Feykir - 31.07.1985, Side 3
15/1985 FEYKIR 3
Leikfélag Blönduóss í leikför til Norðurlanda
„Frábær fyrirgreiðsla og hjálp-
semi mætti okkur hvarvetna”
Hópurinn fyrir framan íþróttahöllina í Moss, tilbúinn til brottfarar.
„Það voru margir ráðamenn í
Karlstad og Moss alveg undr-
andi hve mikilúðlegt og vandað
leikrit áhugamenn úr litlu þorpi
upp á Islandi gætu sýnt og farið
með í leikför til annarra landa”,
sagði Benedikt Blöndal formað-
ur Leikfélags Blönduóss að
lokinni leikför félagsins nú í vor.
„Eg vona að þessi ferð okkar
hafi haft gildi fyrir vinabæjar-
tengsl Blönduóss við þessa bæi í
Svíþjóð og Noregi. Fyrir félaga
Leikfélagsins hafði förin mikið
gildi því við kynntumst mörgu
og sáum margt og var ferðin í
heild mjög ánægjuleg. Hvar-
vetna hlutum við frábærar
móttökur, veðrið var dásamlegt
og mikil samstaða í hópnum. í
öllum félögum er kjarni, sem ber
starfið uppi og unnt er að þræla
út í hvað sem er fyrir félagið.
Þessi kjarni stækkaði að mun við
ferðina og er nú félagið mun
betur í stakk búið til þess að
takast á við stór verkefni. Hinu
er hins vegar ekki að leyna að
þessi ferð varð mjög dýr og erum
við nú með langan skuldahala á
eftir okkur. Þann hala munum
við saxa á m.a. með því að setja
upp leikrit strax í haust”.
Ólíkar aðstæður
Eins og áður hefur komið fram í
Feyki sýndi Leikfélag Blöndu-
óss Skugga-Svein á Húnavöku
í vetur en í endaðan maí fór
félagið með verkið í leikför til
Noregs og Svíþjóðar. í hópnum
voru 42 þátttakendur, leikarar
starfsmenn við sýninguna mak-
ar og börn auk fulltrúa
Blönduóshrepps sem fór með
vegna þess að verið var að
heimsækja vinabæi Blönduóss.
Moss í Noregi er 25 þúsund
manna bær en Karlstad í
Svíþjóð er af svipaðri stærð og
Reykjavík. Eru því aðstæður í
þessum bæjum um margt ólíkar
því sem gerist á Blönduósi og
hugsunarháttur annar.
Eins og gamall Húnvetningur
Benedikt Blöndal formaður
leikfélagsins sagði blaðamanni
helstu þætti úr ferðasögunni og
fer frásögn hans hér á eftir.
Við flugum frá Ketlavík beint
til Oslóar. Þar sýndum við
leikritið í fyrsta sinn á vegum
Islendingafélagsins í Osló. Hlut-
um við mjög góðar móttökur hjá
félaginu m.a. ákvað einn
stjórnarmanna félagsins, Hall-
dór Júlíusson að taka sér viku frí
úr vinnu og fylgja okkur til
Karlstad og Moss. Hann á og
ekur sendiferðabíl og lagði hann
til ferðarinnar og flutti öll
leiktjöldin. Auk þess var hann
túlkur, reddari í ýmsum málum
og hrókur alls fagnaðar. Veit ég
raunar ekki hvernig farið hefði
ef hann hefði ekki tekið það upp
hjá sjálfum sér að ferðast með
okkur, en þetta er bara eitt
dæmið um frábæra fyrirgreiðslu
og hjálpsemi sem við urðum víða
aðnjótandi í okkar ferð.
Annar maður, hinn norski
Sven Arne sem í fyrra kenndi
Húnvetningum tónmennt greiddi
einnig mjög götu okkar í Osló.
Hann er nú starfandi blaða-
maður hjá Verdens Gang í
Osló. Það var eins og að hitta
gamlan Húnvetning þegar hann
tók á móti okkur á flugvellinum
enda komst hann i mjög gott
samband við lífið hér með veru
sinni í fyrravetur.
I Osló gistum við í tvær nætur.
Vorum við þá dreift um borgina
á heimilum Islendinga, tvö til
fjögur á stað. A sýninguna
komu aðallega íslendingar og að
henni lokinni bauð Islendinga-
félagið okkur upp á kaffi og var
þar skemmtilegt að koma.
Flott leikhús
Síðan var haldið til Svíþjóðar
með rútu. I Karlstad var búið að
skipuleggja alla dagskrá fyrir-
fram og hófst dvölin þar með því
að forráðamenn bæjarins tóku á
móti okkur og kynntu okkur
fyrirhugaða dagskrá. Síðan var
gist á farfuglaheimili í borginni.
Næsta dag var farið með
okkur í skoðunarferð um
borgina. Sáum við þar merkilegt
listasafn, bókasafn og sitthvað
fleira, sem of langt væri upp að
telja. Var dagurinn allur mjög
skemmtilegur, en um kvöldið
sýndum við Skugga-Svein. Var
sýningin í mjög flottu húsi og
var aðstaða þar öll til fyrir-
myndar. Að lokinni sýningu var
athöfn þar sem þeir tluttu ræður
er vildu og varskipst áfánum og
merkjum. Þarna komu ýmsir
sem höfðu áhuga á að hitta
okkur m.a. félagar úr áhuga-
mannaleikhóp í bænum, for-
svarsmenn bæjarfélagsins, Nor-
rænafélagsins á staðnum og
ýmsir fleiri. Drukkum við svo
saman kaffi, bjór og átum kökur
með og var þetta hin besta
stund.
Daginn eftir var farið í
skoðunarferð inn í sveitina. Þar
sáum við m.a. safn Selmu
Lagerlöf og margt fleira merki-
legt. Síðan er aftur var komið til
bæjarins sáum við verk hjá
áhugamannaleikhóp ástaðnum.
Var það mjög gott verk og
skemmtilegt þó vissulega væri
erfitt að fylgja söguþræði
Svíanna. En það varð líka til þess
að við skildum enn betur vanda
þeirra að fylgjast með hvað
okkar Skugga-Sveinn var að
segja, en söguþráðinn fengu þeir
þar sem hann var birtur í
leikskrá á norsku og stund gefin
til lestrar meðan skipt var um
svið.
Hápunktur ferðarinnar
Sunnudaginn annan júní fórum
við til Moss í Noregi. Þar
höfðum við einnig aðsetur á
farfuglaheimili, mjög skemmti-
lega búnu heimili og í næsta
nágrenni við það var mikil
íþróttahöll og sundlaug. Þar var
einnig matsala og ýmis önnur
þjónusta.
Fljótlega eftir komu okkartil
Moss mætti þjóðdansafélag
bæjarins og efndi til þjóðdansa-
sýningar sem var mjög skemmti-
leg. Síðan var farið á fótbolta-
leik og var hann hápunktur
ferðarinnar hjá þeim fótbolta-
sjúku. Svona er þetta. Ahuga-
málin eru fjölmörg og misjöfn
og ferðin í heild var mjög
fjölþætt þannig að allir fengu
eitthvað frábært við sitt hæfi.
Næsta dag voru mikil hátíða-
höld sett í Moss. Er það
nokkurskonar Húnavaka þeirra
Mossbúa, en þó fór mikið af
hátíðahöldunum fram úti. Þessi
hátíðahöld standa i viku.
Setningarathöfnin var frábær.
Þar var mikil skrúðganga,
söngur og lúðrasveit hersins lék
með þeim sérimoníum sem
slíkum sveitum fylgja.
Þau úuðu á sýslumanninn
Þann fjórða júní sýndum við svo
Skugga-Svein á þessum hátíðis-
dögum þeirra Mossbúa. Sýning-
in var kl. eitt eftir hádegi. Þar
mætti borgarstjórinn ásamt
fleiri fyrirmönnum og einnig
kom þangað hópur af skóla-
krökkum, sem trúlega hefur
verið gert að skyldu að koma á
sýninguna. Það var mjög
skemmtilegt að leika fyrir
þennan hóp og tóku krakkarnir
mikla afstöðu með útilegu-
mönnunum í leiknum. Og að
sýningu lokinni klöppuðu þau
vel og lengi fyrir þeim. en úuðu
þegar sýslumaður birtist á
sviðinu.
Um kvöldið héldum við
lokahóf ferðarinnar í einu
veisluhúsi borgarinnar. Höfð-
um við þar hliðarsal fyrirokkur
og okkar gesti, þó þannig að
aðrir gestir veitingahússins urðu
eitthvað varir við hvað þarna fór
fram. Vakti söngur okkar og
kátína nokkra athygli, m.a.
gerði leikfélagskvartettinn mikla
lukku, en hann söng þarna
hástöfum kunn íslensk lög og
raunar undu menn þarna við
söng og gleðskap mjög lengi
kvölds.
Næsta dag dreifðist hópurinn,
enda verkefninu lokið. Sumir
fóru heim en aðrir dvöldu lengur
úti, fóru í heimsóknir til vina og
vandamanna eða héldu áfram
að ferðast. En nú eru allir
komnir og bíðum við nú
haustsins til þess að takast á við
næstu verkefni.
Allir glaðir
Að ferðalokum má segja að þessi
ferð hafi tekist mjög vel. Við
renndum mjög blint í sjóinn með
það út í hvað við værum að fara
og á hvern hátt yrði tekið á móti
okkur. Raunar höfðum við mjög
lítið heyrt frá Norðmönnununum
en Svíarnir voru búnir að senda
okkur nákvæma dagskrá.
Við vorum búnir að afla
okkur mikilla upplýsinga um
svona ferðir hjá þeim sem revnt
höfðu. Flestir töldu hópinn allt
of stóran hjá okkur og þetta yrði
allt of þungt í vöfum. En raunin
varð sú að öll vandamál er upp
komu leystust vel og allir komu
aftur glaðir og ánægðir. Farar-
stjóri var Sveinn Kjartansson og
stóð hann sig með stakri prýði.
Þar með látum við lokið að
endursegja frásögn Benedikts
Blöndals formanns Leikfélags
Blönduóss.
Eitt hundrað ára afmæli
Hólmfríður Sigfúsdóttir Sauð-
árkróki varð 100 ára þann 22.
júlí sl. Hólmfríður er fædd á
Krakavöllum í Flókadal árið
1885, dóttir hjónanna Sigfúsar
Bergmanns Jónssonar og
Margrétar Jónsdóttur. Bæði
ættuð úr Svarfaðardal. Hólm-
fríður fluttist á barnsaldri með
foreldrum sínum að Hóli í
Siglufirði og þaðan út á
Siglunes. Eftir fermingu var
Hólmfríður barnfóstra hjá
séra Bjarna Þorsteinssyni
tónskáldi og presti á Siglufirði
en réðst síðan vinnukona að
Reynistað um tveggja ára
skeið.
Árið 1908 giftist Hólmfríður
Steini Sölvasyni, syni Sölva
Gottskálkssonar og Sigur-
laugar Þorleifsdóttur frá Siglu-
nesi.
Hólmfríður Sigfúsdóttir elsti
borgari Sauðárkróks.
Þau bjuggu að Læk í
Viðvíkursveit unt 3 ára skeið
en festu síðan kaup á hálfri
Ásgeirsbrekku árið 1912. Mann
sinn Stein missti Hólmfríður
það sama ár en bjó áfram á
Ásgeirsbrekku með son sinn
Martein og móður sína
Margréti. Hólmfríður gerðist
síðan ráðskona hjá bróður
sínum Jóni á Ásgeirsbtekku
og síðar á Langhúsum en
fluttist síðan í Kolbeinsdal,
þar til hún gerðist ráðskona
hjá Marteini svni sínum á
Ásgeirsbrekku.
Arið 1947 fluttist Hólmfríð-
ur til Sauðárkróks og hefur
verið þar búsett síðan hjá
Marteini Steinsyni svni sínum.
fyrrverandi kennara á Sauðár-
króki. Síðastliðið ár hefur
Hólmfríður dvalist á Sjúkra-
luisi Skagfírðinga á Sauðár-
króki og notið þar góðrar
umönnunar lækna og hjúkr-
unarfólks.
Feykir óskar Hólmfríði og
aðstandendum hennartil ham-
ingju með þetta merkisafmæli.
Halldór Júlíusson „pabbi” hópsins, afhendir Sveini Kjartanssyni
fararstjóra, blóm í kveðjuhófi í Moss.