Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 28.11.1991, Blaðsíða 8

Vestfirska fréttablaðið - 28.11.1991, Blaðsíða 8
W mm NæstaferðGönguhrólfaáísafirðiverðurásunnudaginn (1. desember). Lagt verður af stað ki. 14 frá Bílaverkstæði (safjarðar við Seljalandsveg og gengið inn að Bræðra- tungu. Leiðsögumenn verða Magni Guðmundsson og Pétur Pétursson. Athugið að nú verður gengið á sunn- udegi, en ekki á laugardegi eins og venjulega. Allir eru velkomnir sem endranær. Sjáumst! Samtök um sorg og sorgarviðbrögð halda aðalfund sinn í Safnaðarheimilinu á (safirði á sunnudaginn, þann 1. des- ember, kl. 20.30. Allir eru hjartanlega velkomnir. félagið Þuríður sunda- fyllir fimmtíu ára Matthías Bjamason kemur á 1. des. skemmtun Sj álfstæðisfélaganna í Bolungavík á laugardag FIMMTÍU ára afmæli Sjalfstæðiskvennafélagsins Þuríðar sundafyllis í Bolungavfk verður haldið hátíð- legt á hinni árlegu 1. des. skemmtun Sjálfstæðisfélag- anna í Bolungavík á taugardaginn, þann 30. nóvem- ber. Skemmtunin hefst kl. 20.30. Ræðumaður verður Matthfas Bjarnason alþingismaður. Sjálfstæðiskvennafélagið Þuríður sundafyllir var stofn- að 21. september 1941. Fyrsti formaður var Margrét Hálf- danardóttir. Stofnfélagar voru 25 og ersami fjöldi í félaginu núí dag. Félagið hefur staðið fyrir 1. des. skemmtun frá upphafi. Fyrstu verkefni þess voru að gangast fyrir hlutaveltu til að safna peningum í vatnsveitusjóð og að styrkja bágstatt fólk. í gegnum tíðina hefur félagið starfað að ýmsum líkn- ar- og menningarmálum, auk þess að taka þátt í félags- starfi Sjálfstæðisflokksins og sjá um kosningakaffi við allar kosningar. Til dæmis um mál sem félagið hefur lagt lið má nefna að gefa sjúklingum á sjúkraskýlinu jólaglaðning, Ijósakross á kirkjuna, orgelsjóð kirkjunnar, til byggingar verbúðar og að koma upp skildi til minningar um Þuríði sundafytli á steininn Þuríðarsæti I Vatnsnesi í Syðridal. Núverandi stjórn félagsins skipa Björg Guðmundsdóttir formaður, Þorbjörg Magnúsdóttir ritari, Halldóra Krist- jánsdóttir gjaldkeri, og Herdís Eggertsdóttlr og Anna G. Edvardsdóttir meðstjómendur. Allt sjálfstæðisfólk ásamt gestum er velkomið á 1. des. skemmtunina. Miðaverð er kr. 2.400. Vinsamlega tilkynnið þátttöku til Bjargar í síma 7460, Lillýjar í síma 7175, eða Þorbjargar ( síma 7001. KONUR OG KARLAR! Það margborgar sig ab sauma Glæsilegt úrval af efnum á alla fjölskylduna Tilbúnar jólagardínur Ný munstur í köppum og plasthúðubum efnum KMIPFEIAGISFIRÐIAICA Vefnaðarvörudeild v/Silfurtorg S 3246

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.