Feykir - 03.04.1991, Síða 3
12/1991 FEYKIR 3
Svanhildur Guðjónsdóttir situr ein og saumar fána o.fl.:
„Um að gera að halda eins
lengi áfram og mögulegt er”
„I‘að kemur enginn til okkar
sem eru orðin þetta fullorðin
til að bjóða okkur vinnu. Það
er þá vinna sem enginn vill og
því er um að gera að halda
áfram eins lengi og mögulegt
cr", segir Svanhildur Guðjóns-
dóttir, roskin húsmóðir á
Hofsósi, sem hefur tekið
saumastofuna þar á leigu, en
Kaupfélag Skagfirðinga hætti
starfrækslu hcnnar um síðustu
áramót.
Það verður því haldið
áfram að sauma íslenska
fánann á Hofsósi. Þorpiðvið
austanverðan Skagafjörð er
eini framleiðslustaður lians
og annarra þjóðfána hér á
landi, en innllutningur á
fánum er talsverður.
,,Eg mun sauma vinnu-
sloppa og fatnað fyrir hina
ýmsu vinnustaði; mjólkur-
samlög, sláturhús, verkstæði
og ýmislegt lleira. Maður er
að vona að gamlir viðskipta-
vinir saumastofunnar haldi
tryggð og nýir bætist við. Það
væri gaman að geta útvegað
einni til tveimur konum til
viðbótar vinnu, eins og hefur
verið síðustu misseri þegar
verkefni safnast upp. Þá
hefur heiniavarnarliðið, seni
ég kalla, verið ræst, en það
eru þær konur sem unnu á
sumastofunni þegar starf-
semin var sem blómlegust á
árunum”, segir Svanhildur
Guðjónsdóttir.
Svanhildur situr drjúgum við
saumavélina.
Framkvæmdum við
Faxatorgið lokið í sumar
Það er eins gott af hafa gát á hrossum nú þegar vorið nálgast og fljót gerast straumhörð. Hér
eru þeir Kárastaðamenn að leiða hrossin frá Miklavatni og Héraðsvötnum.
Sælan að byrja
Verður marserað milli húsa eins
og þegar GÓ var upp á sitt besta
Guttormur hér í miðið ásamt
fögrum fljóðum, staddur í
Blönduvirkjun.
„Ég á margar minningar úr
Sæluviku frá þeim tíma sem ég
var gjaldkeri í framkvæmda-
stjórn Bifrastar. Þá sá
stjórnin alltaf um dansleikina
í Sæluvikunni og stjórnarliðar
skiptust á að selja inn.
Sæluvikan hér áður fyrr var í
raun og veru allt öðru vísi en
hún er núna”, sagði Guttormur
Oskarsson eitt sinn í samtali
við blaðamann Feykis. Er vel
við hæfi að birta hér eitt
minningarbrot Guttorms, en
Sæluvikan hefst einmitt um
næstu helgi og stendur í eina
viku.
,,Ég man eftir Sæluvikunni
1956. Þá var mjöggott veður,
vorveður eiginlega og mikið
mannhaf sem sótti Sæluna
víðs vegar að. Þá var
Sigurður frá Fosshóli feng-
inn hingað til að stjórna
gömlu dönsunum. Undir
hans stjórn tók fólkið
marsinn alveg utan frá hótel
Mælifelli og suður í Bifröst.
Áður en farið var að
selja inn á dansleikinn
náði biðröðin alveg lengst út
á götu og við sáum okkar ráð
vænst að fá lögregluna til
aðstoðar svo að enginn
træðist nú undir í atgangnum.
Þá seldum við inn í Bifröst
900 miða og sjálfsagt hefur
fólkið verið þó nokkru fleira.
En samt kom aldrei neitt
fyrir á þessum dansleikjum,
þó að húsið væri svona
yfirfullt”, sagði Guttormur
Oskarsson.
Faxatorgið mun taka nokkrum
breytingum í sumar, þar sem
meiningin er að Ijúka fram-
kvæmdum við torgið, malbik-
un og hellulögn. Það og
malbikun Lindargötu eru
helstu framkvæmdirnar í eldri
bæjarhlutanum. Hinsvegar er
endurgerð Kirkjutorgsins ekki
á dagskrá í sumar.
Innkeyrslu á Faxatorgið
verður breytt á þann veg að
framvegis verður aðeins ekið
inn að sunnan. Innkeyrslunni
að norðan verður lokað með
áframhaldandi hellulagðri
gangstétt í suður, en steyptir
gangstátarbútar við bílastæðið
verða fjarlægðir. Þá verður
hellulögð gangstétt meðfram
Safnahúsinu og hluti bíla-
stæðisins sem ekki er bund-
inn varanlegu slitlagi í dag
malbikaður, en það er
rúmlega helmingur þess.
Endurgerð Kirkjutorgsins
er ein þeirra framkvæmda
sem ekki var hægt að ráðast í
á þessu ári vegna peninga-
leysis. Reyndar virðist sem
enn sé ekki endanlega
ákveðið hvað verði um
Rússland, þó að síðasta
bæjarstjórn hafi samþykkt
að húsið yrði rifið. Raddir
hafa heyrst í bæjarstjórninni
að undanförnu, að vel komi
til greina að húsið lai að
halda sér. Rússland með
viðbyggingu gæti orðið hið
snotrasta hús.
Umhverfi Faxa kemur til með
að breytast í sumar.
Malbikun tveggja gatna á Króknum næsta sumar:
Stórkostlega umhverfisbætandi
Varanlegt slitlag verður lagt á
nokkrar götur á Sauðárkróki i
sumar. Trúlega eru margir
þeirrar skoðunar að lagfæring
einkum tveggja þeirra sé stórt
skref í bættu umhverfi í
bænum. Þetta er gatan
meðfram sjónum á Eyrinni og
Borgarflötin, gatan niður í
iðnaðarhverfið frá Hegrabraut
að húsi vegagerðarinnar.
Malbik verður lagt á
götuna á Eyrinni austan
Slátursamlags, Skjaldar og
Sláturhúss kaupfélagsins. Á
bæjarstjómarfundi á dögunum
var sagt að með þessari
framvæmd væri forráðamönn-
um fyrirtækjanna gert kleyft
að ganga frá lóðum þeirra á
viðunandi hátt. En þetta
svæði meðfram sjónum hefur
fram til þessa litið út fyrir að
vera útibú frá bíla- og
brotajárnshaugum bæjarins.
Við enda Borgarflatarinnar
milli lóða Vöku og Borgar-
innar hefur í leysingum og
úrkomu viljað myndast gífurlegt
fljót og er ósjaldan sem gerð
hefur verið bráðabirgðalag-
færing á hæð götunnar. Með
klæðningunni sem lögð verður
á Borgarflötina í sumar ætti
þetta vandamál að vera úr
sögunni. Þá verður einnig
lögð klæðning á bútinn frá
Borgarllöt niður á Strand-
götuna.