Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 13.06.1991, Síða 4

Vestfirska fréttablaðið - 13.06.1991, Síða 4
 Daglegar ferðir Reykjavík - ísafjörður Vöruflutningar Ármanns Leifssonar 0“ 94-7548 og 91-10440 Allt til pípulagna ÁRAL H/F Fjarðarstræti 22,400 ísafjörður, sími 94-4644. Föndurloftið Mjallargötu 5, sími 3659 Bíla-ogteppahreinsun Vestfjarða, Grænagarði Þvottur, bón og djúphreinsun. Sjálfsþjónusta til viðgerða. Smurstöð. Opið alla daga vikunnar og líka á kvöldin. Bíla■ og teppahreinsun Vestfjarða, Grænagarði, sími4659 Blómabúðin Elísa Hafnarstræti 11, sími 4722 VERSLUNIN m HNÍFSDAL OPIÐ ALLA DAGA Allarbyggingarvörur Pensillinn Mjallargötu 1, sími 3221 ORKUBU VESTFJARÐA OPNUNARTÍMI SKRIFSTOFU kl. 9.00-12.00 ogog 13.00-16.00 0 3211 BILANATILKYNNINGAR Rafmagn: 0 3099 Hitaveita: 0 3201 ÓÐINN B AKARI BAKARÍ 0 4770 VERSLUN S 4707 Innanhúss- frágangur Gerum tilboð SÍMI 3114 T ÍSPRENT HF. PRENTSMIÐJA S 94-3223 ERTU MEÐ SKALLA? ' HÁRVANDAMÁL? Aðrir sœtta sig ekki við þaðl Af hverju skyldir þú gera það? ■ Féðu aftur þttt algið hár, s«m v«x •Atllog* ■ Sártaukalaua maðfarð ■ Maðfarðln ar stutt (1 dagur) ■ Skv. ströngustu kröfum banda- i rískra og þýskra staðla ■ Framkvsemd undlr eftirltti og st)óm 1 sármenntaðra lækna Upplýsingar hjá EURO CLINIC Ltd. Ráðgjafastöð, Neðatutröð 8, Póshólf 111, 202 Kópavógi - Síml 81-641923 k á kvöldin - Sími 91-642319. Ferjan Baldur — vegurinn suður og heim aftur 2“ 93-81120 og 94-2020 Framtalsaðstoð Bókhaldsþjónusta Viðskiptamannabókhald Launaútreikningur Tölvuvinnsla. FYLKIR ÁGÚSTSSON bókhaldsþjónusta Fjarðarstræti 15-400 isafirði Sími 3745. FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á ÍSAFIRÐI 0 4500 Samband frá skiptiborði við allar deildir virka daga kl. 8-17. Eftir lokun skiptiborðs svarar legudeild í síma 4500. Annars sjá símaskrá. Heimsóknartímar alla daga kl. 15-15.45 og 19-19.30. Seinni heimsóknartíminn til sængurkvenna aðeins fyrir feður, eða einn nákominn ættingja eða vin. Slysadeild opin allan sólarhringinn. Líkamsrækt fyrir almenning á endurhæfingardeild opin á mánudögum og fimmtudögum kl. 17-20. Sími eftirkl. 17 er 4503. HEILSUGÆSLUSTÖÐIN Á ÍSAFIRÐI 0 4500 Opin virkadaga kl. 8-17. Tímapantanir á sama tíma. Upplýsingar um vakthafandi bœjarlækni eftir lokun skiptiborðs í símsvara 3811. ^RÁNARGÖTU 4A Öll herbergi með baði, síma, sjónvarpi, og míníbar! S 91-18650 AL-ANON Ef þú berð umhyggju fyrir einhverjum sem á við áfengisvandamál að stríða getur AL-ANON leiðin hjálpað þér. Fundir eru á mánudögum kl. 21 í Aðalstræti 42 húsið opnað kl. 20.30. Yegna opins bréfs: Ákvörðun á aðal- safnaðarfundi I opnu bréfi til Sóknar- ncfndar ísafjarðar frá 55 ís- firðingum, sem birtist þann 6, júní í Vestfirska fréttablað- inu. er farið fram á að staðið verði fyrir atkvæðagreiðslu um kirkjubyggingarmálið. Sóknarnefnd bendir á að aðalsafnaðarfundur fer með æðsta vald í málefnum safnað- arins og á þeim vettvangi eru teknar stefnumarkandi ákvarðanir, og þar er einnig fyrri samþykktum hnekkt ef svo ber undir. Aðalsafnaðarfundur þessa árs verður auglýstur nú innan skamms og á honum verður væntanlega tekin ákvörðun um það hvort tillögum er vísað til almennrar atkvæðagreiðslu eða þær afgreiddar á fundin- um. Er þetta sama málsmeð- ferð og viðhöfð hefur verið við fyrri atkvæðagreiðslur hjá söfnuðinum. ísafirði 11. júní 1991 Sóknarnefnd Isafjarðar. Hraðfrystihúsið hf. í Hnífsdal 50 ára: Stórgjafir (frá afmælis- barninu) í tilefni afmælisins Milljónagjafir frá Hraðfrystihúsinu hf. og Miðfelli hf. til kaupa á sumarbústað fyrir þroskahefta, til viðhalds á Barnaskólanum í Hnífsdal, til kaupa á hjartatækjum í sjúkrabíl, til Björgunarsveitarinnar Tinda í Hnífsdal og í þyrlukaupasjóð Hraðfrystihúsið hf. í Hnífsdal varð 50 ára fyrr á þessu ári. Fyrir skömmu voru haldnir aðalfundir þess og dótturfyrirtækis þess, Miðfells hf. í Hnífsdal, og var þar sam- þykkt að færa nokkrum aðil- um dálitlar peningagjafir, svo að ekki sé meira sagt, samtals fimm milljónir króna. Á meðal þeirra sem fjárins njóta er Fjórðungssjúkrahúsið á ísafirði, en ákveðið var að færa því eina milljón króna til kaupa á hjartastuðtæki til notkunar í sjúkrabifreið og til tækjakaupa fyrir endurhæf- ingardeild. Þegar Jóakim Páls- son stjórnarformaður Hrað- frystihússins hf. kom inn á sjúkrahús með peningana eftir vinnu núna á þriðjudaginn og hafði látið vita á undan sér, þá kom það algerlega flatt upp á hann, og greinilega kom líka heldur illa við hann, að þar tók á móti honum hópur af glað- legu fólki og hlaðið borð með snittum og öli. Jóakim fékkst að vísu til þess að setjast til borðs dálitla stund og þiggja góðgerðir að íslenskum sið, en harðneitaði að taka þátt í formlegri athöfn og mynda- tökum af handaböndum. Þegar Vestfirska hafði símasamband við Jóakim ígær til að fá nánari upplýsingar um þá aðila og stofnanir sem njóta góðvildar þessara fyrirtækja, þá brást hann heldur styggur við, kvaðst engar upplýsingar veita um það, margir frétta- menn hefðu verið hringjandi í sig og hann ræddi ekki við þá um þessi mál. Tilgangurinn með þessu væri allt annar en sá að komast í fjölmiðla. Eftir öðrum leiðum hefur Vestfirska komist að því, að aðrar gjafir fyrirtækjanna en til Fjórðungssjúkrahússins eru þessar: Tvær milljónir króna renna í Björgunarsjóð nem- endafélags Stýrimannaskólans - þyrlukaupasjóð; ein milljón til Styrktarfélags vangefinna Hraðfrystihúsið í Hnífsdal. á Vestfjörðum til kaupa á sumarbústað fyrir skjólstæð- inga þess; hálf milljón til Björgunarsveitarinnar Tinda í Hnífsdal í húsbyggingarsjóð; og hálf milljón til Barnaskól- ans í Hnífsdal til viðhalds og fegrunar innanhúss. Hraðfrystihúsið hf. í Hnífsdal var stofnað 19. janú- ar 1941 og var hlutafé þess í upphafi 45 þúsund krónur. í fyrstu stjórn félagsins áttu sæti þeir Páll Pálsson formaður, Hjörtur Guðmundsson og Elías Ingimarsson; í vara- stjórn þeir Ingimar Finn- björnsson varaformaður, Jóa- kim Pálsson og Magnús Guðmundsson. Á þessu hálfr- ar aldar tímabili sem liðið er hafa verið sjö mögur ár en hin 43 árin hefur verið hagnaður af rekstri fyrirtækisins. Jóakim Pálsson núverandi stjórnarformaður Hraðfrysti- hússins hf. í Hnífsdal er sonur Páls Pálssonar, en Jóakim Hjartarson stjórnarformaður Miðfells hf. er sonur Hjartar Guðmundssonar. Þessara gjafa er getið hér þrátt fyrir viðhorf Jóakims Pálssonar til fjölmiðla og um- fjöllunar á þeim vettvangi, í þeirri von að hann fyrirgefi okkur, og jafnframt í þeirri von að sá sem sér í leyndum og sagt er frá í þekktri bók misvirði það ekki heldur. Þessar gjafir eru að vísu held- ur í stærra lagi, og hafa margar áður komið úr þeirri átt. En hvað sem krónufjölda líð- ur eru þessar gjafir fordæmi og hvatning til annarra, að láta gott af sér leiða. Og þess vegna er sagt frá þeim hér. Mummi á Hnjóti: Opnaður reikningur í Sjómannadagsblaði Vest- bátnum, og þeir sem vilja firska var greint frá því, að vél- leggja fé af mörkum geta lagt báturinn Mummi BA 21 væri inn á reikning, sem til þess hef- kominn á Byggðasafnið á ur verið stofnaður í Eyraspari- Hnjóti í Örlygshöfn. Fram- sjóði á Patreksfirði. Þetta er undan er dýr viðgerð á tékkareikningur nr. 613.

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.