Aldan - 20.10.2015, Page 18

Aldan - 20.10.2015, Page 18
20. Október 2015ALDAN18 volundarhus.is · Sími 864-2400 VERÐTILBOÐ - GESTAHÚS 25 m² með 9 m² yfirbyggðri verönd kr. 1.599.000,- án fylgihluta. kr. 1.899.000,- með fylgihlutum og byggingarnefndar teiknisetti. Grunnmynd og nánari upplýsingar á heimasíðu volundarhus.is www.volundarhus.is Vel valið fyrir húsið þitt HAUST TILBOÐ Á GESTAHÚSUM OG GARÐHÚSUM VH /1 4- 04 34 mm bjálki / Tvöföld nótun TILBOÐ - GARÐHÚS 9,9m² -án gólfs kr. 299.900,- án fylgihluta kr. 339.900,- m/fylgihlutum 70 mm bjálki / Tvöföld nótun 28 mm bjálki / Einföld nótun TILBOÐ - GARÐHÚS 9,7m² kr. 269.900,- án fylgihluta kr. 299.900,- m/fylgihlutum TILBOÐ - BARNAHÚS 2,2m² kr. 149.900,- án fylgihluta kr. 169.900,- m/fylgihlutum 28 mm bjálki / Einföld nótun 50% afsláttur af utningi á GARÐHÚSUM og GESTAHÚSUM á allar þjónustu- stöðvar Flytjanda. GESTAHÚS og GARÐHÚS sérhönnuð fyrir íslenskar aðstæður Sjá eiri GESTAHÚS og GARÐHÚS á tilboði á heimasíðunni volundarhus.is Ástand uppsjávarfiskistofna í Norðaustur -Atlantshafi og tillögur um heildarafla - ekkert samkomulag um skiptingu aflamarks norsk-íslenskrar síldar, kolmunna og makríls Nýlokið er fundi ráðgjafarnefndar Alþjóðahafrannsóknaráðsins (ICES) þar sem fjallað var um ráðgjöf um aflamark þriggja uppsjávarfiskistofna í Norðaustur-Atlantshafi sem Ís- lendingar stunda umtalsverðar veiðar á, þ. e. norsk-íslensk vorgotssíld, kolmunni og makríll. Þar sem veiðar úr þessum stofnum eru fjölþjóðlegar hefur Hafrannsóknastofnun komið að mati á stærð og veiðiþoli þeirra með virkri þátttöku í sýnatökum úr afla og leiðöngrum og með starfi í vinnunefndum og í ráðgjafarnefnd Alþjóðahafrannsóknaráðsins. Norsk-íslensk vorgotssíld Árgangarnir frá 1998, 1999 og 2002- 2004 voru allir stórir, sem leiddi til þess að hrygningarstofninn fór vax- andi frá árinu 2003 og náði hámarki árið 2009. Hrygningarstofninn hefur farið minnkandi síðan vegna lélegrar nýliðunar og hefur verið metinn undir varúðarmörkum (Bpa=5 milljón tonn) síðan 2014. Samkvæmt nýjasta mati er hrygningarstofninn árið 2015 rétt tæpar 4 milljónir tonna. Þetta mat er 13% hærra en úttekt síðasta árs gerði ráð fyrir. Þessi munur stafar aðallega af því að í ár var við samstillingu stofn- mats tekið tillit til leiðangurs á hrygn- ingarslóð 2015, en sá leiðangur hafði legið niðri frá því 2009. Árgangar 2005- 2012 eru allir metnir litlir og því fyr- irséð að afli og hrygningarstofn munu minnka á næsta ári, en ná svo jafn- vægi ef veitt verður áfram með sama lága veiðihlutfallinu. Árgangur 2013 er metinn nálægt langtímameðaltali (1988-2012), en mat hans er enn háð óvissu. Talið er að hrygningarstofn- inn árin 2016 og 2017 verði um 3,6 milljónir tonna ef afli árið 2016 verður samkvæmt aflareglu. Aflamark árið 2015 var 283 þúsund tonn samkvæmt ráðgjöf ICES, en ekki náðist samstaða strandríkja um skiptingu aflaheimilda árið 2015 og er gert ráð fyrir að aflinn verði 328 þúsund tonn, en þar af var 41 þúsund tonnum úthlutað til íslenskra skipa. Samkvæmt aflareglu, verður aflamark árið 2016 tæp 317 þúsund tonn. Ekki hefur enn náðst samkomulag milli þeirra þjóða sem stunda veiðar úr stofninum um skiptingu aflamarks. Kolmunni Á árunum 1996-2004 var mjög góð nýlið un í kolmunnastofninn, sem stækkaði verulega í kjölfarið. Hrygn- ingarstofninn var um 7 milljónir tonna á árunum 2003 og 2004, en fór síðan minnkandi til ársins 2010 vegna lé- legrar nýliðunar og mikils veiðiá- lags. Árgangar 2005 til 2008 eru allir metnir nálægt sögulegu lágmarki, en árgangar 2009 til 2014 eru metnir vera um og yfir langtíma meðaltali. Matið á yngstu árgöngunum er þó enn háð óvissu. Mjög lítill afli árið 2011 og góð nýliðun undanfarin ár hefur orðið til þess að stofn og afli hafa farið vaxandi. Samkvæmt nýjasta stofnmati er hrygn- ingarstofninn metinn mun lægri en hann var metinn fyrir ári síðan og allt aftur til ársins 2004. Mest er lækkunin á allra síðustu árum. Þessi lækkun stafar af því að mun minna mældist af eldri árgöngum í bergmálsleiðangri á hrygn- ingarslóð vestan Bretlandseyja vorið 2015 en í samsvarandi leiðöngrum frá 2013 og 2014. Samkvæmt nýjasta stofnmati er hrygningarstofninn árið 2015 metinn 3,3 milljónir tonna. Þetta mat er 42% lægra en úttekt síðasta árs gerði ráð fyrir. Ráðgjöf ICES fyrir árið 2015 var 840 þúsund tonn, en hins vegar er gert ráð fyrir að aflinn verði um 1,3 milljónir tonna. Miðað við þær forsendur þá mun hrygningarstofninn árið 2016 verða um 3,6 milljónir tonna. Ekki hefur enn náðst samkomulag milli þeirra þjóða sem stunda veiðar úr stofninum um skiptingu aflamarks, en 203 þúsund tonnum var úthlutað til íslenskra skipa fyrir árið 2015. Afla- reglan, sem var samþykkt árið 2008, er fallin úr gildi. Því veitir ICES ráðgjöf miðað við þá veiðidánartölu sem gefur hámarksafrakstur til lengri tíma litið (MSY). Aflamark árið 2016 er sam- kvæmt því 776 þúsund tonn. Makríll Samkvæmt nýjasta stofnmati þá er hrygningarstofninn metinn lægri heldur en að hann var metinn fyrir ári síðan. Lækkun á metinni stofn- stærð nær allt aftur til ársins 2005 og er mestur munur á árunum 2009- 2013. Þessi lækkun skýrist aðallega af niðurstöðum leiðangursins í júlí 2015 í Norðurhöfum, sem gaf lægri vísitölu nú en árin 2013 og 2014. Hrygningar- stofninn árið 2015 er metinn hafa verið 3,6 milljón tonna, sem er 18% lægra mat en fyrir ári síðan. Ráðgjöf ICES fyrir árið 2015 var á bilinu 831 til 906 þúsund tonn, en hins vegar er gert ráð fyrir að aflinn verði um 1,2 milljónir tonna, . Miðað við þær forsendur þá mun hrygningarstofninn árið 2016 vera um 3,1 milljónir tonna. Ekki hefur enn náðst samkomulag milli þeirra þjóða sem stunda veiðar úr stofninum um skiptingu aflamarks en 173 þúsund tonnum var úthlutað til íslenskra skipa fyrir árið 2015. Aflaregla er ekki í gildi fyrir mak- rílstofninn og því veitir ICES ráð í miðað við þá veiðidánartölu sem gefur hámarksafrakstur til lengri tíma litið (MSY). Aflamark árið 2016 er sam- kvæmt því 667 þúsund tonn. Aflamark makríls árið 2016 667 þúsund tonn.

x

Aldan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Aldan
https://timarit.is/publication/1119

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.