Hagskýrslur um mannfjöldaþróun - 01.01.1946, Side 72
Hagstofa íslands
gefur út eftirfarandi rit:
I. Hagskýrslur íslands. Þar eru birtar ítarlegar skýrslur um þau
efni, sem Hagstofan tekur til meðferðar. Skýrslurnar koma út í
sjálfstæðum heftum, og fást þau keypt einstök. Menn geta líka
gerst áskrifendur að Hagskýrslunum með því að snúa sér beint
til Hagstofunnar. Áskriftargjald er 12 krónur um árið.
Á hverju ári kemur út eitt hefti af verzlunarskýrslum, bún-
aðarskýrslum og fiskiskýrslum og venjulega auk þess eitt hefti
um önnur efni.
II. Hagtíðindi, mánaðarblað. Eru þar birtar mánaðarskýrslur um
innílutning og útflutning, framfærsluvísitölu og ýmislegt fleira,
sem ekki þykir taka að birta i sérstöku hefti af Hagskýrslunum.
Ennfremur bráðabirgðaskýrslur um ýmislegt, sem siðar koma
um ítarlegri skýrslur. Áskriftargjald er 5 krónur um árið.
III. Árbók Hagstofu íslands. Er þar birtur útdráttur úr þeim töl-
fræðiupplýsingum, sem til eru á öllum sviðum, án þess farið
sé mikið út í einstök atriði. Ennfremur eru þar allmargar töflur
með alþjóðlegum yfirlitum. Af árbókinni er út kominn 1. árg.
1930.
IV. Manntal á íslandi árið 1703, tekið að tilhlutun Árna Magnús-
sonar og Páls Vidalin. Komin eru út 16 hefti, og er í þeim allt
manntalið frá 1703, en i viðauka er birt manntal í 3 sýslum frá
árinu 1729, og er enn eftir nokkur hluti hans.