Feykir


Feykir - 09.12.1987, Qupperneq 3

Feykir - 09.12.1987, Qupperneq 3
41/1987 FEYKIR 3 „Við munum efna til byggðaþinga” - segir Ólafur Ragnar Grímsson formaður Alþýðubandalagsins - Ólafur Ragnar Grímsson hinn nýkjömi formaður Alþýðu- bandalagsins var á ferð á Sauðárkróki nú á dögunum.Þó svo að Ólafur hafí stoppað stutt við á Sauðárkróki gafst blaðamanni Feykis samt tæki- færi til að taka við hann smá viðtal og fer það hér á eftir. Hvað vill Alþýðubandalagið gera til að rétta hlut landsbyggðarinnar? „Kjarninn í því sem við leggjum til er að íbúar landsbyggðarinnar fái raun- verulegt vald yfir ráðstöfun þeirra verðmæta sem að sköpuð eru heimafyrir. Megin- þátturinn í vanda lands- byggðarinnar hefur verið fjármagnsflutningur í einni eða annarri mynd frá lands- byggðinni til Reykjavíkur- svæðisins. Landsbyggðinni verður aldrei varanlega sköpuð aðstaða til að vaxa af sjálfum sér, nema að þeirri þróun verði snúið við. A undan- förnum árum hafa menn flækst í því að deila um hvort koma eigi á þriðja stjórn- sýslustigi, sameina sveitar- félög eða annað í þeim dúrog verið að leita að einni aðferð sem gæti gilt allstaðar á landinu. Við teljum aftur á móti að í framkvæmd þessarar stefnu þurfi að vera sveigjanleiki og þaðgeti verið mismunandi útgáfur eða mismunandi form sem gæti hent í þessum landshluta og öðrum, og það eigi fólkið sjálft að ákveða. I öðru lagi er sú atvinnustefna sem við höfum verið að leggja áherslu á, sem afneitar erlendri stóriðju sem megin þætti, heldur leggur áherslu á uppbyggingu miðlungs og smærri fyrirtækja. Smáfyrir- tækjastefnan í atvinnulífi sem reynst hefur vel víða um heim teljum við vera sá þáttur í atvinnulífinu sem landsby^gðinni mun reynast bestur. I þriðja lagi flutningur ríkisstofnanna og þjónustu- starfsemi frá höfuðborgar- svæðinu út um land. Ég átti verulegan þátt í að móta tillögur um það fyrir allnokkrum árum síðan og sem nú er tími til kominn að hrinda í framkvæmd”. Hefur flokkurinn markað sér einhverja ákveðna sérstefnu í því? „Við höfum markað þessa grundvallarþætti sem ég hef verið að lýsa. Síðan höfum við ákveðið að útfærslan á þeim í einstökum atriðum verði gerð á tveimur til þremur fyrstu mánuðum næsta árs. I því skyni munum við efna til þess sem við köllum byggðaþing í öllum landshlutum. Við munum bjóða til þeirra fulltrúum sveitarfélaga, atvinnulífs, félags- samtaka, samtaka launafólks og öllum þeim sem áhuga hafa og opna þannig þá umræðu fyrir öllum áhuga- sömum íbúum byggðalaganna og tengja þannig saman þau grundvallaratriði sem ég var TÓNLISTARKROSSGÁTAN NO: 94 Lausnir sendist til: Ríkisútvarpsins RÁS 2 Efstaleiti 1 150 Reykjavík Merkt Tónlistarkrossgátan Frá almennum fundi í Villa Nova. Ólafur Ragnar í ræðustól. að lýsa áðan og nánari vandamálin eru á hverjum útfærslu þeirra sem getur stað. Byggðaþingin með verið á einn veg á Norðurlandi þátttöku fjölmargra verði sá og annan veg á Suðurlandi vettfangur þar sem stefnan eftir því hvers eðlis byggða- verði útfærð”. Heldur þú að núverandi ríkistjórn verði langlíf, eða sitji út kjörtímabilið? „Almennt hafa ríkistjórnir tilhneigingu til að reynast langlífar og rembast til að sitja út kjörtímabilið. Þessi ríkisstjórn virðist hinsvegar strax í upphafí vera sjálfum sér svo sundurþykk að það má heita nánast kraftaverk ef henni tekst að sitja út næsta ár. Ágreiningurinn sem kominn er fram í sjávarútvegsmálum, varðandi fjárlagafrumvarpið, varðandi landbúnaðarmálin, varðandi skattlagningu, varðandi húsnæðismálafrum- varpið, allt þetta á sviðum sem eru mikilvægustu verkefni ríkisstjórnar í dag, er engin stefna hjá ríkisstjórninni. Hún er einnig að tapa gengi íslensku krónunnar og hefur kallað yfir sig 30-40% verðbólgu og þá þarf sterkari samstöðu en fyrir hendi er í þessari ríkisstjórn”. Ársávöxtun Samvinnubókar er nú 38.65% Samvinnubókin Hagstæð ávöxtun í heimabyggð Innlánsdeild Kaupfélags Skagfirðinga SAMVINNUBÓKIN

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.