Feykir


Feykir - 09.12.1987, Qupperneq 5

Feykir - 09.12.1987, Qupperneq 5
41/1987 FEYKIR 5 11. árgangur Safnmála kominn út Nýlega er kominn út 11. árgangur tímaritsins Safn- mál, en það er gefið út af Héraðsbókasafninu og Héraðs- skjalasafninu á Sauðárkróki. Tímaritið kemur út einu sinni á ári og er einskonar kynningarrit eða mál- gagn fyrir söfnin. Það flytur skýrslur safnanna, en einnig er þar að finna ýmislegt annað efni. Auk hinna árlegu skýrslna og greinargerða um söfnin, er að þessu sinni vísnaþáttur, sem Hjalti Pálsson bóka- vörður hefur tekið saman. Þar eru birtar ýmsar vísur Gísla Stefánssonar (1900- 1953) bónda í Mikley í Vallhólmi og rakin tildrög þeirra. Að venju er birt efni úr fórum Héraðsskjalasafnsins, og að þessu sinni eru það bréf Guðmundar Þorlákssonar frá Yztu-Grund í Blönduhlið, sem hann skrifaði bróður sínum Gísla Þorlákssyni bónda á Frostastöðum, meðan hann dvaldist í Reykjavík og Kaupmannahöfn við nám. Guðmundur sigldi til Kaup- mannahafnar eftir stúdents- próf 1874 og lauk magister- prófi í norrænum fornfræð- um með ágætum árið 1881. Þótti hann líklegur eftirmaður Konráðs Gíslasonar prófessors við Hafnarháskóla, en af því varð ekki. Guðmund skorti stefnufestu og hallaðist um of að flöskunni. Svallbræður kölluðu hann Glosaogfestist það við hann, og notaði hann það gjarnan sjálfur. Eftir 22 ára dvöl á Hafnarslóð kom Guðmundur til Reykjavíkur, en síðustu árin dvaldist hann heima í Blönduhliðinni í skjóli Magnúsar H. Gíslasonar bróðursonar síns á Frostastöðum. Bréfin eru frá námsárum Guðmundar, nánar tiltekið frá 1873-1878 og gefa nokkra mynd af högum hans á þessu tímabili. Að endingu er lítil greinar- gerð um Daníel Davíðsson ljósmyndara á Sauðárkróki og birtar milli 30 og 40 óþekktar ljósmyndir úr fórum Héraðsskjalasafnsins, þar sem leitað er til lesenda um að nafngreina myndirnar. Heftið er 40 blaðsíður að stærð og fæst í Safnahúsinu. Vmf. Fram: Hóptrygging félagsmanna í október 1985 gerði Vmf. FRAM samkomulag við Brunabótafélag Islands um hóptryggingu félagsmanna. Var trygging þessi þríþætt, þ.e. líftrygging þar sem eftirlifandi erfingjum var greidd ákveðin fjárhæð ef félagsmaður undir sjötugu féll frá, slysa- og örorku- trygging barna félagsmanna' og frítímatrygging þar sem félagsmenn voru tryggðir í frítíma á sama hátt og í vinnu. Nú hefur þessi hóptrygging verið endurskoðuð og endur- bætt. Eru áfram þeirþrírliðir sem hér voru taldir, en sá fjórði bætist við, og er það dagpeningatrygging.Þeir sem eru í fastri vinnu og eiga fullan veikindarétt fá kaup- greiðslu í veikinda- og slysatilfellum í þrjá mánuði. En þá tekur dagpeninga- tryggingin við og greiðir allt að níu mánuði. Er sú greiðsla kr. 21.650- á mánuði og þar kemur til viðbótar greiðsla frá sjúkrasamlagi kr. 10.407- á mánuði. Eru þvi_ sjúklingum tryggðar með þessu kr. 32.057- á mánuði, en kr. 2.824- til viðbótar fyrir hvert barn sem kann að vera á framfæri. Eiga félagsmenn þannig trygga greiðslu í 12 mánuði í veikinda- og slysatilfellum. Iðgjald tryggingar- innar greiðist allt af sjúkra- sjóði félagsins og með þessu móti er hægt að tryggja félagsmönnum til muna hærri greiðslu og í mikið lengri tíma en sjóðurinn gæti án þessa samnings. Hinn nýi samningur veitir því félags- mönnum FRAM verulega meira öryggi og betri trygg- ingarvernd en þeir höfðu áður. Bændablaðið í sókn í sumar hóf nýtt blað Bændablaðið göngu sína, það fjallar einkum um landbúnaðar- og landsbyggða- mál. Utgáfutíðni þess ereinu sinni í mánuði. Feykir spjallaði á dögunum við Bjarna Harðarson ritstjóra Bændablaðsins. ,,Mér finnst blaðið hafa fengið nokkuð góðar viðtökur hjá bændum”, sagði Bjarni. „Við sjáum fram á að halda útgáfu blaðsins áfram en þegar við byrjuðum renndum við að sjálfsögðu blint í sjóinn með þessa útgáfu”. Askrifendur eru nú komnir á annað þúsund og fer sífellt fjölgandi. Þeir eru að stærstum hluta bændur enda hefur áskriftarsöfnun einkum farið fram til sveita enn sem komið er. Það er talsvert hringt til okkar á skrifstofuna bæði með ábendingar um efni til umfjöllunar og einnig til að ræða það sem efst er á baugi í málefnum bændastéttarinnar á líðandi stund. Bjarni lét þess að lokum getið að væntanlega yrði hægt að heimsækja bændur meira í framtíðinni, en fram til þessa hefði mestur tími starfsmanna blaðsins farið í áskrifendasöfnun og að koma blaðinu á laggirnar og því orðið minna um heimsóknir út í sveitirnar en upphaflega var ætlað. Ostur er veislukostur Jón Páll í Skagfirðingabúð Kynning frá Mjólkursamlagi Skagfirðinga Kynningarverð á ostum Kraftakarlinn Jón Páll Sigmarsson og ostameistari Mjólkursamlagsins, Haukur Pálsson, kynna ostaframleiðsluna föstudaginn 11. des. kl. 14.30 - kl. 18.00 Surmjolkin svíkur ekki JÆ~iliagfirdingabút) I Þú þartt ekki annað! Þá verða einnig kynntar nýjungar í súrmjólkurframleiðslu

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.