Feykir


Feykir - 09.12.1987, Síða 1

Feykir - 09.12.1987, Síða 1
9. desember 1987, 41. tölublað, 7. árgangur ÓHÁÐ FRÉTTABLAÐ FYRIR NORÐURLAND VESTRA Skagafjörður: Kúm beitt fram í desember P... Að undanförnu hefur verið unnið að uppsetningu girðingar um Melstaðakirkju. Gamla girðingin var orðin hrörleg og var ekki vanþörf á að setja nýja upp. Blönduós: Verður íþróttaimðstöðin fokheld í ár? „Grænfóðrið kláraðist núna fyrir helgina svo kýrnar fara ekki meira út í vetur”, sagði Sverrir Magnússon í Efra- Ási í Hjaltadal þegar blaðið sló á þráðinn til hans um helgina. Sverrir sem rekur kúabú hefur beitt kúnum í allt haust alveg til 4. desember sem hlýtur að Skagaströnd: r Ahugi á dýpkun Skagstrendingar eru nú að reyna að fá fé inn á fjárlög næsta árs til þess að dýpka höfnina. Að sögn Guðmundar Sigvaldasonar horfa menn aðallega á að fá dýpkun við svokallaðan Skúffugarð, en það eru nú um 40 ár síðan hann var gerður. Þar þarf að grafa frá og styrkja garðinn. Guðmundur sagði að menn legðu sérstaka áherslu á þetta mál nú, vegna þess að nýja dýpkunarskipið, sem Siglfirðingar hafa nú, er mjög vel fallið til þess að vinna þetta verk. Því væri mikilvægt að ráðast í fram- kvæmdina meðan unnt er að fá svo gott tæki til verksins. Á þessu ári hófst bygging leikskóla á Skagaströnd og er grunnur byggingarinnar nú tilbúinn. Áætlað er að framkvæmdin öll kosti 8-9 millj. kr. og var það ætlun Skagstrendinga að fá fé af fjárlögum næsta árs til þess að halda byggingarfram- kvæmdum áfram. Nú er hins vegar sú breytta staða komin upp að fjármálaráðherra og ríkisvald ætlast til þess að leikskólar skuli alfarið byggðir upp af sveitarfélögunum. Þetta er liður í verkefnatil- færslu milli ríkis og sveitar- félaga. „Sveitarstjórnarmenn eru almennt mjög svartsýnir á að teljast algjört einsdæmi hér í Skagafirði ef ekki á landinu öllu. J»etta byggist auðviðað á því að eiga næga beit” sagði Sverrir. Eg sái yfirleitt risanepju og fóðurnæpum, en næpan er sú jurt sem stendur langlengst og mér finnst nýtast hvað best t.d. hefur kálið á næpunum verið alveg lifandi fram á þennan dag. En ástæðan fyrir hvað grænfóðrið entist lengi núna er meðal annars hvað sprettan var gríðarlega góð í sumar. Undanfarin ár hef ég ávallt beitt kúnum eins lengi frameftir hausti og mögulegt hefur verið”. Að sögn Sverris eru einkum tvö atriði sem verður að passa vel þegar kúm er beitt á grænfóður síðla hausts, að þær hafi nóg af próteinríku fóðri með og ekki síður að þær fari ekki svangar út á beitina. Sverrir sagðist telja að góð haustbeit og útivera ætti sinn þátt í þeim miklu afurðum sem hann hefur fengið eftir kýrnar undanfarin ár, en síðustu 12 mánuði hefur meðalnyt eftir hverja kú í Efra-Ási verið um 5600 lítrar. ríkið ætli að taka nokkuð af verkefnum frá sveitarfélögun- um, né heldur að láta þau hafa nýja tekjustofna til þess að standa undir þeim auknu verkefnum sem til þeirra á að færa” sagði Guðmundur Sigvaldason sveitarstjóri á Skagaströnd í samtali við blaðamann. I því sambandi benti hann á þau verkefni, sem ríkið er nú að færa yfir á sveitarfélögin, eins og t.d. tónlistarskólana, íþróttamálin og dagvistarmálin. 1 staðinn er aðeins rætt unt að efla Jöfnunarsjóðinn án þess að þær hugmyndir séu í raun útfærðar. Guðmundur benti á að það Nú eru Blönduósingar að vinna að því að fá fé inn á fjárlög næsta árs til að þá verði unnt að gera íþróttamiðstöðina á Blönduósi væri mjög eðlilegt og sjálf- sagt að færa verkefni til sveitarfélaganna, en þá ætti að létta af þeim öðrum útgjaldaliðum eins og t.d. kostnaði við tannlækningar og atvinnuleysistryggingar. Aðspurður um hvert yrði framhald leikskólabyggingarinn- ar á Skagaströnd sagði Guðmundur að það mál væri í óvissu. Ef hreppurinn fengi enga nýja tekjustofna eða útgjöldum létt af tæki langan tíma að ljúka byggingunni miðað við það að ekki yrði breyting á þeirri stefnu ríkisins að taka engan þátt í byggingunni. fokhelda. Sá áfangi er talinn kosta um 20 millj. kr. og samkvæmt drögum að verk- samningi við ríkið um þessa, byggingu mun ríkið greiða um þriðjunginn af fram- kvæmdinni. Að hluta er það vegna þess að í íþróttamið- stöðinni verða þrjár kennslu- stofur, en mikill skortur er nú á kennsluhúsnæði á Blönduósi. Að sögn Hauks Sigurðs- sonar sveitarstjóra á Blönduósi er þessa dagana verið að ljúka við að steypa húsið upp. Kostnaður við þann áfanga er um 9 millj. kr. Af þeirri upphæð greiðir ríkið um 2.5 millj. kr. Haukur sagði að allt væri óvíst um það hve hratt íþróttamiðstöðin risi. Allt færi það eftir fjármagni sem fengist til framkvæmdanna. - Menn hafa verið að tala um 4-5 ár, sagði Haukur, en þar sem allt er óvíst með fjármagnið er ekkert hægt að tímasetja. I íþróttamiðstöðinni verður völlur, sem er 22 x 44 m að stærð, áhorfendasvæði, búnings- aðstaða o.fl. Þá er þarna svæði sem í upphafi var áformað að nota til félags- aðstöðu, en nú hefur þeim áformum verið breytt og plássið á að nota sem kennslustofur. Þá verður útisundlaug við húsið. Alls er íþróttamiðstöðin um 2200 fermetrar. Knattspymulið Umf. Hvatar á Blönduósi sigraði í fjórðu deild Islandsmótsins í sumar, og mun því spila í þriðju deild næsta sumar. I tilefni af þeim árangri sem liðið náði samþykkti hreppsnefnd Blöndu- óss að láta gera kostnaðar- áætlun um það hve mikið kosti að gera nýjan malarvöll norðan við íþróttavöllinn á Blönduósi. í framhaldi af því að slíkur völlur yrði gerður má búast við að núverandi völlur yiði gerður að grasvelli. Að sögn Hauks Sigurðssonar sveitarstjóra er ekki gert ráð fyrir að í þetta verði ráðist fyrr en að loknum fram- kvæmdum við íþróttamið- stöðina. Skagaströnd: Bygging leikskólans í óvissu

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.