Feykir - 09.12.1987, Síða 2
2 FEYKIR 41/1987
ÆEYKIlW
Óháö fréttablað
fyrir Norðurland vestra
■ RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Ari Jóhann
Sigurðsson ■ ÚTGEFANDI: Feykir hf. ■ SKRIFSTOFA:
Aðalgötu 2, Sauðárkróki ■ PÓSTFANG: Pósthólf 4,
550 Sauðárkrókur ■ SfMI: 95-5757 95-6703 ■ STJÓRN
FEYKIS HF.: Jón F. Hjartarsonsson, Sr. Hjálmar
Jónsson, Sæmundur Hermannsson, Sigurður Ágústsson,
og Hilmir Jóhannesson ■ BLAÐAMENN: Björn Jóhann
Björnsson sími 95-5253, Magnús Ólafsson sími 95-4495,
Þorgrimur Daníelsson sími 91-30538, örn Þórarinsson
sími 96-73254, Júlíus Guðni Antonsson sími 95-1433 og
985-25194 Auglýsingarstjóri: Haukur Hafstað sími 95-
5959 ■ ÁSKRIFTARVERÐ: 55 krónur hvert tölublað; í
lausasölu 60 kr. ■ GRUNNVERÐ AUGLÝSINGA: 210
krónur hver dálksentimetri ■ ÚTGÁFUDAGUR: Miðviku-
dagur ■ SETNING, UMBROT OG PRENTUN: SÁST
sf., Sauðárkróki.
- leiöari —-------------------
Framtíðarsýn
í landbúnaði
Landbúnaður hefur frá því land byggðist verið helsti
atvinnuvegur þjóðarinnar. Á meðan sjálfsþurftar-
búskapur ríkti urðu ekki miklar breytingará búháttum,
veðrátta og önnur náttúruöfl höfðu meira að segja en
hugmyndir og nýjungar. Tilkoma markaðsbúskapar
olli því að bændur þurftu að keppa viðaðrargreinarum
vinnuafl. Bændur litu nú tækninýjungar hýru auga,
framleiðslugeta margfaldaðist jafnframt því að færri
þurfti til framleiðslunnar. Þessi framleiðniaukning
heldur enn áfram. Markaðurinn tók ávallt við ef ekki
hér heima þá erlendis. Þar kom að útflutningur gat á
engan hátt tekið við umframframleiðslunni. Sölukerfi
bænda var ekki byggt upp á þann hátt að það gæti tekist
á við þessar breyttu markaðsaðstæður. Bændastéttin
sem ávallt hafði verið hvað sjálfstæðust stétta á Islandi
óskaði eftir framleiðslustjórnun af hálfu hins opinbera.
Það varð úr að sett voru lög um slíka stjórnun sem á
margan hátt einkennast af stjórnlyndi af versta tagi þó í
annan stað séu þau til bóta. Með þessum lögum voru
bændur gerðir að launamönnum ríkisins þar sem
ráðherra skiptir laununum milli bænda eftir reglum sem
hann setur sjálfur en eingöngu er samið um
heildargreiðslur til stéttarinnar. Lög þessi skulu vera
bændastéttinni til aðlögunar og endurskoðast að henni
lokinni. Aðlögunar að hverju?, innanlandsmarkað-
inum, kotbúskap eða stórbúskap, markaðslögmálunum
eða einhverju allt öðru? Þetta eru spurningar sem
verður að svara. Nauðsynlegt er að móta framtíðarsýn í
landbúnaði svo bændur viti að hverju þeir eiga að laga
sig. Við núverandi ástand verður ekki unað. Tryggja
verður að endurnýjun stéttarinnar sé eðlileg að öðrum
kosti deyr hún út með þeim sem í henni eru ef ekki fyrr.
Islenskur landbúnaður hefur alla burði til að vera sú
öfluga atvinnugrein sem hingað til ef okkurauðnast að
horfa fram á veginn án fordóma og fyrir fram
ákveðinnar óvildar. Þess í stað verðum við að byggja
upp frjálsa atvinnugrein þarsem dugnaður, hagkvæmni
og reynsla nýtist til framfara bændum og þjóðinni allri
til hagsbóta.
Stopp nú
í þessum skrifum verður
ekki talað um göturáp
unglinga á Sauðárkróki og
drykkjuskap þeirra, heldur
allt annað efni og er því engu
skylt, þó fyrirsögnin sé
kunnugleg lesendum Feykis.
Það sem pistill þessi ætlar
að ræða um er hin nýja
dægurmáladeild Rásar 2.
Þetta fyrirbæri er alveg að
gera mig brjálaðan, sérstak-
lega upphafsmaður þess (svo
best sem ég veit), Stefán Jón
Hafstein. Stefán er nýkominn
frá LISA, þar sem hann aflaði
sér menntunar á sviði
fjölmiðlunar, er greinilega að
merkja að þar hefur Stefán
endanlega sturlast.
Rás 2 hefur hingað til verið
útvarp unga fólksins, en nú
mætti halda að Rás 2 væri
útvarp uppgjafa menningar-
postula og listamanna, sem
hafa svo óskaplega gaman af
því að blaðra og blaðra um
ekki neitt. Gaman væri að
vita hvað hlutfall talaðs máls
og síðan tónlistar væri núna á
Rás 2. Að mínu mati yrði það
fljótt útreiknað. T.d. síð-
degisþátturinn Dagskrá, hann
hefur öll þau einkenni að
hann sé best fluttur á gömlu
gufunni, þar á hann heima.
Tónlistin, þegar svo vel vill
til að hún sé spiluð, er algjört
„tabú”. Síðan eru þessir
pistlahöfundar hrikaleg við-
bót við allt blaðrið hjá
Stefáni, Einari Kárasyni og
Ævari Kjartanssyni. Þessir
þrír dagskrárgerðarmenn hafa
allir þann einstaka hæfileika,
að geta talað og talað án þess
að þeir hafi minnstu hugmynd
um hvað þeir eru að tala um.
Mikið afskaplega saknar
maður Brodda Broddasonar,
Erlu B. Skúladóttur og
Margrétar Blöndal, sem sáu
um Hringiðuna. Það var
meiriháttar þáttur, ekkert
um óþarfa kjaftagang, skemmti-
leg tónlist og það efni sem
tekið var fyrir var efni sem
menn höfðu gaman af að
hlusta á. Núna er þetta
ekkert nema hábölvað menn-
ingarkjaftæði sem enginn
nennir að hlusta á. T.d.
síðasta föstudag í síðdegis-
þættinum Dagskrá, þá var
tónlistin ömurleg, hreint og
beint niðurdrepandi. Viðtölin
sem tekin voru áttu heima á
Rás 1 og svona mætti lengi
telja. Það ætlaði upp úr að
sjóða í eitt skiptið þegar
Stefán var að kynna eitt lag.
Hann var búinn að segja
ævisögu flytjandans í um 3
mínútur áður en lagið kom.
Svo er sífellt verið að tala um
hvað kemur næst, þarnæst,
þarþamæst og þarþarþamæst á
dagskránni og tekur það
stóran part af þættinum.
Eg held að þessi dægur-
máladeild Stefáns Jóns Haf-
steins hafi algjörlega mis-
heppnast. Fólk sem vill
áfram hafa Rás 2 sem
tónlistarrás, nennir hreinlega
Kjördæmisþing framsóknar-
manna á Norðurlandi vestra
var haldið á Blönduósi
dagana 28. og 29. nóvember.
Þingsókn var nokkuð góð og
voru mættir 83 fulltrúar frá
framsóknarfélögunum i kjör-
dæminu á þingið. Gestir
þingsins voru þau Steingrímur
Hermannsson utanríkisráð-
herra og Unnur Stefánsdóttir
formaður Landssambands
framsóknarkvenna og ávörp-
uðu þau bæði þingið. Umræður
voru fjörugar og gagnlegar
og skoruðu þingfulltrúar
meðal annars á þingmenn
flokksins að standa af alefli
gegn álagningu söluskatts á
ekki að hlusta á kjaftæðið
fram og aftur, daginn út og
inn. Það vill fjöruga tónlist,
hvort sem það er á vinnustað,
heima hjá sér, í skólanum og
í bílnum, en ekki þessa eilífu
pistla, viðtöl, blaður dag-
skrárgerðarmanna o.s.frv.
Margur myndi segja við
mig eftir þetta nöldur, af
hverju ég bara slökkvi ekki á
Rás 2, fyrst mér finnst hún
svona leiðinleg, en málið er
ekki svo einfalt. Ég er mikill
útvarpshlustandi, bý úti á
landi og hef þaraf leiðandi
ekki aðgang að fleiri stöðvum
en Rás 1 og 2. Ég ætla bara að
vona að þetta endi ekki með
því að ég fari að hlusta á Rás
1, þá er gamla Bleik brugðið.
Nei, ég ætla að vona að
forráðamenn RÚV sjái að sér
og bæti dagskrá Rásar 2,
áður en í algjört óefni fer.
Þeir verða að vera sam-
keppnishæfir við hinar útvarps-
stöðvamar, sérstaklega þegar
þær fara að nást út um allt
land.
Því segir maður: stopp nú!
og ekki lengra með það sem
nú er komið.
matvæli og vöruðu við
kaupum Framleiðnisjóðs á
fullvirðisrétti bænda. Að
kvöldi laugardagsins 28. léku
Miðaldamenn fyrir dansi á
fjölmennum dansleik.
Kosinn var nýr formaður
Bogi Sigurbjörnsson skatt-
stjóri í stað Ástvalds Guð-
mundssonar sem er á förum
úr kjördæminu. Stjórn kjör-
dæmissambandsins skipa nú
ásamt Boga þau, Pálína
Skarphéðinsdóttir, Jón E.
Friðrkiksson, Helgi Ólafsson,
Valgarður Hilmarsson, Ásdís
Magnúsdóttir, Magnús Sig-
fússon og Kristín Pálsdóttir.
Velunnari RÚV.
Kjördæmisráð framsóknarflokksins í N-V:
Nýr formaður
mita
LJÓSRITUNARVÉLAR
FRÁBÆR GÆÐAVARA
Henta jafnt
smáum sem
stórum
fyrirtækjum
Vélar fyrir þá
sem gera kröfur
Viðhaldsþjónusta
á staðnum
STL3LU sí
Skagfirðingabraut 6b - Simi: 95-6676 - 550 Sauðárkrókur
1