Feykir - 20.02.1991, Blaðsíða 1
rafsjá
Sérverslun
með raftæki
Sæmundargötu 1
Sauðárkróki
Sölur ísfisktogara í Þýskalandi:
Togarar Skagfirðings
komu einna best út
á síðasta ári
Starfsfólk Landsbankans á Sauðárkróki og fulltrúar bankans við opnun útibúsins í Ártorgi 1
sl. mánudag. í fremri röð: Eva Sigurðardóttir, Þórunn Jónasdóttir, Hrefna Þórarinsdóttirog
María L. Friðjónsdóttir afgreiðslustúlkur útibúsins og Jóhann Ólafsson fulltrúi
Samvinnubankanum. í aftari röð eru Gunnlaugur Sigmarsson Landsbankanum á
Skagaströnd, Pétur Erlendsson fyrrv. aðstoðarbankastjóri Samvinnubankans, Sigmundur
Guðmundsson útibússtjóri Landsbankans á Sauðárkróki, Geir Mangússon fvrrv. bankastjóri
Samvinnubankans og Guðjón Guðjónsson fulltrúi Samvinnubankanum.
Borgsveitungar og Staðhreppingar
í hitaveitu hugleiðingum
í fréttum af útgerð og
fiskvinnslu, er yfirleitt mest
áberandi útkoma frvstiskip-
anna, þeirra er selja eingöngu
afla sinn á erlendum markaði
þar sem hærra verð fæst fyrir
aflann. Minni gaumur er
gefinn útgerðuni ísfiskskipa er
gjarnan glíma við að lialda
uppi fullri vinnslu í frystihús-
unum í landi, jafnframt þvi
sem farnir eru nokkrir
sölutúrar vfir árið til að afla
útgerðinni aukinna tekna.
Ekki verður annað séð en
þetta hafi tekist frábærlega
Gott ástand rækju-
miða á Skagafirði:
200 tonna
viðbótarkvóti
Rækjumiðin í Skagafirði
komu vel út við könnun
fiskifræðinga sjávarútvegsráðu-
neytisins nýlega. Levfð var
veiði 200 tonna til viðbótar og
niun sá kvóti duga vinnslunni í
Dögun fram í apríl. Þrír bátar
eru á rækjunni: Jökull,
Sandvík og Þórir.
Vinnsla er komin á fullt í
Dögun fyrir nokkru eftir
daufan janúarmánuð og
flestir þeir sem sagt var upp
fyrir áramótin komnir til
starfa að nýju. Vel hefur
viðrað fyrir bátana til veiða
og þeir auðveldlega náð þeim
20 tonnum yfir vikuna sem
vinnslan í Dögun þarfnast.
vel hjá útgerð Skagfirðings hf
á síðasta ári.
Samkvæmt uppiýsingum
frá LIU hefur Skagfirðingur
mjög líklega verið með hæsta
meðalverð íslenskra togara-
útgerða á Þýskalandsmörk-
uðum á síðasta ári. I níu
siglingum seldu togarar
Skagfirðings 1317 tonn,
mestmegnis karfa, og fengu
147 milljónir fyrir aflann.
Meðalverð á hvert kíló var
112,24 kr., en meðalaverðið á
markaðnum var 101,15 kr.
Hegranesið var með hæst
meðalverð togaranna. 119
kr.
Gísli Svan Einarsson út-
gerðarstjóri Skagfirðings segir
fjarri lagi að þarna ráði
heppni mikið til ferðinni.
„Ahafnirnar eiga stóran þátt
í þessu með góðum frá-
gangi á afla. Skipin héðan
hafa gott orð á sér á
mörkuðum vtra”. Gísli sagði
ennfremur að þrátt fyrir
siglingar togaranna hafi
gengið vel að halda uppi
vinnu í frystihúsunum. Þeir
sem fylgjast með geta
auðveldlega tekið undir þau
orð. Greinilegt er að betra
skipulag eráþessum málum í
seinni tíð.
Skagfirsku togararnir hafa
verið heppnir með sölur það
sem af er árinu. Feykir hefur
greint frá góðri sölu Hegra-
ness í janúar. 6. febrúarseldi
Skafti fyrirtæpar 127krónur
kílóið og daginn eftir
Drangey fyrir rúmar 127.
Alli beggja skipanna var
mestmegnis karfi.
Þessa dagana eru að hefjast
viðræður milli aðila úr
Borgarsveit og Staðarhreppi
annars vegar og Sauðárkróks
hinsvegar um hugsanlega
lagningu hitaveitu á bæjar-
línuna fram að Staðará.
Borgsveitungar liafa lengi
gælt við þá hugmvnd aðkaupa
vatn frá Sauðárkróki, og nú á
að aðhafast í málinu.
Staðarhreppingar liafa einnig
talsverðan áhuga á hitaveitu.
Bæir á þessu svæði eru flestir
kyntir upp með rafmagni, og
vonast bændur til að hita-
veitan reynist ódýrari kostur
þegar fram í sækir. Sam-
kvæmt athugun sem Orku-
stofnun gerði fyrir nokkrum
árum er mögulegt að koma
vatninu frá hitaveitu Sauðár-
króks nægjanlega heitu allt
fram að Reynistað. en
það er um 70 gráðu heitt þar
sem það kemur upp í
Sjáva rborgarlandi.
Ef að framkvæmdum
verður, er talið ólíklegt að
hitaveita verði lögð á bæi í
Þessa dagana er unnið að
uppsetningu rykhreinsikerfis í
SteinullanerksmiðjunnL Kcmur
þetta til með að auðvelda
mjög þrif í verksmiðjunni og
auka hollustu starfsmanna.
Búist er við að kerfið verði
gangsett í lok þessarar viku
eða byrjun þeirrar næstu.
Það voru norskir aðilar
sem smíðuðu kerfið sam-
kvæmt útboði. Kostar það
Sæmundarhlíð. Bæði vegna
dreifbýlis í Hlíðinni ogeinser
talið hæpið að unnt yrði að
skila vatninu nægjanlega
heitu þangað.
um 7 milljónir með uppsetn-
ingu. sem starfsmenn Stein-
ullarverksmiðjunnar og menn
frá Vélsmiðju KS sjá um.
Kerfið liggur um allan
vélasalinn og ofnhúsið, mcð
fjölda stúta sem hægt er að
tengja ryksugurnar við. Utan
dyra er síló sem allt ryk úr
verksmiðjunni safnast í og
það síðan losað á auðveldan
hátt beint niðurá flutningstæki.
Rykhreinsikerfi
í Steinullinni
Bílaviðgeröir - Hjólbarðaverkstæði
Réttingar - Sprautun
&
íflKI bilavtrklnli
SÆMUNDARGÖTU - SlMI 35141
Almenn rafverkatakaþjónusta
Frysti- og kæliþjónusta
Bfla- og skiparafmagn
___-------------------- Sími: 95-35519
IV^fCn^fTT Bílasími: 985-31419
Aðalgötu 26 Sauðárkróki Fax: 95-36019