Feykir - 30.07.1982, Blaðsíða 8
AUGLÝSINGAR
Margeir Friöriksson
Sími 95-5600 & 95-5752.
DREIFING
Hilmir Jóhannesson
Sími 95-5133 & 95-5314.
ÁSKRIFT
Árni Ragnarsson
Sími 95-5500 & 95-5870.
%
SNYR TIL FOÐURHUSA
ustu hreppsnefndarkosningar og
tel það jafnvel eðlilegt í svona litl-
um stað. Það vill alltaf verða póli-
tískur kurr í kringum listana.
Og þú ert að takast á við þetta
verkefni.
Ja, ég get ekki neitað því að ég
er með svolítinn skrekk. En það
er ef til vill bara betra. Maður tek-
ur þá hlutina alvarlega og reynir
að takast á við verkefnin af sam-
viskusemi og láta sem fæst fram
frá sér fara. Mér sýnist á þeim
plöggum sem ég hef hér fyrir
framan mig að ástæður hreppsins
séu þess eðlis að ýmislegt þurfi að
takast á við. Ég vona bara það
besta. Spyrjandi þakkaði fyrir og
Feykir óskar Ófeigi allra heilla í
starfi. ■’
Sr. Arni Sigurðsson tekur fyrstu skóflustunguna.
Ný kirkja rís
á Blönduósi
Nýlega var tekin skóflustunga að
nýrri kirkju á Blönduósi. Það var
sóknarpresturinn sr. Árni Sig-
urðsson sem tók fyrstu skóflu-
stunguna og flutti blessunarorð,
kirkjukór safnaðarins söng undir
stjórn Sólveigar Söveg, síðan lýsti
formaður safnaðarins Kristófer
Kristjánsson kirkjubyggingunni.
Nýja kirkjan mun standa á
hæðinni fyrir ofan Grunnskólann
á Blönduósi. Gert er ráð fyrir að í
kirkju verði sæti fyrir 270 manns.
Kirkjuskipið verður tvískipt þ.e.
aðalsalur og hliðarsalur, auk þess
verður skrúðhús og aðstaða fyrir
sóknarprest á jarðhæðinni, undir
hluta af húsinu verður kjallari.
í sumar er ráðgert að steypa
sökkla kirkjunnar, fylla í grunn,
byggja kjallarannog steypaplötu.
Kristófer Kristjánsson sóknar-
formaður sagði þetta vera mikla
bjartsýni því að það væri feykna-
stór áfangi að ljúka þessu í sumar
en rökstuddar vonir stæðu til þess
að þetta takist.
Fé til kirkjubyggingarinnar
kemur frá sóknarbörnum en þá
ber sérstaklega að geta góðrar
erfðagjafar frá Árna Óla og konu
hans Ónnu Guðrúnu Guðmunds-
dóttur þau arfleiddu Blönduós-
kirkju að húseign í Reykjavík og
fylgdi með í gjöfinni að húsið yrði
selt og féð notað til þess að byggja
nýja kirkju á Blönduósi. Húsið
hefur nú verið selt og verður and-
virði þess notað til þess að standa
undir byrjunarframkvæmdum.
Maggi Jónsson frá Köldukinn er
arkitekt hinnar nýju kirkju á
Blönduósi en Verkfræðistofa Sig-
urðar Thoroddsen sér um allar
verkfræðiteikningar, yfirsmiður
hefur verið ráðinn Einar Evensen
trésmíðameistari Blönduósi.
M.Ó.
Jú, bara sæmilega. Annars er
ég lítið farinn að kynnast fólki og
er að byrja að komast svolítið
niður í málefni hreppsins með því
að lesa mér til í þessum pappírum
hér fyrir framan mig.
Hafðirðu nokkur kynni afgangi
mála hér áður en þú komst
hingað?
Jú, ég hafði nú fylgst svolítið
með því sem gerðist hér. Ég hafði
það mikil kynni af Hofsós á ung-
lingsárunum þegar ég var hér í
sveitinni. Ég fylgdist til dæmis
með því þegar hreppsnefndin hér
var endurskipulögð, ef svo má
segja, og ungir menn tóku við.
Einnig vissi ég að kosið var hér
óhlutbundinni kosningu við síð-
Ofeigur Cestsson.
Nýlega var ráðinn sveitarstjóri á
Hofsósi, Ófeigur Gestsson. Rit-
nefndarmaður Feykis náði tali af
hinum nýráðna svcitarstjóra og
spurði hann nokkurrarspurninga.
Ert þú ættaður héðan úr Skaga-
firðinum?
Já, það er ég reyndar. Ég er
bróðursonur Kristjáns á Óslandi
sem þú þekkir sjálfsagt vel. Afi
minn var Jón Sigurðsson smiður
og átti heima í Stóragcrði í Ós-
landshlíð. Á Óslandi varég í sveit
í mörg ár svo ég er ekki ókunnug-
ur hér í Óslandshlíöinni. Það er
fallegt í Skagafirði og alltaf hef ég
ánægju af að virða fyrir mér lands-
lagiö af Vatnsskaröinu. Þaðan sér
vítt um þítð og það er falleg sýn.
Ert þú fjölskyldumaður?
Já, og konan er reyndar líka
ættuð úr Skagafirðinum, Berg-
hildur Jóhannesdóttir. Amma
hennar var frá Bólu og föðurættin
frá Tyrfingsstöðum. Við eigum
fjögur börn, eina dóttur og þrjá
drengi.
Hvaða störf hafðir þú stundað
áður en þú komst hingað?
Ég er búfræðingur frá Hvann-
eyri og vann lengi hjá Búnaðar-
sambandi Borgarfjarðar. Einnig
var ég í hreppsnefnd Andakíls-
hrepps og formaður í skólanefnd
Kleppjárnsreykjaskólahverfis,
ásamt fleiri nefndarstörfum.
Og hvernig líst þég svo á þig
hér?
ískalt Seven Up.
Hressir betur.
Fjórðungs-
þing
Norðlend-
inga 1982
Ákveðið hefur verið að 24.
Fjórðungsþing Norðlendinga
verði haldið í Fjölbrautaskól-
anum á Sauðárkróki dagana
26.-28. ágúst 1982. Þingsetn-
ing verður fimmtudaginn 26.
ágúst kl. 8 e.h. og þinginu lýk-
ur á laugardagskvöld í hófi
bæjarstjórnar Sauðárkróks.
Auk venjulegra þingstarfa
verða meginmál þingsins
atvinnumálefni, sem rædd
verða sérstaklega á þingfundi
þegar eftir setningu þingsins og
ennfremur verkefnaskipti ríkis
og sveitarfélaga, sem rædd
verða á þingfundi eftir hádegi
föstudaginn 27. ágúst. Þingið
sækja yfir 90 fulltrúar sveitar-
félaga og sýslufélaga úr
Norðurlandi auk alþingis-
manna og gesta.
Sauðárkrókur:
Af Hlíðahverfisverslun
Nú eru tveir mánuöir þangað til
nýja verslunin í Hlíðahverfi á að
standa fokheld. Smíði hússins er
þó ekki hafin enn. í október í
fyrra stóö mikill styr um úthlutun
lóðarinnar fyrir þessa verslun,
sem er við Akurhlíð. Aö lyktum
úthlutaði byggingarnefnd Einari
Sigtryggssyni lóðinni afturen með
því skilyrði, að hann hefði byggt á
henni fokhelt verslunarhús 30.
september 1982, að öðrum kosti
félli lóðarúthlutun úr gildi. - Að-
spurður kvaðst Einar hafa fullan
áhuga á því að byggja verslunar-
húsiö, teikningar lægju fyrir sam-
þykktar en hann hefði verið að
svipast um eftir góðum samstarfs-
manni til félags við sig og væri að
því enn. Einar var þó vongóður
um að úr rættist.
ár-