Vestfirska fréttablaðið - 12.03.1980, Blaðsíða 1
5. tbl. 6. árg.
vestíirska
12. mars 1980
FRETTABLASID
Farþega- og vöruafgreiðsla á ísafjarðarflugvelli: Símar 3000 - 3400 -
3410. Söluskrifstofa í Hafnarstræti: Símar 3457 - 3557.
FLUGLEIÐIR
I vikulokin:
HERRAULLARBUXUR
DÖMUULARBUXUR
BARNAULLARBUXUR
— FERMINGARFÖT —
Komið og skoðið fermingarfötin
tímanlega. Við útvegum það
sem við ekki höfum.
Verslunin
€JiA
ísafirði sími 3103
Óska eftir
frestun
yinnustöðvunar
Fiðlusveit yngri nemenda á Miðsvetrarhljómleikum Tónlistarskóla isafjarðar s.l. sunnudags-
kvöld. Ljósm. Gunnlaugur Jónasson.
Leggja aukna áherslu
á flug til Reykjavíkur
Fulltrúafundur Alþýðusam-
bands Vestfjarða hefur óskað
eftir því við Sjómannafélag is-
firðinga, að það fresti verkfalls-
aðgerðum sínum enn um sinn,
en koma átti til vinnustöðvunar
20. mars nk. Svar hafði ekki
borist frá sjómönnum við þess-
ari málaleitun, þegar blaðið fór í
prentun.
Á fund A.S.V. mættu auk
stjórnar sambandsins fulltrúar frá
Verkalýðsf. Baldri. Verkalýðs- og
sjómannafél. Bolungarvíkur. Sjó-
mannaf. ísfirðinga. Verkalýðs og
sjómannafél. Álftfirðinga og Vél-
stjórafélagi ísafjarðar. Ekki náðist
til allra félaga á Vestfjörðum og
var því fundurinn ekki eins fjöl-
mennur og æskilegt hefði verið. að
sögn Péturs Sigurðssonar hjá Sjó-
mannafél. ísfirðinga.
Til umræðu voru sjómanna-
samningar og lá fyrir. að Sjó-
mannaf. Isfirðinga hafi boðað til
vinnustöðvunar frá og með 20.
mars n.k.. þar eð enginn árangur
hafði náðst í viðræðum við útvegs-
menn og Ijóst var að þeir höfðu
vísað málinu til LÍÚ og til sátta-
semjara. Fulltrúar Sjómannafél.
ísfirðinga skýrðu sína afstöðu á
fundinum og urðu miklar umræð-
ur um málið. Kom m.a. fram að
skiptar skoðanir eru um hvort
tímabært sé að knýja á með afger-
andi aðgerðir nú þegar. Eftirfar-
andi tillaga forseta A.S.V. var
samþykkt samhljóða:
..Fundur stjórnar A.S.V. ásamt
fulltrúum frá sex aðildarfél. sam-
bandsins. haldinn á ísafirði 9.
mars 1980. leggur áherslu á rétt-
mæti þeirra krafna. sem settar
hafa verið fram í nafni sambands-
ins til breytinga á fyrri samningum
sjómanna við útvegsmenn á Vest-
fjörðum. Fundurinn telur rétt að
láta reyna enn betur á samnings-
vilja útvegsmanna fyrir milligöngu
rikissáttasemjara. Óskað verði eftir
samningafundi sem allra fyrst.
Fundurinn samþykkir að fara
fram á við Sjómannafél. ísfirðinga
að fresta boðaðri vinnustöðvun
um I0-I5 daga miðað við áður
tilkynnta dagsetningu. Tími sá er
ynnist við frestunina verði notaður
til að leita enn betri samstöðu um
sameiginlegar aðgerðir. ef frekari
samningaumleitanir bera ekki ár-
angur."
LANDVERKA—OG
BÓNUSSAMNINGAR
Á fundinum voru einnig teknir
fyrir landverkasamningarnir. Eftir
nokkra umræðu um stöðu þeirra
var talið eðlilegt. að Vestfjarðafé-
lögin verði aðilar að sameiginleg-
um meginkröfum heildarsamtak-
anna. en sérkröfur verði mótaðar
og framsettar í nafni A.S.V. Sam-
þykkt var að fela verkalýðsfélag-
inu Baldri. verkalýðs- og sjó-
mannafél. Bolungarvíkur og
verkalýðs- og sjómannafél. Álft-
firðinga í Súðavík að vinna þessa
kröfugerð og leggja hana fram i
samráði við stjórn sambandsins.
Þá var samþykkt gerð í bónus-
samningnunum. sem hafa verið
lausir í meira en h'álft annað ár.
Þar var samþykkt að óska eftir enn
einum viðræðufundi við vinnu-
veitendafél. Vestfjarða urn samn-
inginn hið allra fyrsta og taka
Flugfélagið Ernir á ísafirði
hefur tekið upp þá nýjung að
bjóða leiguflug til Reykjavíkur á
morgnanna fyrir 3-5 mann hópa
og 6-9 manna hópa. Ernir hafa
frá upphafi flogið leiguflug um
land alt, en í viðtali við Vest-
firska sagði Hörður Guðmunds-
son, eigandi Ernishf., að ætlun-
in væri núna að leggja áherslu
ákvarðanir um frekari aðgerðir í
því rnáli eftir niðurstöðu þess
fundar.
á meiri hlutdeild fyrirtæksisins í
almennu flugi. Þá kom fram, að
Ernir fluttu 115 sjúklinga víðs-
vegar að af Vestfjörðum til
sjúkrahúsanna hér á fsafirði og
í Reykjavík á síðasta ári.
Hagstæöar hópferðir
—Við reiknum með að verðið í
hópferðunum (il Reykjavíkur
verði kr. 18.000 á sæti aðra leið.
sagði Hörður Guðmundsson. en
það er aðeins ódýrara en fargjald-
ið. sem Flugleiðir setja upp núna á
þessari leið. Þetta fargjald getum
við boðið vegna þess að hér er
ekki um áætlunarflug að ræða.
heldur bendum við fólki á að taka
sig saman. t.d. ef það þarf að
skjótast til Reykjavíkur part úr
degi. Þá er þetta einnig hagstæður
valkostur fyrir fólk. sem þarf að
bregða sér milli landshluta og er
töluvert ódýrara en ef það þyrfti
að fara frá ísafirði gegnum
Reykjavík og laka þar aðra vél.
Þessi þjónusta er alveg ný af nál-
inni og lítið reynt á hana ennþá.
en þó má benda á. aö í gær (8.
mars) fluttum við 27 farþega til og
frá Reykjavik. eftir að flugfært var
oröið.
REYNA AÐ SKAPA SÉR
GRUNDVÖLL.
—Með þessu leiguflugi til
Reykjavíkur erum við að reyna að
skapa þessu félagi okkar grund-
völl. hélt Hörður áfram. Þetta er
Framhald á 7. síðu
Skiðadagur í gær
Barnaskólabörnin voru að mæta í skíðaferð um níuleytið í gærmorgun, þegar þessi mynd var
tekin.
Frystiiðnaður
í erfiðleikum
Aðalfundur Félags fisk-
vinnslustöðva á Vestfjörðum
haldinn á ísafirði 5. mars 1980
telur, að reksturserfiðleikar
frystiiðnararins muni fljótlega
leiða til stöðvunar frystihús-
anna á öllu félagssvæðinu, ef
þessum atvinnurekstri verður
ekki fljótlega skapaður eðlileg-
ur starfsgrundvöllur.
Síðustu mánuði hafa þessi fyrir-
tæki veriö rekin með vaxandi
reksturshalla. Verð fyrir frystar ;if-
urðir eru nú um 3(Y< hærra. en
fyrir ári síðan. en á sama tima liafa
laun í fiskvinnu hækkað um 62Ó
og hráefni um 60'V. en þessir tveir
þættir eru nú yfir 4/5 hlutar alls
kostnaöar i þessari atvinnugrein.
Þessi fyrirtæki hafa ekki safnað
sjóðum á undanförnum árum og
eru því ófær um aö halda áfram
taprekstri.
Sú ákvörðun bankastjórnar
Seðlabankans. að draga úr endur-
kaupum afurðalána án þess að
viðskiptabankarnir auki viðbótar-
lán sín. hefir enn aukið á greiðslu-
erfiðleika fyrirtækjanna.
Fundurinn treystir því. að
stjórnvöld geri sér grein fyrir þeirri
ábyrgð. sem á þeim hvílir í þessu
efni og takist á við þann efnahags-
vanda. sem nú blasir við. Verði
það ekki gert á næstu vikum blasir
við algjört Imin í fiskiðnaninum
með almennu atvinnuleysi um allt
land. þar sem frystihúsin eru burð-
arásinn i atvinnulífinu í flestum
byggðarlögum landsins.
(Fréttatilkynning frá Félagi
fiskvinnslustöðva á
Vestfjörðum)