Feykir


Feykir - 15.01.1982, Side 6

Feykir - 15.01.1982, Side 6
Vangaveltur eftir fund um Blönduvirkjun Blöndu er hafnað og bændurnir hyggja að búskapur þeirra sé tryggður af samtíð. í þingræðis-landi með lögum skal byggja, en líka þarf huga að nútíð og framtíð. Hann sérgóður hugsar um hagsmuni sína og honum er sama um ungmenna framtíð, í atvinnuhorfur af raunsæi rýna hann reynir ei - staðnaður alveg í samtíð. Hann engu vill fórna, en allt vill þó hreppa, sem útheimtir lífið í velferðarríki, með óveilum huga að skal því keppa, - aðrir þó bregðist og undan sér víki. Þannig fer heimsmannsins hagsmunastreita hiklaust að marki að nútímakröfum, því allir sér vilja þar lífsgæfu leita þó leiðin sé vandrötuð fram hjá þeim nöfum, -er liggja til hengiflugs hamarsins bratta, sem hrapandans gálausa bíður að lokum. H.J.V. Moinleg prentvilla flæktist inn í sálarflækjuna í jólablaðinu og birtum við kvæðið því aftur. SÁLARFLÆKJA Ég lærði að hnýta á haustnámskciði í fyrra og þótti skrýtið að hnútarnir skyldu ckki vefjast fyrir mér. Þessiundrun olli mérsálarflækjusem varillleysanleg. Pá rann upp fyrir mér Ijós, þetta var ekkert skrýtið: Ég hafði margra ára andlega æfingu að baki. í 40 ár hef ég hnýtt, vetur sumar, vor, og haust. Ekki blómahengi og bakkaborða, þvíþað kunni égekki. f 40 ár hef ég verið að hnýta í hann bróður minn. Skyldi því engan undra þótt ég yrði fljótt öllum hnútum kunnug. Heyin lélegri en áður Segir Maron Pétursson í hinum miklu frostum undanfarn- ar vikur hefur hugurinn gjarnan leitað til hrossanna úti í haganum og hvernig bændur væru yfirleitt undir það búnir að mæta gjafafrek- um vetri. í útsveitum Austur-Skag- afjarðar, allt inn í Viðvíkurhrepp komu skepnur á gjöf um mánaða- mót scpt.-okt. eða um mánuði fyrr en venjulega og hafa víðast hvar verið á fullri gjöf síðan. Aðrir hreppar sýslunnar sluppu betur, en þó hefur verið gjafafrekt það sem af er vetri og víða farið að gefa hrossum. Af ásetningsskýrslum sem borist hafa má ráða að heyfengur síðast- liðið sumar í héraðinu var neðan við meðallag. Til eru heysterkir bæir, til dæmis þar sem fé var skor- ið niður í haust vegna riðuveiki, en þaðan má ekkert selja og engum miðla vegna smithættu. Annað er að hey virðast vera léleg, hafa lítið fóðurgildi. Eftir þeim 206 heysýn- um sem send hafa verið til rann- sóknar, tekin hjá 109 bændum, virðist þurfa 2,29 kg í fóðureiningu að meðaltali. Lítur helst út fyrir að fóðurgildi heys fari minnkandi frá ári til árs. Árið 1980 þurfti 2,20 kg í fóðureiningu, árið 1979 2,16, árið 19781,91. Um stærð bústofns í héraðinu er það að segja að naugripir virðast álíka margir og haustið 1980, sauð- fé fækkar um tæp 4.000, en hross- um fjölgar um 100. Þetta er ekki nákvæmt því búfjártölur vantar enn úr Hofsóshreppi og Sauðárkróksbæ. Þau sveitarfélög hafa ekki enn séð ástæðu til að sinna þeirri lagalegu skyldu að skila ásetningsskýrslum. Afsteypur þekktra listaverka Gleðilegt nýtt ár. Þökkum viðskiptin á liðnum árum HATUN Sæmundargötu 7, Sauðárkróki, sími 95-5420, pósthólf 19 Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við fráfall og útför eiginmanns, föður og tengdaföður okkar, HELGA RAFNS TRAUSTASONAR kaupfélagsstjóra, Smáragrund 2, Sauðárkróki. Sérstakar alúðar þakkir til Kaupfélags Skagfirðinga og starfsfólks þess, fyrir mikinn hlýhug og kærleika er það sýndi okkur. Guð blessi ykkur öll. Inga Valdís Tómasdóttir, Trausti Jóel Helgason, Ásta Búadóttir, Rannveig Lilja Helgadóttir, Þorsteinn Hauksson, Tómas Dagur Helgason, Þorgerður Þorsteinsdóttlr, Guðrún Fanney Helgadóttir, Hjördís Anna Helgadóttir. Þökkum ykkur öllum auðsýnda samúð og vináttu við fráfall og útför eiginmanns, föður og sonar VALGEIRS GUÐJÓNSSONAR, Daufá, Lýtingsstaðahreppi. Guðbjörg Felixdóttir og börn, Valborg Hjálmarsdóttir. VELSMIÐJAN LOGISF Sauðárkróki HJOLBARÐAR WARRIOR Kínverskir, mjög gott verð. GOODYEAR Bandarísk gæðavara. BRIDGESTONE Þeirbestu fráJapan. NOACK NOACK rafgeymar Sænskir í sérflokki. FRÁ RITSTJÓRN Margir lesendur Feykis fá nú senda gíróseðla með blaðinu. Þetta er áskriftargjald fyrir sex mánuði, sept. ’81-febr. ’82,60 krónur. Vonandi bregðast lesendur vel við og borga þessa upphæð. Tilvist blaðsins byggist á traustum og stórum les- endahópi. Við vonum að þeir sem hafa fengið það sent telji að það eigi rétt á sér og megi njóta langra lífdaga sem kjördæmisblað á Norðurlandi vestra. Öldungadeild Fjölbrautaskólinn á Sauðárkróki auglýsir Innritun á vorönnina er hafin hjá öldungadeild. Kennsla hefst 18. janúar. Af fögum sem í boði eru skal nefna: frönsku, ensku, þýsku, íslensku (bókmennta- áfangi), stærðfræði, bókfærslu, vélritun, fé- lagsfræði, sögu. Fleira kemur til greina. Styttri námskeið eru einnig í boði sem fyrr. Nægir þar að nefna: Bútasaum, sauma og snið, gerbakstur, fisk- rétti. Bridgenámskeið er einnig boðið upp á. Nánari upplýsingar á skrifstofu skólans ísíma 5488. Innritið ykkur sem fyrst.

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.