Feykir


Feykir - 31.07.1985, Qupperneq 1

Feykir - 31.07.1985, Qupperneq 1
15/1985 31. júlí 1985 Feykir 15. tölublað, 5. árgangur ÓHÁÐ FRÉTTABLAÐ FYRIR NORÐURLAND VESTRA Steimdlarverksmiðjan: Samningar að takast Allt útlit er nú fyrir að samningar séu að takast milli Vinnuveitendasambandsins fyr- ir hönd Steinullarverksmiðj- unnar hf og samninganefndar verkalýðsfélaganna í Skagaflrði. Þegar Feykir fregnaði eftir gangi mála nú í byrjun vikunnar lá uppkast af samningi fyrir og hafa samninganefndirnar haft það til umfjöllunar nú undan- farna daga. Munu samninga- nefndirnar koma saman í dag, miðvikudag, og fjalla nánar um málið. Ekki vildu samninganefnd- armenn gefa neitt upp um innihald samningsins á þessu stigi, en þó gera menn sér vonir um að samningar takist endan- lega nú í þessari viku. Að sögn samninganefndar- manna hafa þessar samninga- viðræður verið tímafrekar og mikið borið á milli þar til nú að hilla virðist undir samkomulag. Mun megin áherslan af hálfu samninganefndar verkalýðsfélag- anna hafa verið lögð á að ná sem hliðstæðustum samningum og tíðkast hjá ríkisverksmiðj- unum svokölluðu, þ.e. Sements- verksmiðjunni, Áburðarverksmiðj- unni, Kísiliðjunni og Jámblendi- verksmiðjunni á Grundartanga. Samninganefnd Vinnuveitenda- sambandsins mun hins vegar hafa lagt á það áherslu aðsamn- ingarnir tækju mið af hinum almennu samningum ASÍ og VSI. Eins og áður sagði ber þar töluvert á milli en eftir því sem Feykir kemst næst munu samningsdrög þau er nú liggja fyrir vera í meginatriðum hliðstæð ríkisverksmiðjusamn- ingunum. Gylfi Þórðarson framkvæmda- stjóri Sementsverksmiðju ríkis- ins sagði í samtali við Feyki að Framleiðsla að hefjast Rafbræðsluofninn í Steinullar- verksmiðjunni á Sauðárkróki var gangsettur í fyrsta sinn á föstudagskvöldið var. Árni Guðmundsson stjórnarformað- ur Steinullarfélagsins og for- maður stjórnar verksmiðjunnar gangsetti ofninn eftir að starfs- menn verksmiðjunnar höfðu unnið dag og nótt undanfarið við lokauppsetningu tækja og frágang þeirra. samningar þeirra væru sniðnir eftir samningunum við verk- smiðjuna á Grundartanga. Að sögn Gylfa munu byrjunarlaun verkamanns við Sementsverk- smiðjuna vera 26 - 28 þúsund krónur á mánuði með yfirvinnu og bónusgreiðslum og byrjunar- laun iðnaðarmanns hjá verk- smiðjunni væru 35 - 38 þúsund krónur. Gylfi tók þó fram að þessar tölur væru i reynd viðmiðunartölur, því flestir starfsmenn verksmiðjunnar væru komnir með starfsaldurshækk- anir og raunveruleg laun þeirra því nokkuð hærri en þessar tölur gæfu til kynna. Einar Einarsson verksmiðju- stjóri sagði í samtali við Feyki að til áramóta yrði um tilrauna- framleiðslu á 600-800 tonnum af steinull að ræða, en hámarks- afköstum, 6000 tonnum, yrði náð með stigaukinni framleiðslu á næstu 3 árum. „Fyrstu steinullartjásurnar ættu að koma í ljós í lok næstu viku ef allt gengur að óskum,” sagði Einar verksmiðjustjóri. Smálaxinn kominn Það var upp úr miðjum júlí sem smálaxinn fór að ganga í margar veiðiár í Húnaþingi, og í sumum ánum hefur síðan verið afbragðsgóð veiði og mikil laxagengd. Undantekning er þó Víðidalsá en þar hefur veiði verið mjög treg og veiddist t.d. nær ekkert í ánni í síðustu viku né nú um helgina. í Vatnsdalsá og Miðfjarðará hefur hins vegar verið mikil smálaxaganga. Upp á síðkastið er algengt að kvótinn sé fylltur í Laxá á Ásum, en það eru 20 laxar á stöng yfir daginn, en fyrri hluta sumars kom fyrir að veiðmenn snéru frá öngulsárir eftir daginn og hefur slíkt verið næsta fátítt undanfarin ár. Þá hefur verið afbragðsgóð veiði í Blöndu og einnig hefur Hrútafjarðará verið gjöful það sem af er. Veiði í einstökum ám var orðin þessi á mánudag: Hrúta- fjarðará um 100 laxar, Mið- fjarðará losar 300, Víðidalsá 223, Vatnsdalsá tæpir 300, Laxá á Ásum 770, Laxá ytri 40, Hallá 51, Blanda 402, Svartá 20, Laxá í Laxárdal um 40, Sæmundará um 80 og Húseyjarkvísl 45 laxar. Árni Guðmundsson Einarsson. og Einar 390 mlUjónir í skatta Heyskapur mislangt kominn Heyskapur er mjög misjafn- lega á veg kominn í Húnaþingi og Skagafirði. Hjá þeim bænd- um er hófu slátt að ráði í júní er heyskapur vel á veg kominn og sumir bændur búnir með fyrri slátt. Þá eru þeir sem verka sitt hey aðallega í vothey, en það gera margir bændur Vestur- Húnavatnssýslu og á utanverð- um Skaganum, flestir búnir með heyskap og sumir þeirra fyrir nokkru síðan. Þeir náðu að slá grasið á kjörstigi og eru því með afbragðsgott fóður. Það sem er óslegið nú getur ekki orðið gott fóður, því það er víðast orðið úr sér sprottið og trénað. Aðalbjörn Benediktsson ráðunautur á Hvammstanga sagði í samtali við Feyki að þetta væri sama sagan ár eftir ár. Þeir sem byrjuðu slátt í júní næðu góðum heyjum, svo og þeirsem verka í vothey. Hinir lenda alltaf meira og minna í óþurrkum sem eru að verða árvissir í júlímánuði og ná því ekki að slá mikið af sínum túnum fyrr en þau eru orðin úr sér sprottin. „Það verður hroðalegt fóður af þeim túnum sem nú eru óslegin,” sagði Aðalbjörn. Skattskrá Norðurlandsumdæm- is vestra kom út í síðustu viku og samkvæmt henni munu einstak- lingar í umdæminu greiða 311 milljónir 624 þúsund krónur í opinber gjöld á árinu. Álagning á félög og fyrirtæki nemur 77,509 milljónum króna. Hækk- un milli áranna 1984 og 1985 í álögðum gjöldum á einstaklinga nemur 30,4%. Hækkun á gjöldum fyrirtækja nemur 35,9%. Af þessum tæplega 312 mill- jónum er einstaklingar greiða nemur tekjuskattur 121,114 milljónum og er um 25,8% hækkun á tekjuskatti að ræða milli ára að sögn Boga Sigurbjörnssonar skattstjóra á Siglufirði. Útsvör eru 151.557 milljónir og hækka þau um 33,46% frá síðustu álagningu. Fjöldi einstaklinga er greiða opinber gjöld í ár í umdæminu er 2982 á móti 3020 á síðasta ári. Einstaklingar er greiða eigna- skatt eru 1305 og hefur fækkað jm 2 frá því í fyrra. Eignaskattur einstaklinga nem- ur 7,292 milljónum í ár en var í fyrra 5,769 milljónir. Aðstöðu- gjöld einstaklinga nema 11,572 milljónum á móti 9,104 milljón- um í fyrra. Tiu efstu gjaldendur meðal einstaklinga í umdæminu eru þessir: Sveinn Ingólfsson framkvæmda- stjóri Skagaströnd 803.721 krónur. Jón Dýrfjörð vélvirkja- meistari Siglufirði 801.988 kr. Guðjón Sigtryggsson skipstjóri Skagaströnd 750.145 krónur. Erlendur Hansen iðnrekandi Sauðárkróki 694.976 krónur. Kristinn Gunnarsson lyfsali Siglufirði 608.404 krónur. Einar Þorláksson kaupmaður Blöndu- ósi 592.271 krónur. Ólafur Sveinsson yfirlæknir Sauðár- króki 565.035 krónur. Lárus Ægir Guðmundsson framkvæmda- stjóri Skagaströnd 545.626 krónur. Geir Þ. Zoega verk- smiðjustjóri Siglufirði 521.655 krónur. Ása G. Guðjónsdóttir læknir Siglufirði 495.395 krónur. Hæstu gjaldendur félaga eru eftirfarandi: 1985 Kaupfélag Skagfirðinga Sauð- árkróki 9.316 milljónir. Síldar- verksmiðja ríkisins Siglufirði 3,827 milljónir. Kaupfélag A - Húnvetninga 3,405 milljónir. Þormóður Rammi hf. Siglufirði 2,724 milljónir. Sparisjóður Siglufjarðar 2.651 milljónir. Kaupfélag Vestur-Húnvetninga Hvammstanga 2,376 milljónir. Skagstrendingur hf Skagaströnd 1,810 milljónir. Hraðfrystihúsið hf Hofsósi 1.798 milljónir. Sigló hf Siglufirði 1.787 milljónir Útgerðarfélag Skagfirðinga 1,668 milljónir. Hólanes hf Skaga- strönd 1.589 milljónir. Sauðárkrókur: Lægstar meðaltekjur Samkvæmt upplýsingum skatt- stjórans á Siglufirði, Boga Sigurbjörnssonar, greiða ein- staklingar á Sauðárkróki læe* útsvar til jafnaðar á einstakl: íg. eða 25.570 krónur. Samkvæmt þessu virðist því mega ætla að meðaltekjur á einstakling á Sauðárkróki séu lægstar miðað við aðra þéttbýlisstaði kjördæm- isins. Að sögn skattstjórans er um sömu álagningarprósentu útsvars að ræða á öllum þéttbýlisstöðunum eða 11% af heildartekjum einstaklings. Á Siglufirði er meðalútsvar á einstakling 26.600 krónur. Á Hvammstanga er meðalútsvarið 21.', 40 krónur á einstakling. A .önduósi er meðalútsvarið 26.280 krónur. Á Skagaströnd er meðalútsvarið 35.810 krónur á einstakling. .a Hofsósi er meðalútsvarið 26.210 krónur. Sauðárkrókur er því ópm- deilanlega lægstur hvað varðar meðalútsvar, þó útsvarstekjur bæjarfélagsins séu hæstar ef heildartölur eru bornar saman. Munurinn á hæsta og lægsta meðalútsvari kjördæmisins, á Skagaströnd annars vegar og Sauðárkróki hins vegar, er því hvorki meira né minna en rúm fjörutíu prósent.

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.