Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 22.05.2006, Blaðsíða 5
5
Hringvegur (1), Ármótasel – Skjöldólfsstaðir 2
Vegagerðin hefur gert kynningarskýrslu vegna vegagerðar
frá enda Háreksstaðarleiðar norðan við Víðidalsá og niður
að Skjöldólfsstöðum 2 í Jökuldal. Skýrsluna má sjá í heild á
vef Vegagerðarinnar vegagerdin.is undir „útgefið efni“. Hér á
eftir fer stuttur útdráttur úr fyrstu köflum skýrslunnar.
Almennt
Framkvæmdasvæðið er á Hringvegi (1) um 53 km frá Egils
stöðum. Veglínan mun færast talsvert til á þessum kafla og
liggja norðan við Gilsá frá Ármótaseli og niður að Skjöldólfs
stöðum 2 í Jökuldal.
Framkvæmdasvæðið nær yfir 8,0 km langan kafla og liggur
um lönd Gilsár, Skjöldólfsstaða 1 og 2 og Arnórsstaða 1 og 2.
Áætlað er að framkvæmdir hefjist sumarið 2006 og stefnt er
að því að þeim ljúki árið 2007.
Vegagerðin telur að framkvæmdin hafi ekki umtalsverð
neikvæð áhrif á umhverfið en að með henni muni umferðar
öryggi aukast á þessum kafla. Vegalengdin milli Akureyrar
og Egilsstaða mun styttast um 1,5 km auk þess sem langhalli
vegar verður verulega minni og beygjur rýmri á nýja vegin
um. Á þessum kafla eru nú hættulegar brattar brekkur og
krappar beygjur. Þetta er síðasti hluti leiðarinnar sem er án
bundins slitlags.
Markmið framkvæmdar
Markmið framkvæmdarinnar er að auka umferðaröryggi á
Hringvegi milli Akureyrar og Egilsstaða og tryggja greiðari
samgöngur. Vegurinn verður 7,5 m breiður með 6,5 m breiðri
akbraut og bundnu slitlagi. Vegurinn er breikkaður um 0,75 m
þar sem vegrið eru sett. Hönnunarhraði verður 90 km/klst.
Valkostir
Skoðaðir voru tveir megin kostir við leiðarval. Annarsvegar
niður Arnórsstaðamúla á svipuðum stað og núverandi leið
liggur, en þó aðeins nær Gilsá og með minni bratta. Á þeirri
leið þarf að setja krappa hárnálabeygju, ekki ósvipað því sem
nú er. Farið er yfir Gilsá rétt ofan við núverandi brú, en þó
er gert ráð fyrir að núverandi einbreið brú verði notuð áfram
fyrst um sinn. Byggja þarf nýja tvíbreiða brú yfir Gilsá innan
fárra ára verði þessi leið farin. Hringvegur lengist um 0,7 km
á þessari leið.
Seinni kosturinn er ný veglína norðan við Gilsá, undir
Skjöldólfsstaðahnjúk. Þessi leið er vegtæknilega miklu betri
þar sem engar krappar beygjur eru á henni og bratti er mun
minni en ef farið yrði um Arnórsstaðamúla. Þessi leið er
1,5 km styttri en núverandi leið um Arnórsstaðamúla og
mun ódýrari þar sem ekki þarf að byggja nýja brú yfir Gilsá.
Ókostur við þessa leið er að farið er yfir óraskað gróið land.
Einnig er viss snjóflóðahætta úr Skjöldólfsstaðahnjúk en hún
er þó álitin vera lítil.
Vegagerðin telur leiðina norðan við Gilsá mun vænlegri kost
heldur en um Arnórsstaðamúla.
Mat á umhverfisáhrifum
Kanna þarf matsskyldu framkvæmdarinnar vegna minja á veg
svæði. Framkvæmdum verður hagað þannig að neikvæð áhrif
þeirra verði sem minnst og haft samráð við ýmsa aðila.
Auglýsingar útboða
Vestfjarðavegur (60),
Arnarfjörður – Dýrafjörður,
borun rannsóknarhola 06-056
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í borun rannsóknarhola
til rannsóknar á aðstæðum við munna fyrirhugaðra jarð
ganga á milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar.
Helstu magntölur eru:
Kjarnaborun . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 420 m
Borun í laust efni með fóðrun . . . . . . 100 m
Verki skal að fullu lokið fyrir 1. október 2006.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Dagverðardal
á Ísafirði og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og
með mánudeginum 22. maí 2006. Verð útboðsgagna er
4.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00
þriðjudaginn 6. júní 2006 og verða þau opnuð þar
kl. 14:15 þann dag.