öðrum
fisktegundum) verið breytt í nýjan fisk flattan, með því að draga þriðj-
ung frá þyngd hans. Því al' bátaaflanum, sem gefið hefur verið upp í
tölu, hefur einnig verið breytt í þyngd samkvæmt hlutföllum þeim, sem
tilfærð eru í Fiskiskýrslum 1913, hls. 11*—12*, í sambandi við hlutföllin
milli fullverkaðs fisks og nýs.