Feykir


Feykir - 04.09.1991, Blaðsíða 8

Feykir - 04.09.1991, Blaðsíða 8
Oháö fréttablaö á Noröurlandi vestra 4.september 1991, 30. tölublað 11. árgangur Auglýsingar þurfa að berast eigi síðar en um hádegi á föstudögum Landsbankinn á Sauðárkróki Afgreiðslutími útibúsins er alla virka daga frá kl. 9.15 ■ 16.00 Sími 35353 Landsbanki íslands Banki allra landsmanna Laxastigi í Kambs- fossi tekinn í notkun Síðastliðinn fimmtudag var formlega tekinn í notkun nýr laxastigi í Kambsfossi í Austurá, einni hliðará Mið- fjarðarár. Laxastiginn er mikið mannvirki, sá lengsti sem byggður hefur verið í einum hluta í laxveiðiá hér á landi, 17 metra hár. Svo virðist sem laxinn kunni að meta þessar nýju samgöngur í ánni, því upp gekk hann strax nóttina eftir að vatni var hleypt á stigann í tilrauna- skini 18. ágúst sl. I dag hafa fimm laxar veiðst ofan við Kambsfoss. Ofan við fossinn opnast nú 10 kílómetra langt veiðisvæði að næstu hindrun sem er Valsfoss, 4-6 metra hár foss skammt neðan afréttargirð- ingar. Fjölda seiða hefur verið sleppt á þetta svæði flest ár síðan 1980 og hefur sýnt sig að ræktunarstarfið skilar árangri. Það var Guðmundur Gunnarsson verkfræðingur í Reykjavík sem hannaði laxa- stigann. Verktaki var Loft- orka hf í Reykjavík, verk- stjóri á staðnum Gylfi Hallgrímsson og eftirlits- maður af hálfu heimamanna Guðmundur Karlsson Mýrum. Kostnaður við verkið losar 20 milljónir. Fullnaðarupp- gjöri er ekki lokið. Við vígslu stigans kom fram í máli Böðvars Sigvalda- sonar formanns Veiðifélags Miðfirðinga, að framkvæmdir hafi gengið samkvæmt áætlun, en stærsti sigurinn sé þó að laxinn gangi svo ákveðið upp. A síðasta ári var samþykktur í félaginu samn- ingur um gerð laxastiga og ráðstöfun á svæðinu fyrir ofan Kambsfoss til ársloka 2004. Jarðir sem land eiga að laxgengu svæði verða full- gildir aðilar í veiðifélaginu við ársbyrjun 1992. Miðfirðingar hafa lagt áherslu á fjölgun veiðistaða í ánni allt síðan veiðisvæði voru lagfærð með sprenging- um 1941: í Kistufossi, Hlíðarfossi og Kollufossi. í ár stefnir í að 200 löxum fleiri veiðist í Miðfjarðará en á síðasta ári. „Ræktunarstarfið gengur mjög vel og þetta virðist vera á uppleið. Við erum að giska á að helmingur fisksins sem komið hefur úr ánni í sumai' sé úr ræktuninni”, sagði Böðvar. Ibúar Skógargötu 6 b Sauöárkróki: Þurfa að treysta því að kaðlarnir haldi þakinu á húsinu Fólk er misjafnlega í stakk 1 búið að lagfæra tjón er verður á húseignum í veðrum. Þegar þakið var að rifna af húseigninni Skógargötu 6 b í febrúarveðrinu í vetur, var gripið til þess ráðs að tjóðra það niður með köðlum. I veðrinu fyrir viku reyndi á kaðlana, þar sem húseigandi hefur ekki haft aðstæður né efni á að ráðast í viðgerðir. „Þetta er hræðilegt ástand fyrir okkur og nágrannana. Mér leist ekkert á blikuna, enda ungt barn og sjúklingar í húsinu. Þegar hvassast var fannst okkur þakið lyftast og nælonþræðirnir væru að gefa sig. Eg dreif mig því út í 011^001 og hélt dauðahaldi í kaðalinn. Það var ekki um annað að ræða fyrir mig en hanga þarna eins og hross á streng”, sagði Armann Kristjáns- Þakið á Skógargötu 6 b hefur verið tjóðrað niður síðan í febrúarveðrinu í vetur. son húseigandinn á Skógar- götunni. Armann sagðist ekki hafa nein efni á því að lagfæra þakið, þar sem hann væri frá húsnæðisstofnun fyrir láni. „En það ætlar að verða bið á þessum peningum. Davíð og hans menn liggja á þessu eins og ormar á gulli”, öryrki, en vilyrði hefði hann sagði Ármann. Rúllubaggar fjúka í hvassviðrinu um miðja síðustu viku gerðist það m.a. að rúllubaggar, sem staðið höfðu í viku á túninu á Bergstöðum, fuku út í skurð. I nágrenninu, á bænum Kimba- stöðum, tókst á loft skúrbygg- ing með mann innanborðs og fauk eina 20 metra. Viðar bóndi á Bergstöðum sagði að það hefði verið gríðarlega hvasst í verstu hviðunum og hann hefði ekki ætlað að trúa sínum eigin augum, þegar rúllubaggarnir voru komnir út í skurð. Talið er að rúllubaggar séu um 300-500 kíló að þyngd. Á Kimbastöðum var Hróðmar bóndi að loka gluggum á skúrbyggingu við bæinn. I þann mund sem hann er að loka síðasta glugganum gengur snörp vindhviða yfir, skúrinn tekst á loft ogflýgureina 20 metra. Hróðmar slapp með smá marbletti og skrámur en skúrinn þoldi ekki flugferðina og er mikið skemmdur. Trúlega hefur verið einna hvassast á þessu svæði, á mörkum Skarðs- og Staðar- hrepps. Talvert tjón varð þó á Sauðárkróki. Stafaði það mestmegnis af lauslegu dóti sem fauk. Langt var síðan vind hafði hreyft að einhverju ráði og fólk því ekki haft varann á. Enn einu sinni er haustið í nánd og göngur og réttir á næsta leyti. [ j','foS • í, -M ,?4\, mw j IL1 Helstu réttir haustsins Skarðarétt Skag....................... laugard. 7. sept. Hrútatungurétt V.-Hún................. sunnud. 8. sept. Miðfjarðarrétt V.-Hún................. sunnud. 8. sept. Staðarrétt Skag....................... sunnud. 8. sept. Kleifarétt Skag....................... sunnud. 8. sept. Víðidalstungurétt ................... föstud. 13. sept. Auðkúlurétt A.-Hún...................laugard. 14. sept. Deildardalsrétt ..................... laugard. 14. sept. Laufskálarétt Skag................... laugard. 14. sept. Stafnsrétt........................... laugard. 14. sept. Unadaldsrétt Skag.................... laugard. 14. sept. Undirfellsrétt A.-Hún................ laugard. 14. sept. Valdarásrétt V.-Hún.................. laugard. 14. sept. Hlíðarrétt A.-Hún.................... sunnud. 15. sept. Kleifarétt Skag...................... sunnud. 15. sept. Mælifellsrétt Skag................... sunnud. 15. sept. Skrapatungurétt A.-Hún............... sunnud. 15. sept. Silfrastaðarétt Skag.................. mánud. 16. sept. Skálárrétt Skag..................... laugard. 21. sept. Minni-Reykjarétt Skag................ sunnud. 22. sept. Stíflurétt Skag...................... sunnud. 22. sept. Stóðréttir verða síðan í Skarða-, Silfrastaða- og Staðanétt í Skagafirði sunnud. 15. september. í Skrapatungurétt í A,- Hún. laugardaginn 21. og Laufskálarétt í Hjaltadal verður 5. október.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.