Feykir - 05.12.1990, Síða 7
43/1990 FEYKIR 7
Að líta sér nær
Svo ég líti mér nær. Hvaða
landfræðileg rök eru fyrir því
að Skarðshreppur í Skagafirði.
sem umlykur Sauðttrkrók á
alla vegu. nema til sjávarins,
vill ekki undir neinum
kringumstæðum sameiningu
við Sauðárkrók, og kemur
þar með í veg fyrir eðlilega og
sjálfsagða þróun þéttbýlis á
Sauðárkróki.
Landmikið 120 manna
sveitarlélag getur af engu séð
til landlítils sveitarfélags eins
og Sauðárkróks með 2500
íbúa, þó allt séu þetta bræður
og systur. synir og dætur,
afar og ömmur.
Sameining sveitarfélaga
hefur átt sér stað með frjálsri
og óbundinni aðferð. sem
verið hefur í orði kveðnu
síðan á sjöunda áratugnum.
Svo dæmi séu tekin:
Vestur viðDjúp: Hnífsdalur
og ísafjörður, við Breiðafjörð,
þar sem sameinað var þegar
fólkið var flutt burtu. Við
austanverðan Skagafjörð, þar
sem gjaldþrot sveitarfélags
leiddi til sameiningar við
Hofs- og Fellshrepps, en sá
síðast taldi kominn niður
fyrir lágmarks íbúafjölda og
hefði því sjálfkrafasameinast
Hofshreppi.
I Eyjafirði er að eiga sér
stað sameining, þar sem
landfræðilegar forsendur eru
dæmigerðar til sameiningar.
Mér sýnist að með frjálsu
hægaga ngsaðlérði nn i, mu ni
taka 1 - I 1/2 öld að breyta
sveitarfélögunum í það sem
eðlilegt geturtalist. Eðlilegur
samruni sveitarfélaga er um
margt hyrningarsteinn og
forsenda til nýrrar samein-
ingar sóknar utan Stór-
Reykjavíkur.
En hvað veldur tregðunni
til sameiningar? Alþingi,
sjálft löggjafarvaldið er afar
hikandi og fálmkennt. Því
bera vitni nýju sveitarstjómar-
lögin. Samtök sveitarfélaga
eru afar gagnslítil og virka
fremur letjandi en hvetjandi.
Sveitarstjómarmenn eru hik-
andi og óákveðnir. Almenn-
ingur er sinnulaus. Ofögur
lýsing. Það skortir sem sé alla
reisn um grundvallaratriði
íslenskra sveitarstjórnarmála.
Nýtt atvinnu- og
menningarsvæði
Á Alþingi er enginn maður
með mönnum nema hann
boði jarðgangagerð, fyrir
nokkur þúsund ntilljónir
króna.
Allt er það viturlegt bæði
fyrir austan og vestan.
jafnvel ný göng til Siglu-
Ijarðar. Jarðgöng undir Hval-
fjörð geta hins vegar beðið,
bæði of dýr og hafa það að
meginmarkmiðum að auka
miðstýringu til Reykjavíkur
og splundra byggðum norðan
við sig. í rúnt 20 ár hefur
verið barist fyrir styttingu
vega milli byggðakjarna á
Norðvesturlandi, og á brattann
að sækja.
Alþingismenn kjördæntis-
ins hafa gengið þvert á vilja
sveitarstjómarmanna um þessi
mál. Áherslan hefur verið á
hringveginn, sent liggur fjarri
byggðakjörnunum, aðeinunt
undanskildum. Með lagningu
vegar um Þverárfjall munu
leiðir styttast um 50-55 km
milli Skagastrandar og Sauðár-
króks. En leiðin um Vatns-
skarð er um 100 km. Milli
Blönduóss og Sauðárkróks
gætu orðið um 42 km, jafnvel
styttra. Kostnaðurinn við
þessar vegabætur er kannski
um 1-2% af draumaverkunum í
jarðgangagerð.
Þessi þrjú nefndu þéttbýli
gætu við breyttar aðstæður
skapað nýtt atvinnu- og
menningarsvæði. Á annað
hundrað einstaklingar koma
árlega á vinnumarkaðinn á
þessu svæði, en hlutskipti
rnargra hefur verið að flytja
burtu atvinnunnar vegna. Á
þeirri vatnsorku, sem er til
staðar í Húnavatns- og
Skagafjarðarsýslu, er hægt
að byggja upp öflugt atvinnulíf,
t.d stóriðju.
Landkostir eru margfalt
betri en t.d. í Eyjafirði og
fyrir austan. Markvisst hefur
hinsvegar verið komið í veg
fyrir alvöruumræðu um
staðsetningu orkufreks iðnaðar
á Norðurlandi vestra, m.a.
með þeim rökum að hafís
teppti siglingu meira og
minna fyrir norðan land. 1
Þetta er auðvitað bábilja,
því allt að 40-50 ár geta liðið
milli þess að einhver smátöf
verði við siglingar fyrir
Norðurlandi vegna Lss. Kostir
eins og 30-50 km frá virkjun
að iðjuveri eru ekki nefndir.
En hvernigfæri fyriríslenskri
þjóð ef útkjálki Reykjanéss
ytði meira og minna eldvirkur?
BÆNDUR!
Smíöum rúllubaggagrindur sérhannaöar
fyrir stórgripi og einnig sérhannaöar
grindur fyrir sauöfé til aö gefa úti.
Þœr grindur taka tvo bagga .
MJÖG HAGSTÆTT >
VÉLAVERKSTÆÐl K.S.
SÍMI35200, 36010
ALLT VANDAÐAR VÖRUR • SAMTÖK SÉRVERSLANA Á SAUÐÁRKRÓKI
Nytsamar gjafavörur!
Komdu í Fersku
Þaö hressir bætir og kætir
1
Mondial heilsuarmbondin Tesett
Reykelsi Gotterí $&&&?
Ilmkrúsir með furuilm Hnetur
Snyrtivörur Rautt Eöal Ginseng
n Teog tebaukar Sítrónusaftkúr Aðalgötu 9
Ferska
NO SEM FYRR!!
Jólakonfektiö á tilboösveröi
Úrvaíiö hefur aidrei veriö meira
Veriö velkomin
ABÆB
Matvörur og ávextir í miklu úrvali
BÖKUNARVÖRUR OG GOS Á TILBOÐI
Muniö heimsendingaþjónustuna
Lítiö inn - viö erum ávallt í leiöinni
Matvörubúbin hf. Aöalgötu 8
Sími 35303
'lMfi FRÁBÆRT VÖRUÚRVAL
Gjajír fyrir dömur og herra á öllum aldri
Vanti þigfaUega og vandaö gjöfá góöu veröi
átt þú erindi i apótekiö
p-u-. Sauðárkróks Apótek
ME___1—— n
y\
NÚ FER ENGINN ÍJÓLAKÖTTINN OPNUNARTÍMI VERSLANA Á SAUÐÁRKRÓKI1DESEMBER 1
JÓLAFÖTIN OGJÓLAGJÖFINA Laugardagurinn Laugardagurinn 8. des. kl. 10-16 .15. des. kl. 10-18
FÆRÐUHJÁ OKKUR Fimmtudagurinn Föstudagurinn 20. des. kl. 9 - 22 21.des. kl. 9-19
Laugardagurinn 22. des. kl. 10-23
UTJ Mánudagurinn 24. des. kl. 9-12
ASalgötu 4 sími 35965 X SAMTÖK SÉRVERSLANA Á SAUÐÁRKRÓKI