Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 07.10.2002, Page 1
G
ut
en
be
rg
G
ut
en
be
rg
cyan magenta yellow black
G
ut
en
be
rg
34. tbl. /02
Ritstjórn
og umsjón útgáfu:
Viktor Arnar
Ingólfsson
Ábyrgðarmaður:
Gunnar Gunnarsson
Prentun: Gutenberg
Vegagerðin gefur út Framkvæmdafréttir til að kynna útboðs-
framkvæmdir fyrir verktökum. Fyrirhuguð útboð eru kynnt,
útboðsauglýsingar eru birtar og greint er frá niðurstöðum og
samningum. Auk þess er í blaðinu annað það fréttaefni sem
verður til hjá stofnuninni og talið er að eigi erindi til verktaka.
Áskrifendur eru m.a. verktakar, verkfræðistofur og fjölmiðlar.
Áskrift er endurgjaldslaus.
Ósk um áskrift sendist til:
Vegagerðin
Framkvæmdafréttir
Borgartúni 7
105 Reykjavík
(bréfsími 522 1109)
eða vai@vegag.is
Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar 34. tbl. 10. árg. nr. 317 7. okt. 2002
Kleifabúi
Þegar vegurinn upp svonefndar Kleifar var lagður árið 1947
tóku vegavinnumenn stein einn mikinn úr urð neðan við veginn,
reistu hann upp, máluðu á hann andlit og nefndu Kleifa-Guddu.
Kristleifur Jónsson vegaverkstjóri frá Höfða í Þverárhlíð hafði
þá orð á því að rétt væri að hlaða veglega vörðu við veginn. Var
það gert og stendur hún enn þann dag í dag. Einar Einarsson og
Guðjón Jóhannesson, báðir frá Patreksfirði, hlóðu vörðuna en
vegavinnuflokkur Kristleifs sá um efnisöflun. Kristján Jóhannes-
son frá Norðurkoti í Tálknafirði bjó til höfuð vörðunnar. Að
verki loknu orti Kristleifur:
Barðastrandarvegur(62)
um Kleifaheiði
Frá fornu fari hefur legið þjóðleið um Kleifaheiði á milli
Patreksfjarðar og Barðastrandar. Bílfært varð yfir heiðina
skömmu fyrir 1950 og á árunum eftir 1970 voru langir kaflar
endurbyggðir. Síðast var lagður nýr kafli sumarið 1980 á þeim
stað sem þá var snjóþyngstur, Hjallendalág innarlega á háheið-
inni. Síðan hefur veginum ekkert verið breytt fyrr en hafist var
handa við gerð nýs vegar yfir Kleifaheiði sumarið 2000. Er
þeirri vegagerð nú að mestu lokið.
Heildarlengd kaflans frá Haukabergsá á Barðaströnd að vega-
mótum Örlygshafnarvegar í botni Patreksfjarðar er 12,1 km.
Um það bil helming leiðarinnar Patreksfjarðarmegin er vegurinn
á sama stað og gamli vegurinn en Barðastrandarmegin liggur
hann á nýjum stað upp Mikladal. Á löngum köflum liggur
vegurinn í brattri fjallshlíð og er þá öxlin breikkuð. Mesti
langhalli er 9% á 400 m löngum kafla neðan Kleifabúa en annars
8% á löngum köflum. Hæsti punktur vegarins er í 411 m h.y.s.
Nítján hundruð nefna má
nú með gleði hlýju.
Upp nam rísa seggur sá
sjö og fjörutíu.
Hátt á bergi Búi stendur,
býður sína traustu mund,
horfir yfir heiðarlendur
hár og þögull alla stund.
Búinn varstu úr bergi hörðu
blóði vana kempan treg.
Minnir helst á heiðarvörðu
hér við Barðastrandarveg.
Stattu lengi heill á húfi,
hetjan prúð í fjallasal
þó váleg veður rjúfi
varman frið um strönd og dal.
Yfirlit yfir útboðsverk
Þessi listi er stöðugt til endurskoðunar og geta dagsetningar og annað breyst fyrirvaralaust.
Það eru auglýsingar útboða sem gefa endanlegar upplýsingar.
Fremst í lista er númer útboðs í númerakerfi framkvæmdadeildar. Þá er skammstöfun fyrir
umdæmi Vegagerðarinnar: Sl:Suðurland, Rn:Reykjanes, Vl:Vesturland, Vf: Vesfirðir,
N.v: Norðurland vestra, N.ey: Norðurland eystra, Au:Austurland.
Fyrirhuguð útboð Auglýst:
dagur, mánuður, ár
02-044 N.v. Siglufjarðarvegur (76), Gránugata -
Tjarnargata á Siglufirði 03
02-074 Vf. Vestfjarðavegur (60),
ræsi í Ausuá í Dýrafirði 03
02-014 Sl. Hringvegur (1), vega- og brúargerð
við Skaftá 03
02-019 Vl. Snæfellsnesvegur (54), um Kolgrafafjörð 02
01-018 Rn. Nesbraut (49), færsla Hringbrautar, hönnun 02
02-015 Sl. Hringvegur (1), við Hellu 02
00-054 Rn. Hallsvegur (432),
Fjallkonuvegur – Víkurvegur 02
02-091 Áætlunarakstur á Suðurlandi
og hluta Austurlands 2003 - 2005 02
02-078 Rn. Reykjanesbraut (41), breikkun
Hvassahraun - Strandarheiði 10.02
02-026 Au. Norðausturvegur (85)
Hölkná – Miðheiðarhryggur 10.02
02-092 Sl. Biskupstungnabraut (35) um Laugá 10.02
02-009 N.v. Hringvegur (1), um Vatnsdalsá (Hnausakvísl)
forsteyptar einingar 2002-2003 10.02
Útboð sem hafa verið auglýst Auglýst: Opnað:
02-084 Vl. Hringvegur (1), hringtorg
við Snæfellsnesveg 07.10.02 21.10.02
02-055 Au. Hringvegur (1),
Biskupsháls - Vegaskarð 30.09.02 14.10.02
Útboð á samningaborði Auglýst: Opnað:
02-056 Sl. Hringvegur (1), brú á Þjórsá 02.09.02 30.09.02
02-090 Vl. Vetrarþjónusta í Norðurárdal og
á Bröttubrekku 2002-2005 16.09.02 30.09.02
02-027 Au. Styrking og mölburður
á Austurlandi 2002-2003 16.09.02 30.09.02
02-087 Sl. Snjómokstur og hálkuvörn,
í austurhluta Rangárvallasýslu og
vesturhluta Vestur-Skaftafellssýslu 09.09.02 23.09.02
02-089 Sl. Snjómokstur og hálkuvörn,
í austurhluta Vestur-Skaftafellssýslu 09.09.02 23.09.02
02-086 N.v. Þverárfjallsvegur (744),
Skúfur - Þverá 2002 09.09.02 23.09.02
02-060 Sl. Snjómokstur og hálkuvörn,
uppsveitir Árnessýslu, austurhluti 12.08.02 26.08.02
01-122 Veggöng 2002 - Forval 21.05.02 24.06.02
Samningum lokið Opnað: Samið:
02-085 Sl. Þórsmerkurvegur (F249) 2002 09.09.02 25.09.02
Suðurverk hf., Hafnarfirði
02-073 Au. Suðurfjarðavegur (96)
á Fáskrúðsfirði 06.08.02 01.10.02
Vöggur ehf., Fáskrúðsfirði
Niðurstöður útboða
Tilboð Hlutfall Frávik
nr. Bjóðandi (kr.) (%) (þús.kr.)
12
11
10
9
8
7
6
---
5
4
3
2
1
Verktak ehf., Reykjavík 369.459.895 142,9 135.659
Sveinbjörn Sigurðsson
ehf., Reykjavík 324.133.600 125,3 90.333
Eykt ehf., Reykjavík 309.419.622 119,6 75.619
Vélsmiðja KÁ, Selfossi 301.091.206 116,4 67.290
Þ.G. verktakar ehf.,
Reykjavík 299.654.011 115,9 65.853
MT Höjgaard ehf.,
Reykjavík 292.942.810 113,3 59.142
Byggingarfélagið
Viðar ehf., Reykjavík 274.730.374 106,2 40.929
Áætlaður
verktakakostnaður 258.622.910 100,0 24.822
Brú verktakar ehf.,
Kópavogi 254.727.275 98,5 20.926
Eikarverktakar ehf.,
Kópavogi 252.677.740 97,7 18.877
Íslenskir
aðalverktakar hf. 249.703.654 96,6 15.903
Ístak hf., Reykjavík 249.427.646 96,4 15.627
Normi ehf., Kópavogi 233.801.000 90,4 0
Hringvegur (1), brú á Þjórsá 02-056
Tilboð opnuð 30. september 2002. Suðurlandsumdæmi.
Bygging nýrrar brúar á Þjórsá. Brúin er 170 m löng, 11 m
breið samverkandi úr stáli og steinsteypu. Brúin er í 9 höf-
um og er yfir farvegi árinnar borin uppi af 78 m löngum
boga úr stáli og steinsteypu.
Verkið er boðið út á evrópska efnahagssvæðinu.
Helstu magntölur: vegrið 408 m, gröftur 1.000 m3,
bergskering 400 m3, bergboltar 195 stk.,
bergfestur 120 stk., mótafletir 2.300 m2, steypustyrktar-
járn 120 tonn, steypa 1.260 m3, forsteyptar plötur 234 stk.,
stálbogi 119 tonn, stálbitar 156 tonn, hreinsun og málun
stáls 1.920 m2.
Verki skal að fullu lokið 30. september 2003.
Hringvegur (1), hringtorg
við Snæfellsnesveg (54) 02-084
Vegagerðin, Vesturlandsumdæmi, óskar eftir tilboðum í
gerð hringtorgs á gatnamótum Hringvegar og Snæfells-
nesvegar við Borgarnes.
Helstu magntölur: fyllingar og burðarlög 10.000 m3,
skeringar 6.000 m3 og malbik um 4.000 m2.
Verki skal að fullu lokið 15. júlí 2003.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni í Borgarnesi og
í Borgartúni 7, Reykjavík (móttaka), frá og með mánu-
deginum 7. október 2002. Verð útboðsgagna er 3.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 mánu-
daginn 21. október 2002 og verða þau opnuð þar kl. 14.15
þann dag.
Auglýsingar útboða
Leiðrétting
Í síðasta tölublaði birtist kort sem sýnir mörk sumarþjónustu-
svæða. Þar voru rangfærslur varðandi mörk svæða þar sem
Vesturland og Vestfirðir koma saman. Þetta verður birt nánar
síðar.
Nýtt á lista