Frjáls Palestína - 01.07.2001, Page 16
FRJÁLS PALESTÍNA
Reykjavík, 22. maí 2001.
Félagið Ísland-Palestína lýsirhér með yfir áhyggjum sínum
vegna hlutdrægs og yfirborðs-
kennds fréttaflutnings undanfar-
ið af ástandi mála á hernumdu
svæðum Palestínumanna í frétt-
um Ríkisútvarpsins-Sjónvarps.
Samkvæmt upplýsingum félags-
ins var einum af fréttamönnum
erlendu deildar fréttastofu Ríkis-
útvarpsins-Sjónvarps boðið af
ríkisstjórn Ísraels í sérstaka
heimsókn til landsins, og þykir
félaginu miður hvernig fréttir og
viðtöl úr ferðinni snerust nær ein-
vörðungu um hlið Ísraels á þess-
um hörmulegum átökum, þar
sem langmestum tíma var varið í
viðræður við starfsmenn ríkis-
stjórnar landsins.
Sú spurning hlýtur að vakna
hvaða upplýsingagildi slík viðtöl
hafi, þegar vitað er að nóg er af
óhlutdrægum aðilum í Ísrael sem
veitt gætu raunverulega innsýn í
stöðu mála, a.m.k. samanborið við
stjórnarerindreka sem hlýtur
starfs síns vegna
á stríðstímum að
verja málstað
stjórnar sinnar
gagnrýnislaust.
Burtséð frá þeim
s t a r f s r e g l u m
sem Ríkisútvarpið kann að hafa
sett sér varðandi heimboð ríkis-
stjórna undir venjulegum kring-
umstæðum, þá hefði í þessu tilfelli
augljóslega mátt gera kröfu til
meiri natni við að gera
sjónarmiðum beggja aðila jafn
hátt undir höfði, þar sem allir sem
hafa kynnt sér málið vita hve
mjög Ísraelsstjórn er í mun að
fegra málstað sinn, sem erfitt er
að verja andspænis alþjóðalögum
og samþykktum Sameinuðu þjóð-
anna.
Hér er einungis átt við þá við-
mælendur sem kostur hefði gefist
á að ræða við innan ísraelsks
þjóðfélags, en auðvitað hlýtur að
teljast undarlegt yfir höfuð að
blaðamaður þiggi heimboð ríkis-
stjórnar Ísraels undir kringum-
stæðum sem þessum. Þegar
fréttamaður þiggur slíkt boð er
hætt við að hann rýri traust sitt og
þeirrar fréttastofu sem hann
starfar fyrir, enda ljóst að ferð af
þessu tagi er ekki skipulögð af
hálfu Ísraelsstjórnar til að draga
upp bjarta mynd af baráttu Pal-
estínumanna, hvernig svo sem
hún tryggir útkomuna. Þess má
geta að virtar fréttastofur á borð
við CNN ræða reglulega við óháða
Palestínumenn á borð við Hanan
Asrawi og Dr. Mustafa Barg-
houthi, sem ekkert hefði verið til
fyrirstöðu að rætt hefði verið við í
ferðalaginu, nema gestgjafinn
hafi sett skilyrði um annað en þá
hefði boðið vitanlega ekki átt að
vera þegið.
Félagið lýsir þar að auki yfir
almennum áhyggjum sínum yfir
slælegum fréttaflutningi af átök-
um Palestínumanna og Ísraels-
hers, þar sem hvorki er reynt að
varpa ljósi á sögulegan bak-
grunn atburðanna, sem væri
gustukaverk í málefni sem dynur
í eyrum landsmanna dag eftir
dag, né styrkshlutföllunum í
deilunni sýnd verðskulduð athygli.
Það er ekki afsakanlegt að ala á
þeirri skoðun, sem oft gætir í
fréttum frá stofunni, að hér sé um
að ræða deilu tveggja jafningja
þar sem „sjaldan veldur einn þá
tveir deila“ þegar 90% fallinna
eru Palestínumenn, þegar ein
milljón Palestínumanna býr á
jafn stóru landsvæði og sex þús-
und ísraelskir landnemar, og
þegar forsætisráðherra Ísraels er
dæmdur stríðsglæpamaður í eigin
landi sem starfrækir her sinn með
300 milljarða dala styrk frá mesta
herveldi heims árlega í baráttu
sinni við ráðvilltan æskulýð í undir-
okuðu þjóðfélagi.
Það er von félagsins að frétta-
stofa Ríkisútvarpsins-Sjónvarps
hafi vilja til að rétta úr kútnum,
t.d. með því að sýna heimsókn Dr.
Mustafa Barghouti hingað til
lands í byrjun júní nk. áhuga
þegar þar að kemur.
Virðingarfyllst,
Viðar Þorsteinsson
meðstjórnandi Félagsins
Ísland-Palestína
Vegna fréttafluttnings
Ríkissjónvarpsins frá
Palestínu og Ísrael
Bréf Félagsins Ísland-
Palestína til Útvarpsráðs
Alfleiðingar uppreisnarinnar í Palestínu
Þann 28. september hófst seinni Intifada uppreisn Palestínumanna fyrir grundvallarmannréttind-
um sínum og gegn hernámi í heimalandi sínu. Á um sjö mánaða tímabili, frá 28. september til 1.
maí, drápu ísraelskir hermenn og landránsmenn 492 Palestínumenn, slösuðu 23.147 (40% þeirra
börn) og örkumluðu um 2.000 manns. Á sama tíma hafa fjórir Palestínskir læknar verið drepnir, 91
sjúkraliði og um 70 blaðamenn hafa særst. Ísraelska hernámsliðið hefur eyðilagt 9 sjúkrabifreiðir og
skotið á 82 þeirra.
Efnahagur Palestínumanna hefur nánast verið lagður í rúst síðan uppreisnin í Palestínu hófst.
Atvinnuleysið á herteknu svæðunum hefur farið í 56% og efnahagslegt tjón Palestínumanna er talið
nema 4,4 billjónum bandaríkjadala. Tala Palestínumanna sem lifir undir fátæktarmörkum hefur
tvöfaldast og er nú 1,3 milljónir. Palestínskir bændur hafa orðið fyrir miklu tjóni enda hefur her-
námsliðið eyðilagt 108 vatnsbrunna. 3.802 metra af vatnsrörum, 41.015 metra af girðinum og veggj-
um og um 25.000 olívu og ávaxtatré.
Á þessu sjö mánaða tímabili hafa Ísraelsk yfirvöld handtekið 1.850 Palestínumenn, helmingur
þeirra börn undir 18 ára aldri. Þau hafa einnig fyrirskipað lokanir á 41 skóla og skotið á eða varpað
sprengjum á 30 skóla á herteknu svæðunum. 42 námsmenn létu lífið fyrstu tvo mánuði uppreisnar-
innar. Ísraelski herinn hefur skemmt um 4.000 byggingar á herteknu svæðunum; hundruðir heimila
hafa verið lögð algerlega í rúst, 12 kirkjur og 30 moskur. -Eldar Ástþórsson