Feykir


Feykir - 29.08.1984, Page 3

Feykir - 29.08.1984, Page 3
MIÐVIKUDAGUR 29. ÁGÚST 1984 FEYKIR 3 Þríeyki Steinullarverksmiðjunnar situr fyrir svörum: Einar Einarsson framleiðslustjóri, Þorsteinn Þorsteinsson framkvæmdastjóri og Árni Guðmundsson stjórnarformaður. Steinullíii verður mun ódýrari en önnur einangrunarefni Unnið er af miklum krafti við byggingu verksmiðjuhússins og allar líkur á að verkið standist tímaáætlun. Rétt um kl. ellefu s.l. miðviku- dagsmorgun lenti Twin Otter vél á Sauðárkróksflugvelli með 15 frétta- menn og ljósmyndara innanborðs. Þegar mennirnir týndust út úr vélinni fór þar fremstur í flokki Þorsteinn Þorsteinsson framkvæmda- stjóri Steinullarverksmiðjunnar hf., en þessi fríði flokkur var kominn til Sauðárkróks í boði Steinullar- verksmiðjunnar hf. til að kynna sér málefni verksmiðjunnar og sjá með eigin augum bygginguna rísa út við Gönguskarðsárósa. Alveg frá upphafi hugmynda um steinullarverksmiðju á Sauðárkróki hafa Reykjavíkurfjölmiðlar lítt sinnt þessu máli, og þá fjallað verksmiðjuna af vanþekkingu og jafnvel fordómum. Stöðugt fækkar þó þeim röddum sem telja að steinullarverksmiðja sé óarðbært fyrirtæki, enda hefur rekstrar- grundvöllur hennar verið yfirfarinn af bæði innlendum og erlendum bankamönnum og rekstrarfræð- ingum. Niðurstaðan er alltaf sú sama. Steinullarverksmiðja er arð- bært fyrirtæki. Og þetta ætlaði Þorsteinn Þorsteinsson m.a. að segja reyk- vískum fréttamönnum. Fyrst var ferðinni heitið út á Eyri, þar sem verksmiðjuhúsið rís með ógnarhraða. Sýndi Þorsteinn og útskýrði teikningar af byggingum og útskýrði hvernig framleiðslan færi fram. Hráefnið er sandur sem verður blandaður með skeljasandi. Sandblandan er brædd í raf- bræðsluofni við 1450° C hita. Það er nýjung í þessum iðnaði að nota rafbræðsluofn, en hann er lokaður og veldur engri loftmengun. Erlendar verksmiðjur bræða flestar sín hráefni með koksi og eiga því við mengunarvandamál að glíma. Úr ofninum verður bráðin spunnin með nýrri tækni sem þróuð hefur verið í Danmörku og Svíþjóð, sem gerir kleift að ná úr ullinni hvimleiðum kúlum og sverum þráðum. Ullin verður því léttari og þægilegri í meðförum. Því næst verður ullin söguð þvers og langs, pakkað í rúllur og plötur, en afgangar verða notaðir í lausa steinull sem notuð er til að blása einangrun í veggi t.d. gamalla húsa. Pökkunarbúnaður verksmiðjunnar er þýskur og er frá fyrirtæki sem sérhæft hefur sig í pökkunarbúnaði fyrir glerullarverksmiðjur. Kælikerfi bræðsluofnsins verður notað til að hita upp húsnæði verksmiðjunnar. Fest hafa verið kaup á nýtísku tölvubúnaði til að stjórna verk- smiðjunni og verður hægt að stýra vélbúnaðinum frá einu stjórn- herbergi. Auk léttrar steinullar mun verksmiðjan framleiða allar teg- undir steinullar sem þörf er fyrir á íslenskum markaði, þar á meðal harðpressaðar plötur til grunn- og veggeinangrunar. Þorsteinn lýsti mikilli ánægju með að finnska fyrirtækið Oy Partek hefði gerst hluthafi í Steinullarverk- smiðjunni hf., því þeir byggju yfír langri reynslu af rekstri steinullar- verksmiðja og þaðan kæmi mikil og góð tækniþekking sem annars hefði verið erfitt að afla. Bygging verksmiðjunnar gengur núna samkvæmt áætlun, en fram kom hjá Þorsteini að betra hefði verið að vera örlítið á undan þar sem einn verktaki tekur við af öðrum og því mikilvægt að verkáætlanir standist. Áætlaði hann að húsið færi undir þak í nóvember eða desember þegar stálgrind verður sett ofan á veggina. Grunnflötur hússins er 3.100 m2 en rúmmál 31.500 m3, þannig að lofthæð er mikil. Þar sem húsið er hæst verður það um 20 m og reykháfur um 40 m. Kostnaður við byggingar er áætlaður um 65 milljónir króna og við vélbúnað o.fl. 185 millj. kr.. sem þýðir að heildarkostnaður verðum um 250 milljónir króna. Áætlað er að verksmiðjan hefji framleiðslu eftir u.þ.b. eitt ár, þ.e. næsta sumar. Steinullin ódýrari „Ef einhvers staðar er hagkvæmt að reisa einangrunarverksmiðju þá er það á Islandi,” sagði Þorsteinn á blaðamannafundi sem haldinn var að lokinni skoðunarferð um byggingarsvæði verksmiðjunnar. Þorsteinn upplýsti að vegna flutningskostnaðar og annarra gjalda ferfaldast verð á innfluttri steinull á leið sinni frá Norðurlönd- unum til íslands. Á sama hátt þrefaldast verð glerullar. Þá sagði hann athuganir benda til þess að einangrunarplast sé verulega dýr- ara hér á landi en í nágrannalönd- unum. Þorsteinn fullyrti að vörur Steinullarverksmiðjunnar hf. myndu verða á mun lægra verði en þau einangrunarefni sem í boði eru á markaðnum. Setti hann upp dæmi um meðaleinbýlishús, en í það taldi hann þurfa um 50 rúmmetra af einangrunefnum. Á núgildandi verði myndi sú einangrun kosta um 100 þúsund kr. Hins vegar áætlar hann að verð á sama magni af steinull muni kosta um 65 þúsund kr. Verðmunur nemur því sem næst 35%. „En hvernig ætlið þið að keppa við glerullina?” spyr einhver. Og ekki stendur á svari: Við verðum ódýrari! Verð á glerull hefur farið lækkandi vegna samdráttar í byggingariðnaði í Skandinavíu og er glerull seld til Islands á mun lægra verði en í framleiðslulandinu. Taldi Þorsteinn að þó svo glerullarframleiðendur myndu bregð- ast þannig við samkeppninni að þeir lækkuðu verðið enn frekar, þá myndu þeir aldrei ná að vera með jafn ódýra vöru og íslenska steinull. Afgerandi kostir steinullar I útreikningum Steinullarverk- smiðjunnar hf. er gert ráð fyrir því að hún muni ná 70-75% af innlendum einangrunarmarkaði á þremur árum. Gert er ráð fyrir að sala fyrsta árið verði um 2.500 tonn en aukist síðan um allt að helming á nokkrum árum. Framleiðslugeta verksmiðjunnar er hins vegar 6.000 tonn. Opinberar kröfur til einangrunar húsa hafa verið auknar og boðað hefur verið átak til einangrunar gamalla húsa. Markaður fyrir einangrun fer því vaxandi. Þorsteinn sagðist telja það skipta miklu máli að steinull hefði afgerandi kosti umfram aðra einangrun bæði sem brunavörn og hljóðvörn. (Glerull brennur við ca 300°, steinull við ca 1000°). Þetta tvennt ásamt lægra verði ætti að tryggja verksmiðjunni yfirburði á íslenskum einangrunarmarkaði í framtíðinni. Hátt raforkuverð „Við sendum rekstraráætlanir okk- ar til danskra sérfræðinga. Um leið og þeir höfðu farið yfir útreikninga okkar höfðu þeir samband við okkur og vildu fá það staðfest að raforkuverðið væri rangt reiknað, það hlyti að vera allt of hátt metið. Og þeir urðu steinhissa þegar við staðfestum að svona hátt væri raforkuverðið, því þeir höfðu staðið í þeirri trú að ódýrara væri að framleiða rafmagn með vatnsafli en olíu eða kolum eins og gert er í Danmörku.” Þorsteinn sagði enn- fremur að miðað við núverandi gjaldskrár rafveitna væri verðið um 90 Mills fyrir hverja kílówattstund með verðjöfnunargjaldi og sölu- skatti. Miðað við þetta verð er raforkan 15% af framleiðsluverði verksmiðjunnar. Til samanburðar má geta þess að þetta er um 10 sinnum hærra (850%) verð en álverið í Straumsvík greiðir fyrir sína raforku og um 350% hærra en áætlaður framleiðslukostnaður frá nýjum virkjúnum. Iðnaðarráðherra hefur verið skrifað vegna þessa máls og óskað eftir því að fá lægra orkuverð. Erlend lán án bakábyrgðar Á Islandi hefur frá upphaft verið deilt um hagkvæmni steinullarverk- smiðju, meira að segja er enn verið að skrifa leiðara í blöð í Reykjavík þar sem þessi framkvæmd er fordæmd og talin óráðsía. Slík skrif byggjast reyndar á ótrúlegri vanþekkingu, sem best másjá af því að verksmiðjan tók útflutningslán í Finnlandi vegna vélakaupa fyrir 75 milljónir. Finnskur banki ábyrgðist þetta lán, án bakábyrgðar á Islandi, eins og venjan er, einfaldlega vegna þess ,að þeim leist vel á rekstrar- grundvöll verksmiðjunnar og töldu líkur á að hún myndi standa í skilum. ,,Og yfirleitt hafa erlendir bankar tekið okkur betur en íslenskir,” sagði Þorsteinn Þor- steinsson. Smásalan í höndum fjögurra aðila Steinullarverksmiðjan hf. mun ekki selja vöruna beint til neytenda heldur til fjögurra stórfyrirtækja sem sjá um smásöluna. I Reykjavik eru það Byko, JL-húsið og Húsasmiðjan, en úti um land sér Samband íslenskra samvinnufélaga um dreifinguna og skuldbindur Sambandið sig til að hætta sölu á annarri einangrunarull. Þorsteinn taldi að lagerkostnaður vegna steinullar myndi lækka talsvert hjá þeim sem selja, þar sem afgreiðslu- frestur yrði mun styttri en tíðkast hefur. Stærð verksmiðjunnar er miðuð við innlendan markað þar sem ekki var talið arðbært að framleiða steinull til útflutnings. Fljótlega verður byrjað að ráða um 35 starfsmenn til verksmiðjunn- ar. Blaðamenn voru fluttir til Sauðárkróks með leiguflugvél sem beið eftir þeim á meðan þeir kynntu sér málefni Steinullarverksmiðjunnar. Þessi fjolmiðlaað- gerð hcppnaðist vel: viðtöl i útvarpi og sjónvarpi og jákvæðar greinar í dagblöðum.

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.