Feykir - 31.08.1988, Qupperneq 8
31. ágúst 1988 30. tölublað, 8. árgangur
Auglýsingar þurfa að berast eigi síðar
en um hádegi á föstudögum
TAXI Nýja bílasalan
Sauðárkróki Borgarflöt 5
Sími 5821 Þú færð bílinn hjá okkur
985-20076
985-21790 Símar 5821 og 6677
Elsta timburkirkja landsins:
Gagngerum endurbótum lokið
Nk. sunnudae verður hátíðar-
guðsþjónusta í Knappsstaða-
kirkju í Fljótum. Tilefni
guðsþjónustunnar er að gagn-
gerum endurbótum sem átt
hafa sér stað á kirkjunni á
síðustu misserum er lokið og
jafnframt að nú eru 150 ár
liðin frá því bygging Knapps-
staðakirkju elstu timburkirkju
landsins hófst. Það var árið
1838 sem kirkjan á Knapp-
stöðum hrundi í miklum
landskjálfta og það sama ár
var hafist handa við byggingu
nýrrar kirkju úr timbri.
Fyrir fjórum árum var
stofnað áhugamannafélag sem
beitti sér fyrir varðveislu
kirkjunnar. Kirkjan er á skrá
þjóðminjasafnsins um hús-
friðun og hefur Þorsteinn
Gunnarsson arkitekt haft
umsjón með endurbótunum.
Byggingafélagið Hlynur hefur
annast verkið undir stjórn
Bjöms Guðnasonar bygginga-
feykjur
húsmóðurina í bænum sím-
leiðis. Hún vissi ekkert
hvaðan á sig stóð veðrið
þegar Gvendur hringdi og
hafði ekki glóru um hver væri
á línunni. ,,Hvað er þetta
manneskja, þekkirðu ekki
gamla dýnð?,” sagði Guðmund-
ur þá.
Pompidú og Dúddi
Gárungarnir sögðu um árið
þegar Pompidú heitinn
Frakklandsforseti kom hingað
til viðræðna við Nixon
þáverandi Bandaríkjaforseta,
að Frakkinn hafi farið fram á
að sóninum í símanum yrði
breytt þannig að í honum
heyrðist: Pompi dú dú dú,
Pompidú dú dú o.s.frv.
Slökkviliðsstjórinn á Blöndu-
ósi fór hins vegar ekki fram á
að aðvörunarsón slökkvi-
liðsbílsins yrði breytt á neinn
hátt. Enda fráleitt því þaðfer
ekki á milli mála hver er á
ferðinni þegar kviknar í á
Blönduósi. Slökkviliðsstiór-
inn kallaður Dúddi og slökkvi-
bíllinn segir: Dúúddii, Dúúddii,
Dúúddii o.s.frv. Eða það
segja gárungarnir á Blöndu-
ósi að minnsta kosti.
Skothríð
Nýlega var ljallað hér í
blaðinu um baráttu varp-
bænda við svartbakinn. I
máli Árna Snæbjörnssonar
ráðunauts Búnaðarfélags
íslands kom fram að það sem
helst hefði dugað gegn
vargfuglinum væri að reka
hann á flótta með skothríð.
Árni sagðist hafa heyrt þá
sögu úr ofanverðum Skaga-
firði að mörg vor þegar lítil
áta sé í firðinum bíði
svartbakurinn alveg í hundraða-
tali eftir að ungarnir komi úr
hreiðrunum og drepi bróður-
partinn af þeim. Vegna
aðstæðna hafi komið upp sú
hugmynd að verja æðarvörp-
in á þessu svæði með því að fá
skotmenn, einn eða fleiri, til
að aka um veginn þar sem
hann Iiggur niður að strönd-
inni við Austurós Héraðs-
vatna og síðan meðfram
strandlengjunni alveg út að
Ingveldarstöðum á Reykja-
strönd. Með stöðugri stothríð í
ca 2 ferðum á dag yfir
varptímann væri góður mögu-
leiki að halda fuglinum fjarri.
Þessi hugmynd fellur
sjálfsagt í kramið hjá ýmsum,
en öðrum líklega ekki. Og
eflaust yrði starf skotmann-
anna mjög eftirsótt. Þarna
gætu einhverjir fengið skot-
gleði sinni svalað.
7 + 1
Það vakti athygli skrásetjara
Feykja á dögunum þegar
hann átti leið í Bókabúð
Brynjars að þar er nafn
Gvendar dýra notað í
auglýsingaskyni fyrir sölu á
skólavörum. Þ.e.a.s. það
fangamark sem Gvendur tók
sér á sínum tíma, 7+l. Á
rúðunni hjá Binna stendur
reyndar 7+1 78, og vel má
vera að Brynjar geti af þeim
sökum svarið það af sér að
hér sé um notkun á nal'ni
Gvendar að ræða, segjum svo
ef gamla dýrið færi nú í hart.
Annars er örugglega ekki
mikil hætta á þvi. Guðmundur
Andrésson er ekki þannig
maður. Fyrir þá sem ekki
þekkja til er viðurnefnið dýri
tilkomið vegna þess að
Guðmundur gegndi um tíma
starfi dýralæknis. Hann fer
hins vegar frjálslega með
viðurnefnið. Eitt sinn átti
hann eitthvað erindi við eina
Gömul mynd af Knappsstaðakirkju. Nú hafa verið settar tré-
tröppur við kirkjuna í sinni upprunalegu mynd.
meistara.
Til endurbótanna hafa
komið framlög frá hús-
friðunarsjóði ríkisins og auk
þess hafa Fljótamenn, bæði
heimamenn og burtfluttir,
látið fé af hendi rakna. Vill
stjórn áhugamannafélagsins
koma á framfæri þakklæti til
þeirra mörgu sem lagt hafa
þessu málefni lið.
Hátíðarguðsþjónustan á
sunnudaginn hefst kl. 15.00.
Sóknarpresturinn séra Gísli
Gunnarsson og séra Sigurður
Guðmundsson vígslubiskup
þjóna fyrir altari og Séra
Hjálmar Jónsson prófastur
prédikar. Kirkjukór Barðs-
kirkju syngur, organisti er
Rögnvaldur Valbergsson.
Norðurland vestra:
Svipað ástand í
kennaramálum
„Mér sýnist á öllu að ástandið
sé svipað núna og það hefur
verið undanfarin ár. Það vanti
í svona 8-10 stöður og þá
hurtséð hvort fólk með
kennararéttindi eða leiðbein-
endur hafi verið ráðnir, en
undanfarin ár hefur hlutfall
réttindakennara við skólana á
svæðinu verið um 70%,” sagði
Guðmundur Ingi Leifsson
fræðslustjóri á Blönduósi.
Guðmundur sagði að svo
virtist sem ástandið væri
einna verst á Hofsósi,
Skagaströnd og Siglufirði.
Þar vatnaði svona tvær og
hálfa til þrjár stöður á
hverjum stað, en minna
annars staðar. Það geti hins
vegar verið mjög slæmt þó
vantaði ekki nema í eina
stöðu á litlu stöðunum.
Á næstu dögum verður
þónokkuð um fræðslufundi
og námskeiðsem haldin eru á
vegum kennslugagnamið-
stöðvar fræðsluskrifstofu
Norðurlands vestra í sam-
vinnu við Kennaraháskólann,
s.s. námskeið fyrirhannyrða-
kennara ogfræðslufundirum
kennslu íblönduðum bekkjum,
um kennslutækni o.fl.
Esso vill fjölga
geymum
Olíufélagið hf. hefur sótt um
stækkun á lóð birgðarstöðvar
sinnar við Eyrarveginn, ca 20
metra til suðurs. Félagið þarf
á næstunni að koma fyrirtanki
undir 98 oktana bensín. Rými
fyrir það er ekki til staðar á
Króknum og hefur því verið
ekið frá Blönduósi síðan sala á
því hófst.
Afgreiðslu málsins var
frestað á bæjarstjórnarfundi
fyrr í mánuðinum þar sem
ekki lá fyrir umsögn meng-
unardeildar Hollustuvemdar
ríkisins, siglingamálastofnunar
né heilbrigðisnefndar.
Samkvæmt nýlegu deili-
skipulagi af hafnarsvæðinu
eiga olíutankarnir að færst
niður að hafnargarðinum á
uppfyllingu sem gert var ráð
fvrir að sandfangarinn mynd-
aði, en lítið hefur safnast
þar fyrir enn sem komið er.
Á bæjarstjórnarfundinum
urðu nokkrar umræður um
staðsetningu tankanna. Komu
þar fram hugmyndir, sem
virðast eiga fylgi að fagna, að
olíutankarnir verði ekki
staðsettir á hafnarsvæðinu
heldur þar skammt frá,
framarlega á Gránumóum
þar sem þeir yrðu þá að
einhverju eða jafnvel mestu
leyti grafnir í jörð. Með
þessum hugmyndum er verið
að hugsa um fyrirsjánalegan
skort á athafnarými á
hafnarsvæðinu í framtíðinni.
Staðsetning olíutankanna
við Eyrarveginn hefur vakið
nokkurn ugg og hafa menn
tekið misdjúpt í árina. Þeir
sem fastast hafa að orði
kveðið, hafa sagt að ef
sprenging eða eitthvað slíkt
yrði í tönkunum, væri öll
Eyrin þar með nokkur af
stærstu atvinnufyrirtækjum
bæjarins sem þar eru staðsett
í mikilli hættu. Brunamála-
stofnun sá samt ekkert
athugavert við staðsetningu
tankanna á sínum tíma og
hefur einnig nú veitt leyfi sitt
fyrir fjölgun tanka.