Vestfirska fréttablaðið - 12.01.1984, Blaðsíða 1
2. tbl. 10. árg.
vestfirska
12. janúar1984
FRETTABLADIÐ
Kanaríeyjaferð 25. janúar
Afsláttur — Sérstök kjör
FLUGLEIDIR
skrifstofur og umboðsmenn
Betamax SL-C30E
Verslunin
ísafirði sími 3103
r1
i
Frumvarp að fíárhagsáætlun fyrír ísafjörð lagt fram:
Ekkí gert ráð fyrir iicinum
stórframkvæindum á árinu
Miðað við það hve staða
Bæjarsjóðs ísafjarðar ku vera
slök er það frumvarp að fjár-
hagsáætlun 1984 sem lagt
var fram 5. janúar s.l., furðu-
lega mikið plagg.
í frumvarpinu er gert ráð
fyrir að útsvarsprósentan
verði 11% og fasteignagjöld
óbreytt frá í fyrra. Samkvæmt
upplýsingum Haraldar L. Har-
aldssonar er í frumvarpinu
gert ráð fyrir eftirfarandi fram-
kvæmdum helstum:
— Lokið verði við einn á-
fanga af þremur í dagheimil-
inu við Eyrargötu, en fram-
kvæmdum við það hefur sem
kunnugt er verið frestað hvað
eftir annað.
— Hönnun íþróttahúss veröi
haldið áfram.
— Nýja malarvellinum á Torf-
nesi verði komið í nothæft
ástand á árinu.
— Svæðið frá malarvellinum
að íbúðum aldraðra verði
snyrt og fegrað.
— Skipt verði um jarðveg í
Urðarvegi og Hjallavegi og
þeir undirbúnir undir slitlag
árið ‘85.
Sjá viðtal við bæjarstjóra,
Harald L. Haraldsson, um
fjárhagsáætlun á bls. 7.
. ■■
Þar voru álfarí tugatali nreð logandi k^ndla,
það var fögur sjóii. Þar var söngur ogglans
m' og fjjkmttar á ferð. svo^jáeir yngstu skræktu
♦ afkæti. Þar voru rakettufeog sólir á lofti
•— og jólin úti íjþetta sinn. t
Góðar gjafir
tíl Fjórðtmgs-
sjúkrahússins
Fjórðungssjúkrahúsinu á ísafirði hefur borist
höfðingleg gjöf frá aðila er ekki vill láta nafns
síns getið, ein milljón króna, sem ætluð er til
tækjakaupa.
Einar Hjaltason yfirlæknir sagði að hugmyndir
væru uppi urt kaup á þrenns konar tækjum. í fyrsta
lagi magaspeglunartæki ásamt tilheyrandi ljósabún-
aði. Þau tæki væri hægt að nota til framhaldsrann-
sóknar ef röntgenrannsókn gæfi tilefni til þess. Með
þessum tækjum væri hægt að taka sýni ef grunur
væri um æxli í maga.
I annan stað væri ætlunin að kaupa svokallaða
aðgerðasmásjá, en hana mætti m.a. nota við eyrna-
og augnskoðanir. svo og við nákvæmnisaðgerðir.
í þriðja lagi væri tæki til að brenna fyrir æðar, en
það sagði Einar að væri talinn nauðsynlegur búnað-
ur á öllum nútíma skurðstofum.
Einar sagði þjónustu sjúkrahússins koma til með
að batna með tilkomu þessara tækja. Þörf fyrir
suðurferðir mundi minnka.
Að sögn Einars hefðu tæki þessi kostað 2,5
milljónir ef sjúkrahúsið hefði keypt þau sjálft. Þegar
keypt væri fyrir gjafafé féllu hins vegar tollar og
söluskattur niður.
í gær afhenti stjórn Kvenfélagsins Hlífar
sjúkrahúsinu að gjöf sónartæki, að verð-
mæti 507 þús. krónur og verður nánar sagt
frá þvf í næsta blaði.
r
i
i
i
*
i
i
i
i
i
i
I
Dregur Amarflug úr þjónustu við Vestfírði? j
— Gætí haft afdrifaríkar afleiðingar í för með sér
Arnarflug hefur nýverið látið
þau boð út ganga að það hafi
sagt upp öllum starfsmönnum
innanlandsflugs og hyggist
endurskipuleggja rekstur
þess. Félagið flýgur til fimm
staða á Vestfjörðum: Bíldu-
dals, Flateyrar og Suðureyrar
fjórum sinnum í viku, og tvisv-
ar í viku til Hólmavíkur og
Gjögurs.
Að sögn Arnar Helgasonar
deildarstjóra innanlandsflugs
vonast þeir Arnarflugsmenn til
þess að geta endurráðið
mannskapinn. Örn sagði ekki
útilokað að eitthvað yrði dreg-
in saman áætlun til Vestfjarða,
ef það mætti verða til að
minnka það tap sem verið
hefði á öllum flugleiðum fé-
lagsins. „Það verður á ein-
hvern hátt að finna þessu flugi
rekstrargrundvöll, annars er
sjálfhætt,“ sagði Örn f samtali
við Vf.
Ljóst er að þeim sveitarfé-
iögum sem í hlut eiga er mikið
í mun að ekki verði dregið úr
þjónustu. Yrði það heljarstökk
afturábak í samgöngumálum
fjórðungsins ef Arnarflug gæf-
ist upp. „Við mundum ekki i
gleypa við þvf þegjandi og |
hljóðalaust ef þeir minnkuðu |
þjónustuna,“ sagði Kristján |
Jóhannesson sveitarstjóri á |
Flateyri í samtali við blaðið.
Sjá viðtöl við þá sem hags- I
muna eiga að gæta á bls. 3.
J