Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 13.06.1991, Side 1

Vestfirska fréttablaðið - 13.06.1991, Side 1
VESTFIRSKA FRÉTTABLAÐIÐ 24. TBL. 17. ÁRG. 13. JÚNÍ 1991 Stöðugt bætast nýjar (eða öllu heldur gamlar) fleytur í skipastól Sjóminjadeildar Byggðasafns Vestfjarða í Neðstakaupstað á ísafirði. Nú síðast kom þar á kambinn vélbátur sem Falur Jakobsson í Bolungarvík smíðaði árið 1929 og bar lengst af nafnið Jóhanna (fyrst frá Sæbóli, síðan Grunnavík, en lengst ísafirði). Jóhanna var í eigu Einars Ágústs Einarssonar (Gústa) frá Dynjanda í Jökulfjörðum, þar til fyrir fáum árum. Báturinn er gjöf til safnsins frá Finnboga Jónassyni á Isafirði og sonum hans. Síðustu árin hefur báturinn borið nafnið Þristur ÍS 3, en mun framvegis halda sínu gamla góða Jóhönnunafni, eins og eðlilegt er. Á myndinni er Jóhanna til hægri, nýmáluð og björt á vanga, ásamt öðrum bátum í flota Byggðasafnsins, en fyrir framan stendur Finnbogi Jónasson ásamt þremur sonum sínum og Jóni Sigurpálssyni núverandi faktor í Neðstakaupstað. Lengst til hægri sér í stefnið á Mánafossi, en hann er ekki enn kominn í umsjá þeirra Neðstakaupstaðarmanna, hvað sem síðar kann að verða. S Grunnskólinn á Isafirði: Stærðfræðieinkunnir vel yfir landsmeðaltali Mörg undanfarin ár hefur verið kvartað undan lélegri út- komu vestfirskra nemenda úr hinum svökölluðu samræmdu prófum. Sú hefð hefur nú verið brotin, meðaleinkunn tíundu bekkinga við Grunn- skólann á ísafirði var í vor þó nokkuð hærri en landsmeðal- tal, og hærri en í öllum um- dæmum utan Reykjavíkur. í skólaslitaræðu Bjargar Baldursdóttur skólastjóra kom fram að þrjátíu og þrír af kennurunt skólans luku nýlega starfsleikninámi sem staðið hefur í tvo vetur og kostað kennarana mikla aukavinnu meðfram kennslunni. Loka- hluti námsins var gerð skóla- námsskrár sem mun koma út í haust. Nokkur hreyfing er á kenn- urum eins og oft áður, og gæti farið svo að allt að tíu kennar- ar og leiðbeinendur hættu störfum að þessu sinni en alls voru fjörutíu og fintm kcnnar- ar við skólann í vetur, auk skólastjóra og yfirkennara. Nentendur voru tæplega sex hundruð, þar af fjörutíu og fjórir í Hnífsdal og fjórir í þjálfunardeild. Nokkrir nemendur hlutu viðurkenningar fyrir árangur í námi. Það voru þau Bragi Valdemar Skúlason fyrir frá- bæran námsárngur, Stein- grímur Guðmundsson fyrir góðan árangur í dönsku, Erna Sigrún Jónsdóttir fyrir góðan árangur í þýsku, Halldór Sveinsson fyrir góðan árangur í íþróttum og Svavar Þór Ein- arsson fyrir störf að félagsmál- um. Pétur Bjarnason fræðslustjóri á Vestfjörðum varð fimmtugur í gær, 12. júní. Mikill fjöldi fólks heimsótti afmælisbarnið og Grétu konu hans í gærkvöldi í tilefni dagsins. Lúðrasveit ísafjarð- ar kom og blés nokkur lög (á myndinni eru Pétur og Gréta komin út á stétt að hlýða á lúðraþytinn í kvöldkyrrðinni), og strax á eftir komu félagar úr Harmonikufélagi Vestfjarða og þöndu nikkurn- ar. Vestfirska fréttablaðinu þykir með ólíkindum hvað sumir menn geta komist ungir á sextugsaldur nútildags, eins og þetta dæmi sýnir best. Anita Pearce. Kántrýsöngkona í heimsókn í byrjun næstu viku kemur kanadískur kántrýsöngvari til ísafjarðar. Hér e'r um að ræða hina eldhressu og skemmtilegu kántrýsöngkonu Anitu Pearce, sem heim- sótti Isafjörð fyrir tæpum tveimur árum við góðan orðstír. þessi lífsglaða söngkona hefur ferðast víða um heim og er þekkt fyrir söng og ræðumennsku, þar sem hún boðar trú á Jesúm Krist á sköruglegan hátt og biður fyrir sjúkum. Að þessu sinni kemur hún til ísafjarðar á vegum Hvíta- sunnukirkjunnar Salem, þar sem hún mun tala og syngja á samkomum í hinum nýja sal kirkjunnar að Fjarðastræti 24. Samkomur þessar verð^i haldnar dagana 18. og 19. júní nk. kl. 20.00 bæði kvöldin, og eru allir hjartanlega velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Beðið verður fyrir sjúkum. VACHLW OPNUM 10 ALLA DAGA föstudags- og laugardagskvöld Opið til kl. 3 bæði kvöldin VAGNINN FLATEYRI SÍMI 7751 | BILAÞJONUSTA DAÐA FJARÐARSTRÆTI20, 400 ÍSAFJÖRÐUR SÍMI 94-3499 jp Smurstöð ir I ir Hjólbarðaviðgerðir ir Bifreiðaviðgerðir - bilasala HÁRSTÚDÍÓ INGUNNAR Holtabrún 1 ■ Bolungarvík 2? 7374 KYNNIR nýjungar ílitum, skoli, klippingum og permanentum. Opið alla daga. Verið velkomin! ÚRVAL UPPTÖKUVÉLA TILVALDAR í SUMARFRÍIÐ Ferðaútvörp m/kassettu og/eða geislaspilara Ferðageislaspilarar á hagstæðu verði SALA & ÞJÓNUSTA PÓLLINN HF. Verslun sr 3092

x

Vestfirska fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.