Vestfirska fréttablaðið - 15.02.1990, Síða 1
vestfirska
FRÉTTABLASIÐ
VESTFIRSKA
FRÉTTABLAÐIÐ
Póstfaxsími 4423
7. tbl.
15. febrúar 1990
16. árg.
Það þarf víðar að moka snjó en í landi. Svona var umhorfs um borð í Guðbjarti ÍS á útstíminu á
dögunum.
Járniðnaðarmenn á
ísafirði fella samingana
— kann það að hafa fordæmisgildi á Vestfjörðum og víðar
Fastagjald
Orkubú Vestfjarða lagði nýtt
gjald á notendur hitaveituvatns um
áramótin. Þetta er svonefnt fasta-
gjald og er kr. 11.010 á ári. Fasta-
gjald fyrir rafhitun var kr. 3.340 á
síðasta ári, en það hefur verið
hækkað í kr. 11.010. Þessar taxta-
breytingar þýða um það bil 10
prósent hækkun hjá meðalneyt-
anda. Þær koma hlutfallslega
minna við stórneytendur en venju-
legar fjölskyldur og einstaklinga,
þar sem fastagjaldið er alls staðar
hið sama.
Þab vorar í
kvikmyndagerðinni
á Bíldudal
— tvær leiknar
spennumyndir
f framleiðslu
Þegar f'arið er að tala um að það
sé farið að hausta í íslenskri kvik-
myndagerð, þá er dæminu öfugt
farið á Bíldudal. Þar eru nú tvær
kvikmyndir í framleiðslu hjá
heimamönnum og báðar leiknar
spennumyndir.
Valdimar Ottósson er cinn
þeirra sem nú standa í kvikmynda-
gerð á Bíldudal og í samtali við
blm. Vf. sagði hann að þarna væri
um tvo sjálfstæða hópa að ræða.
Hann ásamt Hafliða Magnússyni
eru í öðrum hópnum og vinna þeir
nú að framlciðslu leikinnar
spennumyndar. Samningu liand-
rits og leikstjórn annast Hafliði
Magnússon og að sögn Valdimars
er þarna um að ræða leikna rnynd
sem gæti átt við rök að styðjast, en
væri ekki nein framúrstefnumynd.
Myndin er tekin upp á S-VHS
myndband og myndatökurnar
hefur Valdimar á sinni könnu.
Allt í allt leika unt 12 manns í
myndinni, þegar vélsleðasveit er
talin með. Annars vildi Valdimar
lítið gefa upp um innihald myndar-
innar, en sagði að tökurn yrði lík-
lega lokið í apríl. Þá taka við klipp-
ingar og frágangur, en ekki er enn
ákveðið með hvaða hætti mynd-
inni verður komið á framfæri.
Helst var Valdimar þó á því að
gerðar yrðu spólur sem síðan yrðu
leigðar út. Eins og flest annað við
gerð þessarar myndar, þá er ætlun-
in að tónlistin við myndina verði
frumsamin og hefur Jón Ástvaldur
Hall verið nefndur sem hugsan-
legur lagasmiður.
Hin kvikmyndin sem í fram-
leiðslu er á Bíldudal cr líka leikin
spennumynd, en einn aðalmaður-
inn á bak við hana ntun vcra Logi
Hannesson.
hk.
Félag járniðnaðarmanna á ísa-
firði er fyrsta félagið sem fellir ný-
gerða kjarasamninga, þ.e.a.s. af
þeim félögum sem voru með í stóra
samflotinu við samningagerðina
syðra.
Samningarnir voru felldir með
átta atkvæðum gegn 6, en einn seð-
ill var auður. í Félagi járniðnað-
armanna á ísafirði. en svo heitir
félagið, eru menn í járniðnaði á
ísafirði og í Bolungarvík, alls um
40 félagar. Enginn félagsmaður
kom frá Bolungarvík á fundinn og
kunna erfiðar samgöngur að skýra
það. Samkvæmt heimildum Vest-
firska fréttablaðsins skiptust menn
nokkuð í tvo hópa, þegar rætt var
um samningana, enda cndurspegla
niðurstöður fundarins það. Það
munu hafa verið starfsmenn Skipa-
smíðastöðvar Marscllíusar sem
harðast gengu fram í því að fella
samningana.
Jón Páll Halldórsson, formaður
Vinnuveitendafélags Vestfjarða
hefur lýst yfir, að ekki verði um að
ræða samningaviðræður við járn-
iðnaðarmenn vestra, iöng hefð sé
fyrir því að þær hafi farið fram í
Reykjavík. enda hafi nýgerðir
kjarasamningar við járniðanðar-
menn farið fram milli Vinnuveit-
endasambandsins og Málm- og
skipasmíðasambands íslands, sem
Félag járniðnaðarmanna á ísafirði
er aðili að.
Búið er að ganga frá samningum
milli Alþýðusambands Vestfjarða
og Vinnuveitendafélags Vest-
fjarða og eru þeir á sama róli og
samningarnir í stóra samflotinu í
Reykjavík. Alþýðusamband Vest-
fjarða var ekki beinn þátttakandi í
stóra samflotinu, enda óralöng
hefð fyrir því að santið sé í héraði
við vinnuveitendur. Eitt lettcrs-
bréf frá Alþýðusambandi Vest-
fjarða til Jóns Páls Halldórssonar,
formanns Vinnuveitendafélagsins
varð tilefni mikils fjölmiðlaþyts,
en í bréfinu stóð, að ASV tæki ekki
þátt í samningaviðræðum syðra og
í raun var bréfið tilkynning eða
áminning um að kjarasamningar
hefðu runnið út um áramót. En
þrátt fyrir bréfið, sem sumir lýstu
sem einhvers konar einkenni-
legum ástarhótum milli Vestfirð-
inga þrátt fyrir stéttarandstæður,
þá tóku aðilar vinnumarkaðarins
á Vestfjörðum fullan þátt í sam-
flotinu og nú er að sjá hvort kjara-
samningarnir fljóta inn í verka-
lýðsfélögin á svæðinu eða hvort
niðurstaðan hjá járniðnaðar-
mönnum vestra hafi fordæmisgildi
í einhverjum félögum þar og hugs-
anlega annars staðar í landinu.
Bann við
togveiðum
Snorri Sturluson, Suðureyri.
Á undanförnum árum hefur út-
gerð smærri línubáta stóraukist
héðan frá Suðureyri sem og raunar
víðar. Lengs af voru þeir tveir til
þrír, en nú róa héðan allt að 7 litlir
bátar með línu. Hefðbundin mið
þessara báta eru á grunnslóð eins
og gefur að skilja. Haustið 1984
gaf Sjavarútvegsráðuneytið út
reglugerð þar sem heimilaðar voru
togveiðar í tilraunaskyni innan 12
mílna landhelginnar út af Vest-
fjörðum, allt inn að 4 mílum. Til-
raunin er enn í gangi trillukörlum
hér vestra til mikillar hrellingar.
Samtök þeirra hafa barist fyrir
afnámi þessara veiða og nú cr mál-
ið komið inn í sali Alþingis. Guð-
mundur Ágústsson Borgaraflokki.
hefur lagt fram svohljóðandi til-
lögu til þingsályktunar „um afnám
sérstakra togveiðiheimilda fyrir
VestfjörðumV
Alþingi ályktar að skora á
sjávarútvegsráðherra að endurný-
ja ekki heimild til togveiða á sér-
stökum svæðum fyrir Vestfjörð-
um, sbr., C-lið 1. gr. reglugerðar
nr. 417 29. ágúst 1989.
I greinargerð nteð frumvarpinu
segir m.a.:
C-liður reglugerðarinnar sem
fjallar um sérstakar togveiðar fyrir
Vestfjörðum, var m.a. settur í
þeim tilgangi að nýta betur flatfisk
innan almennra togveiðimarka, á
mörgum stöðum allt að fjögurra
mílna mörkunum.
— Á síðustu árum hefur því verið
haldið fram að hlutur flatfisks í
afla þeirra togskipa, sem þessar
veiðar stunda, hafi dregist veru-
lega saman og meginuppistaða í
afla þeirra sé nú ýsa og þorskur.
Einnig hefur verið bent á að tog-
skipum frá Vestfjörðum hefur
stórlega fækkað í þeim flota sem
nýtir heimildir reglugerðarinnar
og í þeirra stað eru komin skip frá
öðrum byggðarlögum.
--- En þyngst á metunum vegur
sá háski sem smábátum og sjó-
mönnum þeirra er teflt í með því
að þvinga þá á þennan hátt í lang-
siglingu á fjarlæg mið í vetrar-
byrjun þegar allra veðra er von.
Og nú bíða trillukarlarnir
spenntir eftir afgreiðslu þessa máls
í þinginu. Þar mun það ráðast
hvort ágangi þessum er lokið eða
hvort þeir megi enn um hríð sætta
sig við skertan hlut á heimamiðum
í samkcppninni við öflug úthafs-
veiðiskip úr fjarlægum lands-
hlutum.
UTSALANIFULLUM GANGI!
20-50% afsláttur
Komið ogr grerið cjóð kaup
KAUPFÉLAG ÍSHRDINGA
vefnaðarvörudeild
ISPRENT
GRAFÍKTÆKNI HF.
•8 3223