Aldan - 20.10.2015, Síða 4
20. Október 2015ALDAN4
ALDAN FRÉTTABLAÐ UM SJÁVARÚTVEG
7. TBL. 2. ÁRGANGUR 2015
ÚTGEFANDI: Pressan ehf. Kringlunni 4-6, 103 Reykjavík. ÁBYRGÐARMAÐUR: Björn Ingi
Hrafnsson, netfang: bjorningi@pressan.is, AUGLÝSINGASTJÓRI: Ámundi Ámundason sími 824-
2466, netfang, amundi@fotspor.is. AUGLÝSINGAR: Sími: 578-1190 & netfang: auglysingar@
fotspor.is. RITSTJÓRI: Geir A. Guðsteinsson, sími: 840-9555 & netfang: geirgudsteinsson@
simnet.is. UMBROT: Prentsnið. PRENTUN OG DREIFING: Landsprent, 35.000 eintök.
BLAÐINU ER DREIFT Í 35.000 EINTÖKUM MEÐ MORGUNBLAÐINU
OG LIGGUR FRAMMI ÚTVÖLDUM STÖÐUM
ALDAN
F R É T T A B L A Ð U M S J Á V A R Ú T V E G
Auglýsingasíminn er
578 1190
Netfang:
auglysingar@fotspor.is
Í dag, 20. október, er haldinn alþjóðlegur dagur kokka og hefur hver dagur
árlega þema sem kokkarnir fylgja eftir. Í ár er þemað „Heilbrigð börn - Heil-
brigð framtíð“. Til að fagna deginum geta kokkar hvatt hver annan um að
taka upp á sína arma skóla, leikskóla, eða dagheimili í sínu nærsamfélagi og
kennt börnum þar hvernig á að borða hollan og góðan mat. Skólamötuneyti
hafa í auknu mæli boðið börnunum upp á fiskmeti í hádeginu og þar hefur
þorskurinn haft nokkra sérstöðu enda sú fisktegund sem mest er veitt af hér
við land. Þannig hafa börnin kynnst því hversu góð fæða fiskur er, ekki sé
allt fengið með því að borða að mestu pitsur og hamborgara. Auðvitað bjóða
skólamötuneytin einnig upp á kjötmeti með, s.s. kjúklinga, nautahakk og
fleira en með þessu átaki flytja börnin þær fréttir heim til sín að fiskurinn
sem þau borðuðu í hádeginu hafi verið mjög góður. Foreldrar draga lærdóm
af því, kaupa í auknu mæli fisk þegar farið er í matvörubúð. Ef börnin læra að
meta fiskinn ung sem afbragðs fæðu flytja þau þann smekk með sér gegnum
lífið, kenna sínum afkomendum í fyllingu tímans einnig að meta fiskinn sem
veiðist hér allt í kringum landið, einn besta fiskinn sem til er í heiminum.
Á nýafstöðnum sjávarútvegsdegi kom fram að íslenskur fiskur er uppistaðan
í 20 milljónum máltíða á degi hverjum í þeim rúmlega 80 löndum sem
kaupa íslenskt sjávarfang. Á síðasta ári nam útflutningur sjávarafurða 654
þúsundum tonna og verðmæti þeirra var 244 milljarðar króna. Sjávarafurðir
voru 41% af heildarútflutningsverðmætum þjóðarinnar og beint framlag
sjávarútvegsins til landsframleiðslu var 12% árið 2014. Ísland hefur mikla
sérstöðu í samanburði við stærstu fiskveiðiþjóðir heims þar sem sjávarút-
vegur er ríkisstyrktur. Hvert veitt tonn sem Norðmenn veiða kosti norska
ríkissjóðinn 19.000 krónur meðan hvert veitt tonn af íslenskum skipum skili
3.700 krónum í ríkissjóð. Fjárfesting útgerðarinnar skilar einnig meiri arði
hér þar sem hvert íslenskt fiskiskip kemur með rúmlega tvöfalt meiri afla að
landi en norsk og um helmingi færri skipverjar standa að baki hverju veiddu
tonni á íslensku skipunum.
Það er mjög gott framtak að halda árlega hagsmunatengdalausa sjávarút-
vegsráðstefnu sem fyrst var haldin árið 2010. Það var löngu tímabært að sjá
einhvern svona sameiginlegan vettvang í sjávarútveginum, bæði í veiðum og
vinnslu sem byggir á faglegri og hugmyndafræðilegri umræðu en ekki bara
á hreinum afmörkuðum hagsmunum eins og mörg samtök í sjávarútvegi
eru skiljanlega. Hvort svona sjávarútvegsráðstefna er haldin árlega byggist
auðvitað á því fólki sem að baki hennar stendur og ég held að svo verði, þetta
fór í gang með miklum krafti, þetta er sjálfsprottið grasrótarstarf sem er það
mikilvægasta, afar fínt framtak, ráðstefna sem er opin öllum til þátttöku,
einnig þeim sem ekki koma beint að sjávarútvegi.
Ráðstefnum um sjávarútveg er alls ekki lokið á þessu ári, enda af nógu af taka
og sífellt þarf að vera á tánum til þess að gæta þess að sem bestum árangri sé
náð, helst hámarksárangri. Sjávarútvegsráðstefnan verður 19. nóvember nk.
þar sem mörg afar spennandi erindi verða flutt. Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson forsætisráðherra flytur ávarp, Bylgja Hauksdóttir hjá North Coast
Seafood er málstofustjóri þar sem m.a. verður rætt um það hvernig kenna
á ungu fólki að borða meiri fisk, af hverju er sjávarútvegur að greiða auð-
lindagjald en ekki aðrar atvinnugreinar, heimsframboð og hagsmunagæslu í
íslenskum sjávarútvegi og margt fleira. Afhent verða framúrstefnuverðlaun.
Full ástæða er því til að hvetja til þátttöku á Sjávarútvegsráðstefnuninni.
Geir A. Guðsteinsson
ritstjóri
Kennum börnunum
að meta þorskinn og
aðrar fisktegundir
sem afbrags matvöru
Leiðari
Salthúsmarkaðurinn tekur
að sér rekstur samkomu-
hússins á Stöðvarfirði
Salthúsmarkaðurinn hefur tekið að
sér í sumar rekstur samkomuhússins á
Stöðvarfirði ásamt Gestastofu Fjarða-
byggðar. Þau Aðalheiður G. Guð-
mundsdóttir og Pál Björgvin Guð-
mundsson handsöluðu samkomulagið
og um leið var opnað formlega með
glæsilegri opnunarhátíð. Samhliða
flutningi Salthúsmarkaðarins í þetta
nýja húsnæði og opnun nýju gestastof-
unnar var fagnað, hóf göngu sína sýn-
ing á stórbrotnum austfirskum þoku-
myndum. Kom fjöldi manns saman að
þessu þrefalda tilefni og samgladdist
stöðfirska handverkssamfélaginu, sem
rekið hefur Salthúsmarkaðinn með
myndarbrag undanfarin ár í gamla
salthúsi staðarins.
Gestastofa Fjarðabyggðar verður í
nánu samstarfi við Upplýsingamið-
stöð fyrir ferðamenn sem staðsett er í
Brekkunni, steinsnar frá samkomuhús-
inu. Ferðamenn geta nálgast almennar
upplýsingar og aðstoð í gestastofunni,
sem verður rekin verður samhliða
Salthúsmarkaðnum í sumar. Endur-
reisn gamla samkomuhússins er liður í
uppbyggingu á Stöðvarfirði sem önnur
af tveimur ferðamannagáttum Fjarða-
byggðar. Mikill fjöldi ferðamanna sækir
Stöðvarfjörð heim á sumri hverju, sem
þakka má ekki hvað síst aðdráttarafli
Steinasafns Petru.
Stöðvarfjörður.
Margar áhugaverðar sjávarútvegs-
sýningar erlendis á komandi vetri
Íslandsstofa í Sundagörðum 2 í
Reykjavík er eins og oft áður að
kanna áhuga fyrirtækja á þátttöku
í sjávarútvegs-sýningum frá hausti
2015 til vors 2016. Þetta er ekki
tæmandi listi en þegar hefur verið
tekið frá svæði á sýningunum í Kína,
Boston og Brussel. Berglind Stein-
dórsdóttir veitir allar upplýsingar.
Ef áhugi er fyrir hendi mun Íslands-
stofa einnig kanna áhuga á þátttöku
á sýningunni í Bremen í Þýskalandi.
Sjávarútvegssýningar sem eru
framundan:
• China Fisheries & Seafood Expo,
Qingdao 4. - 6. nóvember 2015.
• Fish International Messe, Bremen
14. - 16. febrúar 2016.
• Seafood Expo North America og
Seafood Processing North America,
Boston 6. - 8. mars 2016.
• Seafood Expo Global og Seafood
Processing Global, Brussel 26. - 28.
apríl 2016.
Sýningarbás á China Fisheries & Seafood expo.
Hjól atvinnulífsins farin
að snúast á Flateyri
Fiskvinnsla Flateyrar ehf. er fyrirtæki
sem varð til í sumar fyrir órofa sam-
stöðu margra íbúa Flateyrar í Önundar-
firði. Fólkið vildi koma upp fyrirtæki
sem ætlað er að verða bakhjarl byggðar-
innar, en útgerðarsaga staðarins hefur
undanfarin misseri verið hrein hörm-
ung. Fiskvinnslan hófst í júlímánuði
sl. og er unnin saltfiskur úr þeim afla
sem berst til vinnslu en saltfiskur fer
a markað á Spáni en Iceland Seafood
selur fiskinn fyrir Fiskvinnsluna.
„Við eigum sjálf einn bát, Jóhönnu G.
sem er á línuívilnun og sem landar hér
og auk þess landa hér margir smærri
heimabátar, dagróðrabátar. Draumurinn
er að hér verði unnin 20 til 30 tonn á viku
allt árið en í dag starfa hjá fyrirtækinu
20 manns með beitingafólki og áhöfn
bátsins. Fyrirtækið er stofnað á grunni
byggðastofnunarkvótans svonefnda, 300
tonna kvóta sem Byggðastofnun úthlut-
aði til Flateyrar, sem talin er ein af sjáv-
arbyggðunum sem standa sérstaklega
höllum fæti,“ segir Margrét Kristjáns-
dóttir framkvæmdastjóri Fiskvinnslu
Flateyrar ehf.
Margir útgerðarmenn á staðnum
koma að stofnun félagsins og fleiri fjár-
festar. Bátar þeirra leggja þar upp afla
sem veiddur er úr byggðakvóta útgerð-
anna auk eigin kvóta. Gert er ráð fyrir
að leigja kvóta til að auka vinnsluna og
kaupa kvóta í framtíðinni. Reiknað er
með að vinna úr 1.000 til 1.500 tonnum
af hráefni á ári og að vinnsla verði allt
árið í húsinu. Fyrirtækið mun einbeita
sér að saltfiskvinnslu.
Mikil fiskvinnslusaga en
einnig mjög brösótt
Fiskvinnsla og útgerð á sér mikla sögu
á Flateyri. Fiskvinnsla Flateyrar ehf.
keypti hús sem kennt er við kúfiskvinnslu
sem þar var í eina tíð og 3innig línu-
bátinn Jóhönnu G. , kvótalausan. Síðast
var húsnæðið í eigu Arctic Odda, sem
hætti bolfiskvinnslu á síðasta ári; þar
áður var Lotna þar, Eyraroddi, Kambur,
Skelfiskvinnslan, Hjálmur og Kaupfélag
Önfirðinga. Um miðja síðustu öld var
togaraútgerð á Flateyri með togarana
Gylli og Guðmund Júní sem Einar ríki
rak en sú útgerð hvarf til Vestmannaeyja
á einni nóttu og eftir sat sviðin jörðin.
Nú er enn ýtt úr vör með bjartsýnina
að leiðarljósi. Það er sannarlega fagn-
aðarefni.
Vinnsla hjá Fiskvinnslu Flateyrar ehf.