Feykir


Feykir - 25.02.1987, Blaðsíða 5

Feykir - 25.02.1987, Blaðsíða 5
4/1987 FEYKIR 5 inu sem lögð er í hann” minkaræktinni eins og öðrum búgreinum, hjá því verður ekki komist. Hvað spurninguna sjálfa varðar þá tel ég að loðdýrarækt- in ætti að geta fyllt að verulegu leyti uppí þau skörð sem nú eru að myndast í hefðbundnu greinunum. Eins er það styrkur fyrir okkur sem fyrir erum að fleiri bætist í hópinn vegna þeirra miklu framkvæmda sem við höfum staðið í við fóður- stöðina. Okkur er nauðsyn að auka framleiðslu þessarar stöðvar og dreifa fjármagnskostnaðinum á fleiri herðar. Engin hætta er á samkeppni innanlands né of- framleiðslu, þar sem við erum svo lítill hluti af heimsmarkaðnum. Auk þess höfum við verið heppnir með að komast inn hjá Dönum varðandi sölu á skinnunum og vandamál varðandi markaðs- setningu því engin. Að þessu leyti stöndum við öllum öðrum búgreinum framar, því eins og kunnugt er þá hefur erlend markaðssetning verið einn helsti höfuðverkurinn og landbúnað- inum nú skorinn stakkur eftir innanlandsmarkaði. Svo má alltaf deila um hvernig koma á útbreiðslu loðdýraræktarinnar sem hag- kvæmast í framkvæmd. Að mínu mati er röng sú stefna að hvetja menn til að hafa loðdýraræktina sem aukabúgrein. Til þess er hún alltof sérhæfð og hætt við að hefðbundnu greinarnar fái forgang sé megin afkoman byggð á þeim. Með slíkum vinnubrögðum næst aldrei sá árangur sem nauðsynlegur er og menn vænta. Einnig er brýnt að minka- og refabú séu ekki reist á stöðum sem liggja það fjarri fóðurstöð að hagkvæmni sé ekki fyrir hendi. Tíðkast hefur að hafa jöfnunargjald á útkeyrslu fóðurs og því er ekki réttlætan- legt gagnvart þeim sem þennan búskap stunda á hentugum stöðum að þeir borgi flutninga út á ystu annes eða inn til dala. Það er hætt við að skerist stjómvöld í leikinn með aðgerðum sem miði að slíkri dreifingu þá kippi það fótunum undan greininni og geri hana háða styrkjum. Komi slíkt fyrirhættir hún vitanlega að vera arðbær og spennandi. Það er til ýmislegt annað sem hentað gæti á hinum afskektari stöðum, t.d. eru miklar vonir bundnar við ræktun angórukanína og talið að hver slík skili tekjum á við eina kind. Grein sem þessi er ekki bundin aðkeyrslu fóðurs í daglegri starfsemi og skiptir því fjarlægðin tiltölulega litlu máli. Eg er fullviss þess að í loðdýraræktinni sé mikill vaxtar- broddur fólginn og henni litil takmörk sett nema ef vera kynni í hráefni til fóðurs. Ýmsar blikur eru nú á lofti í þeim efnum. Meðal annars virðist vera að opnast markaður í Nígeriu á ný fyrir skreið og hausa. Við getum því átt von á að það hráefni sem við höfum haft aðgang að eigi eftir að minkajafnvel um allt að því 30-40%. Ymsar hugmyndir hafa komið í ljós til lausnar á þessum vanda komi til alvörunnar. Eg tel að í því sambandi verðum við helst að líta til loðnunnar, en ekki er víst að hún liggi á lausu við hafnarbakka á Sauðárkróki. Tíminn verður þó að leiða þetta allt í ljós”. Hvernig hefur verið staðið að fræðslustarfi innan loðdýraræktar- innar? „Leiðbeiningaþjónusta í íslensk- um landbúnaði er almennt mjög takmörkuð og oft væru menn betur komnir án hennar eins og dæmin sanna. I fyrra höfðum við ráðunaut i hálfu starfi, Álfheiði Marinósdóttur sem við höfðum mikið gagn af, og allt í lagi væri að hafa fleiri leiðbeinendur á borð við hana, því alltaf eru góðir menn innan um. Okkar megin er fræðsla og ráðgjöf fengin í gegnum rit Danska loðdýraræktunarsambands- ins sem við fáum sent, efni á íslensku er ekki fyrir hendi utan nokkrar greinar sem birst hafa í Frey. Þetta horfir þó nokkuð til bóta, því gefin hefur verið út lausablaðamappa um loðdýra- rækt í samvinnu bændaskólanna og sambands íslenskra loðdýra- ræktenda. Á það verður svo að líta að fyrst og síðast munum við sækja þekkingu og reynslu til frænda vorra á Norðurlöndum, sem hafa áratuga reynslu af þessarri atvinnugrein. Þó skyldi ekki vanmeta þann þátt sem felst í góðum samskiptum þeirra sem í greininni eru á hverju svæði. Við höfum lært mikið af því að tala saman og skoða hver hjá öðrum, að því ógleymdu að Reynir Barðdal hefur stutt okkur með ráðum og dáð, en það eru varla margir hérlendis með þekkingu og reynslu á borð við hann”. Er fólk fordómafullt gagnvart greininni? „Já, það er ekki laust við það. Fólk virðist líta á minkinn sem réttdræpt óargadýr, en ekki sem húsdýr. En það er með minkinn eins og önnur húsdýr að maður verður að reyna að skilja þarfir þeirra og hvernig þeim líður vel, öðruvísi skila þeir ekki arði. Að þessu leytinu er minkurinn engan veginn frábrugðinn öðrum húsdýrum”. Með þessum orðum kveðjum við Sigurð bónda, og er vonandi að einhverjir lesendur séu nokkru nær um stöðu minkaræktarinnar sem búgreinar.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.