Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 22.01.1983, Side 8

Vestfirska fréttablaðið - 22.01.1983, Side 8
„Geymið og þér munið finna“ HÖFUM FYRIRLIGGJANDI MÖPPUR stórar og smáar Skjalaskúffur og grindur Pappaöskjur í raðkerfi Skjalaskápar Bókav. Jónasar Tómassonar Sími 3123 ísafirði vestfirska FRETTABLASID ERNIR p ISAFIROI Símar 3698 og 3898 BILALEIGA I Þorsteinn Friðþjófsson þjálfar Iið Í.B.Í. Þorsteinn Friðþjófsson hefur J verið ráðinn þjálfari 1. deildar- ! liðs isfirðinga í knattspyrnu. I Þorsteinn er rúmlega fertugur | Reykvíkingur og hefur áður I þjálfað 1. deildarlið Breiða- I bliks og Þróttar í Reykjavík. J Síðast var hann hjá Stjörnunni Garðabæ. Hann er fjölskyldu- maður og kemur til ísafjarðar í vor með konu og börn. Til að byrja nreð mun Þor- steinn þjálfa þann hluta liðsins, sem er í Reykjav'k, þar. Jafn- framt mun hann skreppa vestur öðru hvoru og leggja línurnar um hvernig haga skuli þjálfun þeirra sem heima eru. en áformað er að ráða mann til að þjálfa þá eftir fyrirmælum Þorsteins. Með vorinu mun hann svo flytja vestur og þjálfa allt liðið á heimaslóðum í sumar. Ráðinn hafði verið færeyskur leikmaður til að leika með liðinu í sumar. Hann hafði þó þarifl fyrirvara á að hann bað um að ekki yrði sagt frá samkomulaginu í blöðum fyrst um sinn. vegna þess að félagaskipii eru mjög við- kvæmt mál í Færeyjum og hann vildi ekki láta ákvörðun sína vitn- ast þar. fyrr en um það leyti sem hann færi. Blöðin voru beöin að hafa hljótt um þessa ráðningu. Eitt dagblaðanna í Reykjavík | gat ekki stillt sig og skrifaði um | málið, með þeim afleiðingum að I allt gekk til baka og sá færeyski I kemurekki. SV ■ Áheyrnarfulltrúarnir enn í sviðsljósinu HLJÓMPLÖTUÚTSALA hefst í verslun okkar í dag Enn er bitist um áheyrnar- fulltrúana í bæjarráöi ísafjarð- ar. Á bæjarstjórnarfundi á fimmtudagskvöldið í sfðustu viku var samþykkt með at- kvæðum meirihlutans að skjóta inn í bæjarmálasam- þykktina heimild til að kalla aftur á áheyrnafulltrúana, sem sendir voru heim í nóvember- lok. Það sem á undan er gengið er í stuttu máli þetta. Þegar fulltrúar af fjórum listum komu sér saman um að mynda meirihluta í bæjar- stjórninni, kom á daginn að allir vildu þeir eiga þess kost að sækja fundi bæjarráðs, þótt aðeins tveir þeirra geti setið þar sem fullgildir. Þá ákvað meirihlutinn að hinir tveir skyldu eiga þar áheyrnafull- trúa með tillögurétti og málfrelsi. og launum. Þessu vildi minnihlutinn, sjálf- stæðismenn ekki una og kærðu til Félagsmálaráðuneytisins. Ráðu- neytið úrskurðaði áheyrnafulltrú- ana ólöglega, þar sem ekki væri heimild fyrir þeirrt í bæjarmála- samþykktinni og þar með voru þeir sendir heim. Nú er svarleikur meirihlutans að fella heimildina i samþykktir bæjarins. Greinin, sem bætt er inn í hljóðar svo: Þeir flokkar sem fulltrúa eiga í bæjarstjórn, en ekki f bæjarráði, mega tilnefna bæj- arfulltrúa til að sitja fundi bæj- arráðs, með málfrelsi og til- lögurétt." Samþykktin tekur þó ekki gildi. nema Félagsmálaráðu- neytið samþykki hana. „Við gefum þetta aldrei eftir. Þetta er óréttlæti og við erum bara rétt að byrja," sagði Guð- mundur H. Ingólfsson, efsti mað- ur af lista Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn, þegar blaðið spurði hann hvort málinu væri lokið með þessu. Hann bætti því við að þeir sjálfstæðismenn teldu þessa samþykkt vera brot á lögum um sveitarstjórnarmál og að hliðstætt mál þessu hefði aldrei komið upp á fslandi fyrr. Hann sagði að ef ráðuneytið samþykkti þetta, ætti minnihlutinn enn eftir möguleik- ann á að sækja málið fyrir dóm- stólum. „Viðbrögð okkar að öðru leyti, verða ekki birt af okkur, fyrr en að því kemur að áheyrna- fulltrúarnir komi á fund,“ sagði Guðmundur H. Ingólfsson. SV Grænagardsbikar Keppnin um Grænagarðs- bikarinn verður háð á laugar- daginn kemur. Eins og flestir fsfirðingar vita er þetta fyrsta skíðakeppni hvers vetrar á fsa- firði, og hefur svo verið um árabil. Keppt verður í svigi 16 ára og eldri. Grænagarðsbikarinn gaf Neta- gerð Vestfjarða til þessarar keppni, fyrir rúmum 30 árum. Síðan hefur verið keppt um hann árlega. Öðru hvoru hefur bikar- inn verið endurnýjaður og þá ým- ist sem bikar eða stytta, en allt undir sama nafni, Grænagaðsbik- arinn. Álfar tröll og eðalbornir í heimsókn hjá Bolvíkingum Fegurstu álfar og ferleg tröll undir forustu kóngs og drottn- ingar, prinsa og prinsessa og fylgt af Grýlu og Leppalúða, þeim leiðu skötuhjúum, heim- sóttu Bolvíkinga á föstudags- kvöldið var. Upphaflega hafði verið gert ráð fyrir að gestir þessir kæmu að kvöldi þrett- ándans, og þá var búið að hlaða bálköst á íþróttavellin- um, til að lýsa þeim leiðina. En þann dag var mikil ófærð í mannabyggðum og gestirnir töldu sig ekki nógu vel búna til að leggja f ófærðina. Förinni var frestað þar til færð batnaði 1 og veður urðu blíðari. Á föstu- daginn kom svo hersingin þrammandi. Hennar var fyrst vart við barnaskólann, en það- an hélt hún að dvalarheimili aldraðra og tók þar lagið fyrir dyrum úti, vistmönnum til gle- ði. Kösturinn góði var kaffentur á íþróttavellinum, en bæjarbú- ar kunna ráð við flestu og kveiktu eld í olíutunnu á Ráð- hústorgi. Þar stóð Jón Friðgeir Einarsson, sem kvað vera vel kunnugur á slóðum heimsækj- enda, og uppfræddi heimalýð- inn um hegðan þeirra og háttu í þeirra heimabygð. Heimsækj- endur runnu á hljóðin og eld- inn og urðu miklir fagnaðar- fundir með þeim og mönnum. Að loknum faðmlögum og fyrir- bænum upphófst söngur og dans. Þar skemmtu sér saman menn og álfar, kóngaaættir og tröll, grýlur og annað gott fólk, lengi kvölds á meðan eldur brann f olfutunnu. Síðan hélt hver til síns heima og að sögn Jóns Friðgeirs, sem var búinn að fá fréttir frá álfum og tröllum, þótti þeim Bolvíkingar vera höfðingjar heim að sækja og mun altalað í þeirra byggð að heimsókn þessi hafi í alla staði verið hin ánægjulegasta. gy Hríðarklakkar kólguský klekja út nýjum degi. Fennir og skefur ennþá í auðnu minnar vegi. TILBOÐ: Þú velur 4 plötur en borgar 3 BÍLALEIGA Nesvegi 5 — Súðavík — 94-6972 — 6932 Grensásvegi 77 — Reykjavík — 91-37688 Sendum bílinn Opið allan sólarhringinn PÓLLINN HF Isafirói Sími3792

x

Vestfirska fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.