Feykir - 15.04.1987, Síða 6
6 FEYKIR 9/1987
Stefhumál Flokks mannsins
• Lögbundin lágmarkslaun fyrirkomulagi. Leiga eða stórhækkað vexti á almenn-
sem taka mið af framfærslu- afborganir af húsnæði verði um markaði.
kostnaði. aldrei meiri en 20% af • Tryggð venði mannsæmandi
• Tekjuskattur afnuminn. mánaðarlaunum viðkomandi. afkoma bænda með tekju-
Tekjur ríkisins komi í Bankakeríið fjármagni húsnæð- tryggingu og niðurgreiðslur
gegnum óbeina skatta, tolla islánakerfið alfarið. Fjár- verði greiddar beint til
og neysluskatta. þörfin á ári til húsnæðismála þeirra. Stjórn landbúnaðar-
• Fé lífeyrissjóðanna verið er innan við 5% af ársút- mála verði færð heim í héruð
100% eftirá hverjum staðfyrir lánum bankanna. og í stað þeirrar sveltistefnu
sig og lánað til atvinnu- • Fjármagnskostnaður (vextir) sem nú ríkir verði unnið
uppbyggingar þar. verði lækkaðir með því að markvisst að uppbyggingu
• Húsnæðismálin verði leyst. fjárlagahalli ríkissjóðs verði þar sem tekið er tillit til
Fólki verði gefið val um bannaður og hætt verði sölu landgæða, húsakosts og
hvort það vill kaupa, leigja ríkisskuldabréfa. En ásókn heildarneyslu héraðsins.
eða taka þátt í búseturéttar- ríkissjóðs í fjármagnið hefur Ráðgjafar starll með bændum
Mjög ódýr vinnufatnaður
og margt fleira
Alltaf að koma nýjar vörur
Verslun Haraldar Júlíussonar
Aðalgötu 22 - Sauðárkróki - Sími 5124
Um leið og við óskum
lesendum Feykis
gleðilegra páska
viljum við vekja
athygli á fundi okkar á
Sauðárkróki
þriðjudagskvöldið
21. aprfl kl. 20.30
í Safnahúsinu
ALLIR
VELKOMNIR
Sjálfstæðisflokkurinn
Á RÉTTRI LEIÐ
heima í héraði og aðstoði þá
við að ná betri og hagkvæmari
búrekstri.
Gert verði meira af því að
fullvinna afurðir til neyslu í
þéttbýli og sláturhúsin nýtt
til þess.
Rík áhersla verði lögð á að
skera niður milliliðakostnað.
Heildarstefna landbúnaðar-
ins miðist við sem flest
meðalbú. Fá stór bú eru
óheppileg því hætta er á að
þau fari í eyði vegna
félagslegrar einangrunar.
Stuðningur við aukabúgreinar
og fjölbreytni þeirra aukin.
Félagslegur stuðningur við
aldraða bændur svo þeir geti
hætt búskap með reisn. Ungt
fólk eigi þess kosta að taka
við búum þeirra svo að
eðlileg endurnýjun eigi sér
stað.
• I sjávarútvegi verði kvóta-
kerfið í núverandi mynd lagt
niður. I stað þess verði árlegt
þing með fulltrúum útgerðar-
manna, sjómanna, fiskifræð-
inga og landverkafólks sem
ákveði stefnuna í aflamagni,
vinnslu og markaðssetningu.
Lögð verði rík áhersla á
ábyrgð allra aðila og lagt
verði mikið upp úr gæðum og
nýtingu afla. Hverskonar
einokun verði aíTétt í flutn-
ingi og sölu.
Lögð verði áhersla á
fullvinnslu afla og leitað
verði nýrra markaða með
meiri fjölbreytni og öryggi í
huga.
• Friðlýsing Islands! Alþingi
gangist fyrir því að stórveldin
tvö geri með sér friðarsátt-
mála sem tryggi hlutleysi
Islands og að hvorugt ríkið
verði hér með her eða
hernaðaráform. Bandaríski
herinn hverfi héðan á brott,
Island fari úr Nato og
Sovétmenn hverfi á brott
með kafbáta sína frá íslands-
ströndum. Eftirlitssveitir frá
Sameinuðu þjóðunum fylgist
með því að farið verði eftir
samkomulaginu.
• Sett verði lög um ábyrgð
stjórnmálamanna sem tryggi
að menn standi við kosninga-
loforð sín. Hægt verði að
afturkalla þingmann á kjör-
tímabilinu ef tilskilinn fjöldi
kjósenda krefst þess, og er þá
kosið á ný. Þingmenn skipti
ekki um flokka á kjörtímabili.
• Til að endurvekja traust
almennings á Alþingi verði
laun alþingismanna aldrei
hærri en lögbundin lágmarks-
laun í landinu hverju sinni.
• Komið verði á aðskilnaði
ríkis og kirkju. Trúin er
persónulegt mál hvers og
eins, því á ríkið að vera
hlutlaust í trúarefnum.
• Þungaskattur verði lækkaður
um 50%
• Ókeypis og aðgengileg
menntun fyrir alla. Tryggð
verði jöfn aðstaða til náms
hvar sem er á landinu.
Kennsla og starfsemi á
framhaldsskólastigi og í
Háskólanum fari fram á
þeim stöðum sem eru í
tengslum við námið.
• Ókeypis og góð heilbrigðis-
þjónusta fyrir alla þar með
talið tannlækningar og gler-
augu.
Lyfjakostnaður verði stór-
minnkaður og fyrirbyggjandi
heilsugæsla aukin.
• Fulltrúar landsfjórðunga
sitji í bankaráðum ríkis-
bankana.
• 10% af útgjöldum ríkisins
verði skorin niður, án þess þó
að skerða þjónustu þess eða
segja upp starfsfólki.
• Afborganir á erlendum
lánum verði auknar um 2,5
milljarða á ári.
Þetta og margt margt
fleira viljum við. Allt þetta
kostar peninga. Við erum
ekki bara hugsjónamenn,
heldur raunsæir hugsjóna-
menn. Því erum við eini
llokkurinn með nákvæma
kostnaðaráætlun um það
hvað okkar áform kosta en
það eru um 24,5 milljarðarog
einnig hvaðan við ætlum að
fá fé til þess en okkar
tekjuáætlun gerir ráð fyrir að
inn komi 25 milljarðar.
M.ö.o., það verða 500
milljónir afgangs eftir að við
erum búin að framkvæma öll
okkar áform.
Mörg okkar mál er ef til
vill að finna hjá öðrum
flokkum en munurinn á þeim
og okkur er sá að þeir eru
búnir margir hverjir að vera
með þessi stefnumál hjá sér
svo árum skiptir og ætla sér
ekki að fara eftir þeim. Við
ætlum að sjá þessi stefnumál í
höfn því það eru engir
hagsmunaaðilar sem skilyrða
okkur, engir annarlegir spottar
sem toga í okkur. Ókkar
flokkur verður til vegna þess
að við viljum að okkar
stefnumál verði að raunveru-
leika en ekki sem markleysa
á einhverju fallegu plaggi
sem dustað er af rykið á 4ra
ára fresti, lappað uppá, og
vonast til þess að fólkið taki
ekki eftir því að ekki var farið
eftir gefnum loforðum.
Við ætlum að gera upp-
reisn gegn þessri blekkingu.
Við ætlum að fá þjóðina í lið
með okkur til þess að þessi
réttlátu stefnumál verði að
raunveruleika. Við ætlum að
blása í lúðra og gera uppreisn
gegn flokkaveldinu.
Skúli Pálsson
1. maður á lista
Flokks mannsins