Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 22.06.1994, Qupperneq 6

Vestfirska fréttablaðið - 22.06.1994, Qupperneq 6
VESTFIRSKA 6 Sólstöðuskíðagangan 1994: Hlynur Guðmundsson þremur sekúndum á undan Arnari Pálssyni Hlynur Guðmundsson sigraði í Sólstöðuskíða- göngunni 1994, sem Skíðafélag ísafjarðar og WC- Skógarliðið gengust fyrir aðfaranótt sunnudagsins. Keppendur voru níu talsins og meirihluti þeirra fyrr- verandi eða núverandi íslandsmeistarar á skíðum. Keppendur voru ræstir á miðnætti. Gengin var frá Nónvatni hin hefðbundna Fossavatnsgönguleið og yfir á Seljalandsdal og endað á Kvennabrekkubrún, alls um 16-18 kílómetrar. Afar mjótt var á mununum hjá fyrstu mönnum, aðeins þrjár sekúndur skildu fyrsta og annan mann og aðeins liðlega hálf mínúta skildi fyrsta og fjórða mann. Fjórir fyrstu og tímar þeirra: 1. Hlynur Guðmundsson 45,25 mín. 2. Arnar Pálsson 45,28 - 3. Einar Ólafsson 45,53 - 4. Gísli Einar Árnason 46,00 - Síðan komu þeir Einar Ágúst Yngvason, Eiríkur Gíslason, Heimir G. Hansson, Guðmundur Rafn Kristjánsson og Hermann Óskarsson. í sveitakeppni sigraði sveit WC-Skógarliðsins, sem var eina sveitin sem lauk keppni áður en markinu var lokað. Veður var norðaustan 5-6 vindstig, skýjað og hiti 4°C. Þröstur Jóhannesson lagði brautina en Hjálp- arsveit skáta á ísafirði annaðist öryggisgæslu á leið- inni. Mótshaldarar eru hæstánægðir með hvernig til tókst og nú þegar hefur verið ákveðið að halda aðra Sólstöðugöngu að ári. Opna Vestfjarða- mótið í skák á ísafirði um næstu helgi - Efsta sætiö gefur þátttökurétt í landsliðsflokki Opna Vestfjarðamótið í skák fyrir árið 1994 verður haldið á ísafirði um helgina, dagana 24.-26. júní. Tefldar verða 6 umferðir eftir Monradkerfi. Umhugs- unartími verður ein og hálf klukkustund á 36 leiki og síðan hálftími til að klára. Efsta sætið gefur sjálfkrafa þátttökurétt í lands- liðsflokki í haust. Ekki er enn búið að ákveða hvar verður teflt, en því verður komið á framfæri í Svæðisútvarpinu annað kvöld, fimmtudagskvöld. Fyrsta umferð hefst á föstudag kl. 14.00 og verða tefldar tvær umferðir á dag. Nánari upplýsingar í síma 5244 hjá Guðmundi Gíslasyni. Miðvikudagur 22. júní 1994 I FRÉTTABLAÐIÐ Gjaldþrot fyrir hádegi - nýtt fyrirtæki eftir hádegi - skuldirnar strikaðar út og jafnframt beöiö um áframhaldandi lánsviðskipti hjá þjónustufyrirtækjum Eins og menn vita er Póllinn hf. á ísafirði eitt af stærstu fyr- irtækjunum sem annast þjón- ustu við við útgerðar- og fisk- vinnslufyrirtæki hér um slóðir. Á undanförnum árum hefur Póllinn tapað miklum fjárhæð- um á gjaldþrotum fyrirtækja í sjávarútvegi og vinnslu. Hefur eigendum Pólsins (og fleiri þjónustufyrirtækja) stundum þótt einkennilegt að sjá sömu mennina halda áfram sama rekstri á sama stað með aðstoð sömu bankanna og sömu sjóð- anna eins og ekkert hafi í skorist, eftir að skuldirnar verið klipptar af með einu penna- striki með því að lýsa yfir gjaldþroti. í síðustu viku hringdi for- svarsmaður og aðaleigandi fiskvinnslufyrirtækis nokkurs hér vestra í Oskar Eggertsson framkvæmdastjóra Pólsins hf. og kvaðst vilja láta hann vita að hann væri einmitt núna að til- kynna fyrirtækið til gjaldþrota- skipta og yrði því ekki um frekari greiðslur að ræða á skuldum þess við Pólinn. Ósk- ari fannst virðingarvert í sjálfu sér að maðurinn skyldi hringja og láta vita um þetta og þakkaði honum fyrir. Síðar sama dag, fáum klukkutímum seinna^ hringdi sami maður aftur í Óskar og tjáði honum að nú væri búið að stofna nýtt fyrirtæki um rekst- urinn og bað um að fá að kom- ast aftur í lánsviðskipti hjá Pólnum. Það kom fram í sam- tali þeirra, að maðurinn ætti reyndar ekkert í nýja fyrirtæk- inu og væri í rauninni ekki í forsvari fyrir það, þótt hann væri að óska eftir þessari fyrir- greiðslu. Óskar neitaði. Hann benti á, að venjan væri sú að forsvars- menn fyrirtækja sæju um samninga um lánsviðskipti og annað slíkt sem viðkæmi rekstri þeirra. Ef um slíkt yrði að ræða, væri lágmarkið að einhverjir af skráðum eigend- um eða skráðum forráðamönn- um fyrirtækisins hefði sarn- band út af þessu máli. Enginn slíkur hafði haft samband við Pólinn þegar blaðið fór í prentun í dag. Lesendur: Löggur viö lögleysu eða samræmt sólarlag - Guðmundur Sigurðsson á Flateyri skrifar í frétt sem birtist í Vestfirska fréttablaðinu 8. júní sl. og ber yfirskriftina „Islenska fánann niður fyrir klukkan átta á kvöldin“ er tíundað að mikið hafi verið um fánadaga að undanförnu og mikið hafi verið að gera hjá lögreglunnni á Isa- firði við að taka niður fána hjá fólki. Þá segir: „Vill lögreglan minna fólk á að búið á að vera að taka niður íslenska fánann fyrir klukkan átta að kveldi nema þegar um einhverja sér- staka hátíð eða skemmtun er að ræða“. Það er auðvitað ekki verri venja en hver önnur hjá fólki að taka fána sína niður klukkan átta, en það að lögreglan skuli ætla að beygja samborgara sína undir einhverjar venjur í sínum fjölskyldum er vitanlega út í hött. Hverjum og einum er leyfilegt að umgangast íslenska fánann að eigin vilja, svo framarlega að það stangist ekki á við þær fánareglur sem gilda í landinu. I forsetaúrskurði um fána- daga og fánatíma frá 23. janúar 1991 segir svo í þriðju grein: „Fána skal ekki draga á stöng fyrr en klukkan sjö að morgni og skal hann að jafnaði ekki vera lengur uppi en til sólarlags og aldrei lengur en til miðnætt- is. Ef flaggað er við útisam- komu, opinbera athöfn, jarðar- för eða minningarathöfn, má fáni vera uppi lengur en til sól- arlags eða svo lengi sem athöfn varir, en þó aldrei lengur en til miðnættis.“ Það ætti því hverjum manni ljóst að vera, að allar alhæfing- ar um að taka eigi íslenska fán- ann niður klukkan átta eru gjörsamlega úr lausu lofti gripnar — nema því aðeins að lögreglan á Isafirði hafi gefið út rússneska fyrirskipun um að sólarlag á Isafirði verði fram- vegis klukkan átta og væri þá fróðlegt að vita hvort slík til- skipun gildi bara fyrir ísafjörð eða hvort reikna megi með samræmdu sólarlagi í allri sýslunni. Að lokum vil ég benda þess- ari ágætu fánalöggu á það, að menn sem ekki þekkja fána- reglurnar og flagga ekki eftir settum reglum á sínum stofn- unum eiga ekki að koma nálægt íslenska fánanum. Guðmundur Sigurðsson, Ólafstúni 5, Flateyri. Grunnvíkingabók Saga mannlífs og sveitar í Grunnavíkurhreppi, Guðrún Ása Grímsdóttir skráði. Grunnvíkinga- tal, Lýður Björnsson skráði. Eftirtalið fólk hefur ritið á boðstólum: Hlíf sími 4321, Ingi, sími 3646, Kristín, sími 3344, Rannveig, sími 3696, Valgerður, sími 3583. Einnigfœst ritið í Bókaverslun Jónasar Tómassonar. Leiðrétt- ingá upplýs- ingum í Símaskrá 1994 - tilkynning frá Veðurstofu íslands Slæm mistök hafa átt sér stað í nýrri símaskrá varðandi upplýsingar um símanúmer og sjálfvirka símsvara á Veðurstofu ís- lands. Á bls. 435 í Nafnaskrá hafa allar upplýsingar hliðrast nema þrjú efstu númerin, sem eru rétt. Á þessari síðu er einnig vitnað til bls. 1 til frekari upplýsinga um veður- fregnir, en þessar upplýs- ingar eru hins vegar á bls. 8 í Atvinnuskrá. Þar er einnig að ftnna eina staðinn í símaskránni þar sem allar upplýsingar eru réttar. I Stjórnsýsluskrá (bláar síður) hefur svæðisnúmeri alls staðar verið ranglega bætt framan við „grænu númerin“ sem byrja á 99. Veðurþjónusta við ferðafólk Snemma í júlí er ráðgert að taka upp sérþjónustu fyrir ferðamenn á sím- svara Veðurstofunnar. Verið er að þróa og móta þá þjónustu í samráði við Ferðamálaráð. Þar mun verða að finna veðurspá á ensku, ætlaða erlendum ferðamönnum, og íslensk- um ferðamönnum mun verða gert auðveldara að nálgast veðurupplýsingar fyrir þann landshluta sem þeir hafa áhuga á hverju sinni. Þessi þjónusta verð- ur nánar kynnt síðar. (Frá Veðurstofu Islands). ísafjörður: Innbrotí Sjallann Um hádegisbilið á sunnudag var tilkynnt til lögreglunnar á ísafirði að brotist hefði verið inn í veitingastaðinn Sjallann á ísafirði. Þar hafði verið farið inn og stolið nokkrum bjórdósum og brotið gler í kæli. Málið er í rannsókn. -GHj.

x

Vestfirska fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.