Feykir - 05.11.1986, Side 8
Öll almenn
prent- og
Ijósritunar-
þjónusta
Verið veikomin
3/113
PRENTÞJÓNUSTA
SÍMI 5711
5. nóvember 1986
Feykir
22. tbl. - 6. árg.
Sími „ ™'!.. FARSÍMI
5821 Sauðarkrokl 985 20076
Húnaflói:
Slæmt útlit með
rækjuveiði
Sauðárkrókur:
Nýtt vélaverkstæði
Mjög slæmar horfur eru nu
með rækjuveiði á Húnaílóa í
vetur. Tveir leiðangrar hafa
verið gerðir til rækjuleitar í
flóanum, en lítið fundist. Seinni
leitin fór fram í síðustu viku og
tóku fimm heimabátar þátt í
henni auk skips frá Hafrann-
sóknarstofnun. Þessa dagana er
verið að vinna úr niðurstöðunum
og verða þær kynntar heima-
mönnum einhvern næstu daga,
og þá um leið verður væntanlega
kynnt ákvörðun ráðuneytisins
um leyft veiðimagn í flóanum
verður.
Ingvar Hallgrímsson hjá
Hafrannsóknarstofnun sagði að
aðalástæðan fyrir þessu slæma
útliti væri sú mikla fiskgengd
sem að undanförnu hefði verið
fyrir Norðurlandi. Það væri
mikið magn af rækju sem ungi
þorskurinn æti og „það er ekki
einungis að þorskurinn éti
rækjuna heldur splundrar hann
rækjutorfunum líka. Það má
Iíkja þessu við það, þegar
minkur kemst í hænsnabú”
sagði Ingvar. Algengt er líka að
þorskurinn hrekji rækjuna inn í
þrönga firði, þannig mun það
t.d. hafa verið í fyrravetur þegar
aðalveiðin var innst í fjörðunum.
Það mun hafa alvarleg áhrif á
atvinnu við Húnaflóa, ef
rækjuveiði verður treg í vetur.
Það eru yfir 20 bátar gerðir út til
rækjuveiða á flóanum og þrír til
fjórir menn eru á hverjum báti.
Þá mun þetta einnig bitna á
vinnslunni í landi þó það verði
ekki eins alvarlegt hjá þeim
stöðvum sem hafa skip er stunda
úthafsveiðar.
(mó)
Nokkrir aðilar á Sauðárkróki
hafa stofnað hlutafélag um
rekstur vélaverkstæðis á Sauðár-
króki, og hefur það hlotið nafnið
Vélsmiðja Sauðárkróks.
Helstu hluthafar eru þeir
Haraldur Guðbergsson, Gunnar
Gunnarsson, Guðmundur Olafs-
og
son, Árni Ingimundarson
Blikk og pípulagnir.
Verkstæðið verður í nýbygg-
ingu þeirri sem Blikk og
pípulagnir hafa reist við Borgar-
flöt. Aætlað er að reksturinn geti
hafist fyrripart nóvember mánaðar.
(ivj)
Sauðárkrókur:
Kærkomin gjöf
A .-Húnavatnssýsla:
Einn prestur
Um þessar mundir er aðeins
einn prestur starfandi í Austur-
Húnavatnssýslu, en þar eiga að
vera þrír prestar. Enginn sótti
um Bólstaðarprestakall síðast
þegar það var auglýst og þjónar
sr. Guðni Þór Olafsson prestur á
Melstað í Miðfirði því presta-
kalli öllu. Þá hefur enginn
prestur verið á Skagaströnd
síðan sr. Oddur Einarsson fór
þaðan í sumar og gerðist
bæjarstjóri í Njarðvík. Presta-
kallið var auglýst og sótti einn
um en dró síðan umsóknina til
baka. I vetur mun sr. Arni
Sigurðsson sóknarprestur á
Blönduósi þjóna Höfðapresta-
kalli, en það mun verða auglýst
síðar í vetur.
(mó)
Síðastliðinn mánudag færði
Búnaðarbanki Islands á Sauðár-
króki Fjölbrautaskólanum kær-
komna gjöf. Um er að ræða
stækkaða gerð af PC tölvu
ásamt prentara.
Um tilefni gjafarinnar sagði
Gestur Þorsteinsson, sem nú
gegnir stöðu bankastjóra í
veikindum Ragnars Pálssonar:
„Frá upphafi hefur það verið
stefna útibúsins að vinna
héraðinu og bænum vel, og þetta
er eitt lítið skref á þeirri
vegferð”.
Að sögn Olafs J. Arnbjörns-
sonar aðstoðarskólameistara kemur
þessi gjöf sér afar vel fyrir
skólann, ekki síst í ljósi þeirrar
staðreyndar að ekki hefur
fengist nein fjárveiting á fjár-
lögum undanfarin þrjú ár til
tækjakaupa. Ólafur sagði enn-
fremur að tölva þessi yrði
einkum ætluð til nemenda-
bókhalds, auk þess sem hún
kæmi vafalaust til með að nýtast
til fleiri hluta.
Að lokum vildi Ólafur koma á
framfæri sérstöku þakklæti til
Ragnars Pálssonar og Búnaðar-
bankans fyrir þann velvilja sem
skólanum væri sýndur með
þessari höfðinglegu gjöf. Ögj)
Þann 28. okt. sl. fór fram á
Hofsósi haustfundur þéttbýlis-
sveitarfélaga á Noiðurlandi vestra
þar sem fulltrúar þeirra vom mættir
til að ræða ýmis hagsmunamál
sín á milli. Fundir þessir eru
haldnir tvisvar á ári, að vori og á
haustin.
Þrír fulltrúar frá hverju
sveitarfélagi, Hvammstanga, Blönd-
uósi, Skagaströnd, Sauðárkróki,
Hofsósi og Siglufirði, eiga
formlegan seturétt á þessum
fundum auk þess sem þeir eru
opnir öllum sveitarstjómarmönn-
um frá þessum stöðum.
Aðalumræðuefni fundarins
var um ferðamál í kjördæminu
og í því tilefni mættu á fundinn
ÓIi J. Ólafsson ferðamála-
Sauðárkrókur:
Og enn um sorpbrennsluna
Á fundi í bæjarstjórn Sauðár-
króks þann 28. okt. sl. var
samþykkt að falla frá byggingu
sorpbrennsluofns í landi Hellu-
lands í Hegranesi, en eins og
kunnugt er affréttum komu upp
deildar meiningar um staðsetningu
hans í kjölfar síðustu bæjar- og
sveitarstjórnarkosninga. Fyrri
hreppsnefnd Rípurhrepps hafði
samþykkt fyrirhugaða staðsetn-
ingu og hafði allra tilskyldra
leyfa verið aflað. í kjölfar
kosninganna óskaði núverandi
hreppsnefnd eftir því að málið
yrði tekið upp að nýju og með
bréfi til bæjarstjórnar Sauðár-
króks nú fyrir skömmu hafnaði
hún alfarið að sorp yrði urðað í
nágrenni við ofninn. Á grund-
velli þessarar afstöðu hætti
bæjarstjórnin við öll frekari
áform eins og fyrr greindi.
í þessu tilefni snéri blaða-
maður sér til Ólafs Jónssonar á
Hellulandi og innti hann eftir
viðbrögðum þeirra Hellulands-
eigenda, en á sínum tíma hafði
verði gengið frá því við þá að
þeir afhentu viðkomandi land
jafnframt því sem þeir ynnu við
sorpbrennsluna. í svari Ólafs
kom m.a. fram að þeir hafa nú
fengið sér lögfræðing, sem mun
leita réttar þeirra „og þar
munum við ekki láta okkur fyrr
en í fulla hnefana. Við töldum
þetta frágengið mál og vorum
búnir að gera ákveðnar ráð-
stafanir. Þessi ákvörðun nú,
kemur sér t.d. mjög illa fyrir
föður minn sem er öryrki, en
hann var búinn að fá vinnu við
eftirlit með sorpbrennslunni”.
Þá kom fram hjá Ólafi að hann
efaðist mjög um þá fullyrðingu
núverandi hreppsnefndar að
afgreiðsla fyrri hreppsnefndar
hefði verið ófullnægjandi. „Fundar-
gerðir frá þeim tíma, er gengið
var frá málinu eru til á
Skjalasafni Skagfirðinga á Sauðár-
króki, og tel ég mig hafa
fullvissu um það að þær eru
undirritaðar af meirihluta þá-
verandi hreppsnefndar. Þá vilég
að lokum segja það, að mér
hefur fundist núverandi hrepps-
nefnd hafa lagst mjög lágt í
þessu máli hvað varðar alla
framkomu við okkur og þetta
mun síður en svo koma til með
að bæta ástandið í hreppnum”.
Feykir spyr
á Sauðárkrókí
Tekst Tindastóli að halda sæti sínu
í 1. deild í körfubolta?
Ingibjörg Vigfúsdóttir, gæslu-
maður:
„Það vona ég og að þeir standi
sig vel í vetur”.
Hofsós:
Sveitarstjómarmenn í þungum þönkum
fulltrúi Suður- og Vesturlands,
Valgeir Þorvaldsson bóndi Vatni
Höfðaströnd og Bessi Þorsteins-
son hótelstjóri frá Blönduósi. Á
fundinum var einnig rætt um ný
sveitarstjómarlög og þá sérstak-
lega það atriði sem snýr að
samvinnu sveitarfélaga. Þar er
lagt til að sýslunefndir verði
lagðar niður og í staðinn komi
byggðasamlög eða héraðsnefndir.
I samtali við einn fundarmanna,
Guðmund Sigvaldason sveitar-
stjóra á Skagaströnd, kom fram
að sveitarfélögum væri í sjálfs
vald sett hvernig þau höguðu
þessum málum hjá sér, hvort
þau héldu sig við gamla
fyrirkomulagið eða tækju upp
þessi nýju lög. „Menn eru svona
að byrja að hugsa þessi mál, þess
vegna var þetta rætt á þessum
fundi” sagði Guðmundur.
Mörg önnum mál voru rædd,
s.s. sorpeyðingarmál sem eru í
miklum ólestri um þessar
mundir og rætt var um
möguleika á samvinnu sveitar-
félaga í þeim efnum. Einnig var
lögð fram greinargerð um
orkumál sem samin var af
rafveitustjórum Sauðárkróks,
Blönduóss og Siglufjarðar og
hún rædd lítillega.
Að auki var talað um laun
kennara, verkamannabústaða-
kerfi og ýmislegt annað sem
fyrir fundinum lá. (bjb)
Sveinn Geirmundsson, vélstjóri:
„Eg vona að það takist”.
-tfiM’í mm ■ ■ ‘
Magnús Rögnvaldsson, smiður:
„Já, enginn vafi”.
Kolbrún ívarsdóttir, nemi:
„Nei”.