Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2008, Síða 15
mánudagur 3. nóvember 2008 15Ættfræði
50 ára í dag
30 ára
n Suriyan Kaewsaenlor Hjarðarhaga 48, Reykjavík
n Frédéric J. V. Faugeron Keilufelli 17, Reykjavík
n Marina Petrova Álfkonuhvarfi 53, Kópavogur
n Wlodzimierz Choma Smiðshöfða 8, Reykjavík
n Zbigniew Dobczynski Aðalbraut 12, Drangsnes
n Miguel A. Da Solva Gomes Árvöllum, Reykjavík
n Hjalti Bergmar Axelsson Árskógum 1c,
Egilsstaðir
n Páll Eggert Ólafsson Þorvaldseyri 2, Hvolsvöllur
n Bjarni Einarsson Miklholtshelli, Selfoss
n Helgi Hafsteinsson Miðtúni 52, Reykjavík
n Elsa Margrét Einarsdóttir Reykjavíkurvegi 38,
Hafnarfjörður
n Guðmundur Emilsson Arnarsmára 12,
Kópavogur
n Rebekka Björnsdóttir Garðhúsum 4, Reykjavík
n Heiða Björk Elísdóttir Suðurgötu 8, Vogar
n Steinar Nóni Hjaltason Heiðarbrún 22,
Stokkseyri
n Sandra Björk Ragnarsdóttir Austurgötu 3,
Vogar
n Fjóla Orradóttir Brekkubrún 12, Egilsstaðir
40 ára
n Karsten Nielsen Bólstaðarhlíð 13, Reykjavík
n Dorota Johanna Kapanke Snæfellsási 13,
Hellissandur
n Andrzej Sawko Laugavegi 28c, Reykjavík
n Marek Dawidek Mosgerði 9, Reykjavík
n Anna Dorota Oszwa Brekkugötu 2, Hvammstangi
n Vilhjálmur Sveinn Björnsson Baugakór 13,
Kópavogur
n Anna María Elíasdóttir Gullengi 3, Reykjavík
n Andrzej Gapinski Fífuseli 33, Reykjavík
n Ásta Helga Viðar Klifagötu 2, Kópasker
n Kristján Snær Karlsson Jörfalind 3, Kópavogur
n Ólöf Guðný Geirsdóttir Eskivöllum 9a,
Hafnarfjörður
50 ára
n Þórður Einarsson Álfaskeiði 92, Hafnarfjörður
n Sigurbjörn Sigurbjörnsson Faxabraut 34d,
Reykjanesbær
n Auður Ingólfsdóttir Seiðakvísl 27, Reykjavík
n Hulda Ásgrímsdóttir Stóru-Ökrum 2, Varmahlíð
n Aðalsteinn Ómar Ásgeirsson Lyngholti 5,
Ísafjörður
n Kristín G Hjartardóttir Blásölum 19, Kópavogur
n Ragnheiður Tryggvadóttir Skerplugötu 9,
Reykjavík
n Ásgeir Sverrisson Hlíðarhjalla 42, Kópavogur
n Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir Saurum,
Stykkishólmur
n Margrét Sigríður Pétursdóttir Grundarhúsum
24, Reykjavík
n Fríða Ingimarsdóttir Akurgerði 9, Akranes
n Hrefna Einarsdóttir Flétturima 11, Reykjavík
n Elín Dóra Baldvinsdóttir Logafold 57, Reykjavík
n Norbert Ægir Muller Hreiðri, Selfoss
60 ára
n Brynja Beck Jötunsölum 2, Kópavogur
n Anna Sigrún Mikaelsdóttir Holtagerði 8,
Húsavík
n Sigurður Gunnarsson Þórunnargötu 7,
Borgarnes
n Einar Páll Vigfússon Urðartjörn 6, Selfoss
70 ára
n Sigfús Levi Jónsson Lindarbrekku, Hvammstangi
n Guðrún Gísladóttir Leirubakka 28, Reykjavík
n Sigríður Gísladóttir Andrésbrunni 14, Reykjavík
n Margrét Þórðardóttir Þverlæk, Hella
n Sigurbjörg Stefánsdóttir Seiðakvísl 5, Reykjavík
n Svandís Gunnarsdóttir Sólvallagötu 2, Hrísey
n Ingvar Þorvaldsson Brekkubæ 17, Reykjavík
75 ára
n Hulda Guðjónsdóttir Brekkubyggð 12, Garðabær
n Sigurður Kristjánsson Silfurgötu 23, Styk-
kishólmur
n Júlíus Gígjar Halldórsson Heiðargerði 6, Akranes
80 ára
n Þórunn Guðnadóttir Skeggjagötu 4, Reykjavík
n Jónína Salný Stefánsdóttir Kársnesbraut 51a,
Kópavogur
n Sigurrós Guðjónsdóttir Bjarmalandi 3, Reykjavík
85 ára
n Magnús Daníelsson Strikinu 8, Garðabær
n Bergþóra Bjarnadóttir Einilundi 6d, Akureyri
Þór Kolbeinsson
húsasmíðameistari, viðskiptafræðingur og kennari
Þór fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp í Vesturbænum. Hann lauk
stúdentsprófi frá MR 1979, stund-
aði nám við FB og lauk þaðan námi
sem húsasmiður, lauk meistara-
prófi í húsasmíði frá Iðnskólanum
í Reykjavík 1992 og lauk viðskipta-
fræðiprófi frá HÍ 1995. Þá stundaði
hann nám við KHÍ frá 2004 og lauk
kennaraprófi haustið 2006.
Þór starfaði sem húsasmíða-
meistari með öðrum störfum 1989-
90 og 1996-2001 og var verkstjóri hjá
Bergiðjunni 2004-2008 er fyrirtækið
var lagt niður. Hann hóf störf sem
kennari við Iðnskólann í Hafnarfirði
í ársbyrjun 2008.
Fjölskylda
Þór kvæntist 27.9. 1997 Luciu H.C.
Jacques, f. 4.3. 1963, en hún vinnur
við almannatengsl.
Dóttir Þórs og Luciu er Irena
María Þórsdóttir, f. 26.3. 1998.
Hálfsystkini Þórs, sammæðra, eru
Bjarni Már Ragnarsson, f. 5.5. 1945,
byggingatæknifræðingur í Reykjavík;
Ragna María Ragnarsdóttir, f. 12.1.
1948, heildsali í Kópavogi.
Albræður Þórs eru Halldór Kol-
beinsson, f. 21.4. 1955, geðlæknir og
yfirlæknir við Kleppsspítalann, bú-
settur í Reykjavík; Kristinn Kolbeins-
son, f. 3.4. 1957, viðskiptafræðingur í
Reykjavík.
Foreldrar Þórs: Kolbeinn Karl
Guðmundur Jónsson, f. 30.8. 1925, d.
7.9. 1975, véltæknifræðingur og fram-
kvæmdastjóri í Reykjavík, og k.h., Sig-
ríður María Elísabet Halldórsdóttir, f.
10.4. 1923, húsmóðir í Reykjavík.
Ætt
Kolbeinn var sonur Jóns Berg-
steinssonar, sjómanns í Hafnarfirði,
og k.h., Kristínar Andrésdóttur hús-
móður.
María er dóttir Halldórs Kiljans
Laxness, skálds og rithöfundar að
Gljúfrasteini í Mosfellsbæ, og Bjar-
nýjar Málfríðar Jónsdóttur, sauma-
konu í Reykjavík.
Til
hamingju
með
afmælið!
Hólmfríður fæddist á Akureyri
og ólst þar upp. Hún lauk stúd-
entsprófi frá ML, kennaraprófi
frá KÍ og stundaði nám við Kenn-
araháskólann í Kaupmannahöfn
(Emdrupborg).
Hólmfríður var kennari í Gler-
árskóla á Akureyri, skólastjóri í
Ásgarði í Kjós, kennari við Víði-
staðaskóla í Hafnarfirði og starfs-
maður Rauða kross Íslands í tut-
tugu og þrjú ár.
Fjölskylda
Dætur Hólmfríðar: Sigríð-
ur Hilda Radomirsdóttir, f. 18.8.
1968; Guðmunda Lilja Grétars-
dóttir, f. 5.5. 1970.
Foreldrar Hólmfríðar voru
Gísli Sigurjónsson, f. 24.4. 1904,
d. 7.1. 1987, bílstjóri á Akureyri,
og Sigríður A. Baldvinsdóttir, f.
22.7. 1904, d. 17.1. 1951, forstjóri
á Akureyri.
Ætt
Foreldrar Gísla voru Sigurjón
Jóhannesson, f. á Laufási við Eyja-
fjörð, og Hólmfríður Gísladóttir, f.
á Hafursá á Héraði.
Foreldrar Sigríðar voru Bald-
vin J. Jóhannsson, f. á Þverá í
Skíðadal, og Guðlaug Sigfúsdótt-
ir, f. á Grund í Svarfaðardal, af
Krossaætt.
Hólmfríður fagnar þessum
tímamótum með ættingjum og
vinum í dag.
Jóhann Friðfinnsson,
forstjóri Bátaábyrgðar-
félagsins og síðar safn-
stjóri Byggðasafns, Lista-
safns og Ljósmyndasafns
Vestmannaeyja, eða Jói
á Hólnum eins og Vest-
mannaeyingar kölluðu
hann, var í hópi þekktustu
og vinsælustu Eyjamanna
á sinni tíð.
Jóhann fæddist í Vestmanna-
eyjum og ólst þar upp. Hann lauk
verslunarskólaprófi 1947. Jóhann
starfaði hjá Flugfélagi Íslands hf.
í Reykjavík og í Vestmannaeyjum,
stundaði sjómennsku, vann hjá
bæjarfógetanum í Eyjum og hjá
Hafnarsjóði, stofnaði verslunina
Drífandi í Vestmannaeyjum 1956
og starfrækti hana fram að gosi
1973, hóf síðan störf hjá Viðlaga-
sjóði og var forstjóri Bátaábyrgð-
arfélagsins frá 1974. Hann var
safnstjóri Byggða-, Lista- og Ljós-
myndasafns Vestmannaeyja frá
1992 og síðustu starfsárin.
Jóhann var aðal- og varabæj-
arfulltrúi í Vestmannaeyjum
1962-78, oft bæjarstjóri í þing-
fjarveru Guðlaugs Gíslasonar á
árunum 1962-1966, sat í fjölda
nefnda á vegum bæjarfélagsins
á árunum 1958-84, var m.a. for-
maður byggingarnefnd-
ar, barnaverndarnefnd-
ar, framfærslunefndar
og byggingarnefndar
sjúkrahússins, sat í stjórn
og var formaður sjúkra-
húss og heilsugæslu-
stöðvarinnar, sat í stjórn
Sparisjóðs Vestmanna-
eyja, var formaður Fé-
lags kaupsýslumanna í nokkur
ár, lengi stjórnarformaður Sam-
komuhúss Vestmannaeyja, sat í
fyrstu stjórn Herjólfs, sat í stjórn
Verndaðs vinnustaðar í Eyjum,
var formaður FUS í Eyjum og sjálf-
stæðisfélagsins þar um árabil, og
í kjördæmisráði og flokksráði, var
einn af stofnendum Gideonsfé-
lags Vestmannaeyja og formaður
þess um árabil. Hann söng með
Landakirkjukór um árabil og var
formaður kórsins og formaður
sóknarnefndar um skeið.
Jóhann kom upp þeim
skemmtilega sið að vera með opið
hús á þrettándanum og sá þá sjálf-
ur um bakkelsið. Hann var alla tíð
höfðingi heim að sækja, frábær
sögumaður og hafsjór af fróð-
leik um Vestmannaeyjar og sögu
þeirra. Hann var því í essinu sínu
sem safnstjóri í Vestmannaeyjum
síðustu starfsárin.
Hólmfríður Gísladóttir
fyrrv. deildarstjóri hjá rauða krossi íslands
Jóhann Friðfinnsson
f. 3. nóvember 1928, d. 13. september 2001
„Ég held að ég eigi bara eftir að
vera í einhverju hláturskasti næsta
árið yfir því að vera komin á sex-
tugsaldurinn. Mér finnst það bara
voðalega fyndið,“ segir Hrefna Ein-
arsdóttir ljósmóðir létt í bragði en
hún fagnar fimmtugsafmæli sínu í
dag.
Afmælisgleðskapurinn fór þó
fram um nýafstaðna helgi á Tap-
asbarnum í Reykjavík. „Ég er
nú þekkt fyrir það hjá vinkon-
um mínum að vera frekar hvat-
vís svo „kortér í afmæli“ síðastlið-
ið fimmtudagskvöld ákvað ég að
panta borð á Tapasbarnum til að
fagna með fjölskyldu og vinum. Ég
sendi bara út tölvupóst til allra að
athuga hvort þeir kæmust og það
þurfti nokkrum sinnum að hringja
niður á Tapasbar og stækka borð-
ið,“ segir Hrefna sem segir kvöldið
hafa verið alveg hreint yndislegt í
alla staði.
„Ég hef aldrei leigt skemmti-
ferðaskip og stórstjörnur í tilefni af
afmælinu mínu en mér finnst allt-
af gaman að hitta skemmtilegt fólk
í góðum hópi og gleðjast saman. Og
það var einmitt það sem við gerð-
um á laugardaginn,“ segir hún, enn
í skýjunum eftir afmælisveisluna.
Aðspurð hvort hún sé með ein-
hvern afmælisgjafaóskalista á reið-
um höndum svarar Hrefna: „Nei,
nei, ég er svo lítillát að mér finnst
aðalafmælisgjöfin vera að hitta fólk
sem er samferðafólk mitt og eiga
góðar stundir með því.“
krista@dv.is
70 ára í dagmerkir íslendingar
Hrefna Einarsdóttir ljósmóðir er enn í skýjunum eftir afmælisgleðskap á laugardaginn:
Fyndið að vera Fimmtug
Hrefna Einarsdóttir fagnaði
fimmtugsafmælinu með stæl.