Hagskýrslur um mannfjöldaþróun - 01.01.1946, Page 72

Hagskýrslur um mannfjöldaþróun - 01.01.1946, Page 72
Hagstofa íslands gefur út eftirfarandi rit: I. Hagskýrslur íslands. Þar eru birtar ítarlegar skýrslur um þau efni, sem Hagstofan tekur til meðferðar. Skýrslurnar koma út í sjálfstæðum heftum, og fást þau keypt einstök. Menn geta líka gerst áskrifendur að Hagskýrslunum með því að snúa sér beint til Hagstofunnar. Áskriftargjald er 12 krónur um árið. Á hverju ári kemur út eitt hefti af verzlunarskýrslum, bún- aðarskýrslum og fiskiskýrslum og venjulega auk þess eitt hefti um önnur efni. II. Hagtíðindi, mánaðarblað. Eru þar birtar mánaðarskýrslur um innílutning og útflutning, framfærsluvísitölu og ýmislegt fleira, sem ekki þykir taka að birta i sérstöku hefti af Hagskýrslunum. Ennfremur bráðabirgðaskýrslur um ýmislegt, sem siðar koma um ítarlegri skýrslur. Áskriftargjald er 5 krónur um árið. III. Árbók Hagstofu íslands. Er þar birtur útdráttur úr þeim töl- fræðiupplýsingum, sem til eru á öllum sviðum, án þess farið sé mikið út í einstök atriði. Ennfremur eru þar allmargar töflur með alþjóðlegum yfirlitum. Af árbókinni er út kominn 1. árg. 1930. IV. Manntal á íslandi árið 1703, tekið að tilhlutun Árna Magnús- sonar og Páls Vidalin. Komin eru út 16 hefti, og er í þeim allt manntalið frá 1703, en i viðauka er birt manntal í 3 sýslum frá árinu 1729, og er enn eftir nokkur hluti hans.

x

Hagskýrslur um mannfjöldaþróun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hagskýrslur um mannfjöldaþróun
https://timarit.is/publication/1128

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.