Vestfirska fréttablaðið - 19.06.1987, Side 6
6
vestlirska '
liifréiwwild
NÁTTÚRUVERNDARRÁÐ
Auglýsing um bann við umferð ökutækja í frið-
landinu á Hornströndum.
Öll umferð vélknúinna farartækja, þar á meðal
torfærutækja (m.a. fjórhjóla), beltabifhjóla og
jeppabifreiða er stranglega bönnuð í friðland-
inu á Hornströndum.
Bann þetta er sett samkvæmt heimild í 13.
grein laga um náttúruvernd nr. 47/1971, sbr.
auglýsingu um friðland á Hornströndum nr.
332/1985, að höfðu samráði við landeigenda-
félag Sléttu- og Grunnavíkurhrepps.
Náttúruverndarráð.
Smá-
auglýsingar
TRJÁPLÖNTUR
Úrvals viðja og gulvíðir á 35
krónur. Sendum hvert á land
sem er. Greiðslukortaþjón-
usta.
Gróðrastöðin Sólbyrgi sími
93-5169.
TIL SÖLU
Bíll til sölu. Pontic Firebird
árgerð 1968.
Upplýsingar í sima 7181.
VESTFIRÐINGAR
KAUPMENN - KAUPFÉLÖG
Til afgreiðslu meðan birgðir
endast: Kartöflur úr kæli-
geymslu, flest afbrigði, pakk-
aðar eða í 25 kílóa pokum.
Viðurkennd gæðavar.
Sveinberg Laxdal, símar 96-
22307 og 96-26290.
Vorhefti Skírnis
Vorhefti Skírnis, tímarits Hins
íslenska bókmenntafélags, 161. ár-
gangur, er komið út. Síðan 1921
hefur Skírnir verið ársrit, en nú er
fyrirhugað að ritið komi út bæði
vor og haust. Nokkrar breytingar
hafa verið gerðar á útliti tímaritsins
og einnig er bryddað upp á nýj-
ungum í efni. Um ritstjómarstefnu
skrifar nýráðinn ritstjóri, Vilhjálm-
ur Ámason:
„Eins og áður verður meginefni
Skímis fræðilegar ritgerðir. 1 efnis-
vali mun þeirri meginstefnu verða
fylgt að rit ið láti sig varða sem
flesta þætti íslenskrar menningar,
bæði í sögu og samtíð, og veiti
hingað þeim erlendu straumum
sem ætla má að skipti miklu fyrir
Islendinga. I Skírni á að vera að-
gengileg, vönduð og gagnrýnin
umfjöllun um mannleg fræði, vís-
indi, listir, trú og þjóðmál."
Efni vorheftisins 1987 er fjöl-
breytt. Vésteinn Lúðvíksson skrifar
trúarlega hugleiðingu um þjáning-
una og lífið. Séra Gunnar Krist-
jhánsson skrifar um lífsviðhorf
Matthíasar Jochumssonar, og Jón
Hjaltason um stefnu Matthíasar
sem ritstjóra Þjóðólfs. ítarleg grein
er um Huldu skáldkonu og stöðu
hennar í karlasamfélagi nýróman-
tíkurinnar eftir Guðna Elísson.
Emely L. Meredith skrifar um
William Morris og hugmynd hans
um ísland sem fyrirmyndarsamfé-
lag og Magnús Fjalldal segir blóði
drifna sögu víkinga á Bretlandseyj-
um. I þættinum „Skímismál“ sem á
að vera vettvangur fyrir skiptar
skoðanir, rita Halldór Guðjónsson
um menningararf og stjómmála-
skyldu Islendinga. Með þessu hefti
er sá háttur tekinn upp að bjóða
skáldi að yrkja í tímaritið og er
Þorsteinn frá Hamri skáld Skímis
að þessu sinni. I heftinu er einnig
frönsk útgáfa af sögunni um Grá-
mann í Garðshorni. Ritdómar eru
um níu bækur.
Kynntu þér APEX-fargjöldin
í innanlandsflugi Flugleiða
hjá næstu söluskrifstofu félagsins,
umboðsmanni
eða ferðaskrifstofu.
FLUGLEIDIR
Trimm
Hefurðu áhyggjur af aukakíló-
unum?
Ertu búinn að vera á leiðinni út að
trimma síðan í fyrra?
Ef svo er,þá er nú rétti tíminn til
þess að taka fyrsta skrefið. Dagana
20 og 21 .júní verða haldnir trimm-
dagar um land allt. Á ísafirði verð-
ur safnast saman við íþróttavallar-
húsið á Torfnesi kl ll.fyrir hádegi
báða dagana. Þar verður fólki leið-
beint og kynntur bæklingur sem
gefinn hefur verið út í tengslum við
trimmdagana.
Leiðbeinendur frá íþrótta og
æskulýðsráði leiðbeina þátttak-
endum og hjálpa þeim að komast
af stað.
Þetta er tækifærið sem þú hefur
beðið eftir. Drífðu þig af stað.
BÍLALEIGA
HJÓLBARÐAVERKSTÆÐI
ÍSAFJARÐAR
NJARÐARSUND 2 • 400 ISAFJÖRÐUR
SÍMI 94-3501 • HEIMA 94-3482
NAFNNÚMER: 4185-9601
Opna bílaleigu
á laugardaginn 20. júní.
Leigjum út Peugeot 309 sem er
franskur 5 manna bíll, lipur og
þægilegur í akstri.
Komið á laugardaginn og skoðið
þessa bíla sem eru til sölu hjá
Jöfur hf. í Kópavogi,
upplýsingar á staðnum, um verð
og greiðsluskilmála.
Jónas Björnsson
Sími 94-3501 - Heima 3482