Feykir


Feykir - 04.06.1982, Qupperneq 8

Feykir - 04.06.1982, Qupperneq 8
Feykir hafði samband við þéttbýl- isstaði kjördæmisins á þriðjudags- kvöld og spurðist fyrir um ástand- ið í kjölfar kosninganna og meiri- hlutamyndanir. Hér fara á eftir þær upplýsingar sem fengust. Hvammstangi. Á Hvammstanga hlutu þessir kosningu til hrepps- nefndar: Matthías Halldórsson af lista óháðra og alþýðubandalags- manna, Kristján Björnsson og Karl Sigurgeirsson af lista frjáls- lyndra, og Brynjólfur Sveinbergs- son og Gunnar V. Sigurðsson af lista framsóknarmanna. Frjálslyndir og framsóknar- menn hafa komið sér saman um að skipta með sér oddvitastarfinu, þannig að Brynjólfur Sveinbergs- son verði oddviti næstu tvö árin en Kristján Björnsson tvö ár þar á eftir. Að öðru leyti virðist ekki vera um meiri- og minnihluta að ræða. Ekki er vitað hvort Þórður Skúlason verði áfram sveitarstjóri, en líklegt að svo verði, a.m.k. fyrst um sinn. Skagaströnd. Þessir hlutu kosningu á Skagaströnd. Elín Njálsdóttir (A), Magnús B. Jóns- son (B), Adolf J. Berndsen (P), Gylfi Sigurðsson (D) og Guð- mundur Haukur Sigurðsson (G). Meirihlutamyndun varð milli Alþýðuflokks og Sjálfstæðisflokks um endurkosningu Adolfs J. Berndsen í stöðu oddvita. Þýðir það ekki endilega að þessir tveir flokkar hafi samstöðu um öll önn- ur mál. Raðað var í nefndir í vikunni, og var samkomulag um þá röðun en ekki meiri- og minni- hiutakosning. Blönduós. Á Blönduósi héldu óháðir og vinstri menn meirihluta sínum og hlutu þeir nálægt 60% atkvæða sem er aukning frá síðustu kosningum. Þessir hlutu kosningu af óháða listanum: Hilm- ar Kristjánsson, Sturla Þórðarson og Sigmar Jónsson. Af D-lista Sjálfstæðisflokksins náðu kosningu þau Sigurður Eymynds- son og Sigríður Friðriksdóttir. Búið er að endurkjósa Hilmar Kristjánsson oddvita og talið er að Eyþór Elíasson verði áfram sveitarstjóri. Sauðórkrókur. Á Sauðárkróki urðu þau tíðindi helst að Jón Karlsson Alþýðuflokki náði ekki kosningu, en framsóknarmenn bættu við sig fjórða manninum. Við fall Jóns féll meirihluti Al- þýðuflokks, Sjálfstæðisflokks og Harðar Ingimarssonar. Þessir hlutu kosningu: Magnús Sigur- jónsson, Sighvatur Torfason, Bjöm M. Björgvinsson og Pétur Pétursson, allir úr Framsóknar- flokki, Þorbjörn Árnason, Aðal- heiður Arnórsdóttir og Jón Ás- bergsson úr Sjálfstæðisflokki, Stefán Guðmundsson Alþýðu- j bandalagi og Hörður Ingimars- son af lista óháðra. Framsóknarmenn og Alþýðu- bandalag stefna nú að myndun meirihluta og hafa samningafundir verið haldnir. Þorsteinn Þorsteins- son mun láta af störfum bæjar- stjóra. Jón Karlsson hefur, eins og kunnugt er, kært kosninguna á Sauðárkróki. Nú hefur vctur kvatt og snjóa leyst. Bömin á „kisudeild“ Leikskóla Sauóir- króks fóru „út i bæ“ ekki alls fyrir Iðngu aó útrétta. Kannski að þau hafi ætlaö aó lita á sumartiskuna i búóagluggum og fá sér stuttbuxur. ■ Hofsós. Þessir hlutu kosningu til hreppsnefndar á Hofsósi: Garðar Sveinn Árnason, Björn Níelsson, Gísli Kristjánsson, Pálmi Rögn- valdsson og Gunnar Geir Gunn- arsson. Björn Níelsson hefur verið kosinn oddviti. Frést hefur að sveitarstjórinn Garðar Sveinn Árnason sem flest atkvæði fékk til hreppsnefndar hyggist segja starfinu lausu og hverfa af staðn- um. Fyrsti varamaður hreppsnefnd- ar Einar Jóhannsson mun hafa setið fundi hrepsnefndarinnar. Siglufjörður. Á Siglufirði vom þessir kosnir: Frá Sjálfstæðis- flokki: Björn Jónasson, Birgir Steindórsson, Axel Axelsson og Guðmundur Skarphéðinsson. Frá B-lista: Bogi Sigurbjörnsson og Sverrir Sveinsson. Af A-lista: Jón Söfnuðu fé handa öldruðum Þessar stúlkur búa á Sauðárkróki og heita Rakel Ársælsdóttir og Ása Dóra Konráðsdóttir. Með hluta- veltu söfnuðu þær 850 krónum sem þær afhentu formanni öldrunar- nefndar Skagafjarðarsýslu, Sæm- undi Hermannssyni, og á féð að renna í byggingarsjóð aldraðra. Feykisblaðamaður var svo heppinn að hitta þær á fömum vegi og tókst að smella þeim á filmu. Dýrfjörð. Af G-lista: Kolbeinn Friðbjarnarson og Sigurður Hlöð- versson. Umræður um meirihluta- myndun fara nú fram milli D og G-lista ,,og gengur treglega". A síðasta kjörtímabili stóðu sjálf- stæðis- alþýðuflokks- og alþýðu- bandalagsmenn saman um meirihlutamyndun. Ingimundur bæjarstjóri Einarsson hefur sagt starfi sínu lausu. Hvammstangi Næsta vetur verður 9. bekkur við grunnskólann á Hvammstanga. Er það nýjung. Áður hafa nemendur á Hvammstanga orðið að sækja 9. bekkinn til Reykjaskóla. Blönduós Sveinn Kjartansson fræðslustjóri Norðurlandsumdæmis vestra hef- ur sagt starfi sínu lausu. Mun hann sinna kennslustörfum á Blönduósi næsta vetur. Sauðárkrókur Tjaldstæði Sauðárkróks var form- lega opnað 1. júní og verður það opið fram í fyrstu viku september. Aðstaða er góð til þvotta og leikja. Þarna eru vaskar, rólur, bekkir og borð. Sundlaugin er steinsnar frá tjaldstæðinu, einnig verslanir. Verðlagningu er mjög í hóf stillt. Fyrir tjaldið eru settar upp kr. 30, eða, ef menn vilja heldur, kr. 10 fyrir tjald og kr. 10 á hvern mann. Börn undir 12 ára aldri eru undanþegin aðgangstolli. Tjaldstæðið hefur verið opið undanfarin tvö sumur við vaxandi vinsældir. Leiðrétting og bragabót Blaðinu hefur borist eftirfarandi vegna athugasemdar Hólmfríðar Jónasdóttur um vatnsból Sauð- krækinga, en hún heldur því fram, að þeir fái neysluvatn sitt úr Tindastóli en ekki Molduxa. Tindastóll var áður nefndur Eilífs- fjall eins og flestum mun kunnugt. Víst er Hreinsi vís til alls veigar þunnar gyllir, og af lindum Eilífsfjalls Ameríku fyllir. R.G.Sn. Raunir dreifingarstjóra Ort þegar snjóar voru hvað mestir Á föstudagsmorgni var Feykir til það fennti og skóf — en var mokað. í Varmahllð mætti’ eg um miðaftansbil — mér bar að standa á blaðinu skil þó allt væri ófært og lokað. Á laugardagsmorgni ég lagði af stað, langaði rútuna að finna. vestur í sýslu, að bera mitt blað, ég biðja vil Áma Rögg fyrir það, hann svoddan er vanur að sinna. Árni var farinn, hvern andskotann þá átti’ eg í málinu að gera? Þaut inn í bilinn og bensíni á með blýfæti stóð — því ég skyldi’ honum ná gegnum kóf, yfir klaka og frera. Ég var sko aldeilis einbeittur þá, hjá Ábæ í þyrlandi mekki. En driftin var löng — og ég lenti á ská, loks var allt þrælfast —á kúlunni lá bíllinn, og bifaðist ekki. Þá kom hann Ámi Rögg — aftan að mér, og ýtti mér frá —svo hann kæmist. I veg fyrir rútu með Feyki hann fer þó fenni og renni — ég dreifi’ honum hér, svo ónýtur ekki ég dæmist. Hilmir Jóhannesson

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.