Feykir


Feykir - 09.12.1987, Síða 9

Feykir - 09.12.1987, Síða 9
41/1987 FEYKIR 9 í þúsund ár Líkan af kirkjunni á Hofstöðum í Skagafirði (Johs Klcin). gefur til kynna að hér sé um vígð hús að ræða. Kirkjurnar eru þiljaðar að innan.Þeim er skipt í kórogframkirkju með milligerð, eins og í færeyskum kirkjum. Hins vegar eru aldrei forkirkjur á íslandi. Þakið er sperruþak með bitum og skammbitum, og er opið upp í súðina eins og gömlu færeysku kirkjurnar. Altarið með grátunum er við austurgaflinn, og prédikunar- stóllinn að sunnanverðu í framkirkjunni. Oftast er gluggi á þekjunni yfir prédikunarstólnum. Þegar prest- urinn stígur í stólinn eftir litlum tröppum úr kórnum, verður hann í mörgum kirknanna að beygja sig undir einn þverbitann, og þegar hann kemur í stólinn ber hann höfuð yfir kirkju- bitana.Þakglugginn er nauð- synlegur, því að annars væri svo skuggsýnt að presturinn gæti ekki lesið ræðu sína, en bað verður hann að gera. en má ekki tala blaðalaust eins og prestar í Danmörku. Þessi siður mun hafa verið upp tekinn í byrjun 18. aldar af Jóni biskupi Vídalín, og vildi biskupinn með þessu knýja presta til að semja ræðuna heima hjá sér. Sú saga er sögð að gamall prestur, sem var góður vinur biskupsins, hafi skrifað honum í gamansömum tón vegna þessarar skipunar og spurt, hvað hann ætti að gera, ef hundur kæmi upp á kirkjuþakið, eins og hundar gera oft á íslenskum húsum, meðan hann væri að messa og settist á þakgluggann, svo að hann sæi ekki á blöðin. Biskupinn svaraði einungis: „Sigaðu, blessaður sigaðu, og seppi mun fara”. Á vorum tímum eru flestar kirkjur á Islandi reistar úr timbri. En fyrrum voru veggir þeirra úr torfi og grjóti eins og á öðrum húsum, en gaflar þó úr timbri. Enn standa þrjár af þessum gömlu torfkirkjum. Tími þeirra er þó senn liðinn, því að bannað er að reisa kirkjur á gamla mátann.Torfkirkjumar gömlu eru sýnishom húsagerð- ar, sem rekja má allt aftur á söguöld, og er að mínu mati á marga lund miklu fallegri og meira samræmi í þeim og hátíðleiki en í timburkirkjum nútímans, sem oftast skortir allan svip byggingarlistar. Þegar ég var á rannsóknar- ferðum mínum voru enn til allnokkrar torfkirkjur: Á Hofstöðum, Flugumýri, Víði- mýri og Ábæ í Skagafirði, Tjörnum og Saurbæ í Eyjafirði, Hofi og Sandfelli í Öræfum og Brú á Jökuldal. Nú (1927) standa aðeins eftir kirkjurnar á Víðimýri, í Saurbæ og á Hofi. Að utanverðu greina þessar kirkjur sig lítt frá öðrum torfhúsum sem standa sér á bæjunum, svo sem smiðjum, peningshúsum o.fl., því að á þeim er hvorki turn néspíra, og þakið er úr torfi. Kirkjugarðurinn sem lykur um gróin leiði, klukkur á framstafni eða í sérstöku klukknaporti, er hiðeinasem Staður í Hrútafirði. Bærinn brann árið 1913 og nú er það aðeins hcstasteinninn, sem vísar til gamla bæjarstæðisins. Þjóðtrúin segirtrölliníTröllakirkjuhafareiðstógurlega, þegarfyrst var messað í kirkjunni á Stað. Köstuðu þau steini þessum og ætluðu að hæfa kirkjuna, en hann geigaði og lenti þarna. (Johs. Klein 1898) Jólavörur í öllum deildum Leikfangaúrvalið er hjá okkur Fisher Price - Barbie - Sindy Playmo - Matchbox - Lego Vörumerki sem óhætt er að treysta Komið og skoðið úrvalið Það er betra en nokkur auglýsing Tilboðsverð á ávöxtum Niðursoðnir ávextir Coaktail 1/1 ........ kr. 86.00 Coaktail 1/2......... kr. 57.00 Perur 1/1 .......... kr. 78.00 Perur 1/2 .......... kr. 46.00 Ferskjur 1/1 ........ kr. 76.00 Ferskjur 1/2 ........ kr. 50.00 Jarðaber 1/1 ....... kr. 118.00 Tískusýning Laugardaginn 12. des. hefst kl. 16.30 í kaffiteríunni bjóðastgóðar veitingar í fallegu umhverfi Kaffihlaðborð föstudag og laugardag f kjötdeild: Kynning á „Hraunbergslæri” með „Toro” piparsósu frá kl. 16.00 föstudaginn 11. desember ihagfírðingabúd Þú þarft ekki annað!

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.