Feykir - 25.09.1991, Page 5
33/1991 FEYKIR 5
mér þónokkru af verkfærum,
bæði litlum handverkfærum
og trésmíðavél sem ég keypti
mér. Þetta hugðist ég nota á
elliárunum, en mér var
ekkert farið að lítast á að ég
hefði not af þessu þar sem ég
lá fárveikur uppi á sjúkrahúsi.
Jafnvel þó ég kæmist á
lappirnar aftur bjóst ég
aldrei við að fá slíka heilsu
sem ég hef í dag”.
Fyrsta fiðlan
smíðuð gegnum
síma
Og hvernig barstu þig nú að
þegar þú byrjaðir á fiðlu-
smíðinni?
,,Eg byrjaði á því að
hringja í frænku mína austur
á Raufarhöfn, því ég vissi að í
hennar fórum var önnur
tveggja fiðla sem föðurbróðir
minn hafði átt. Ég fékk hjá
henni ýmis mál af fiðlunni og
síðan hófst smíðin. Hún varð
Þoli ekki að horfa upp á Gamla bæinn svona
Þegar ekið er frá Varma-
hlíð til Sauðárkróks blasir
við ferðalöngum blómleg
sveit og vel byggð hús. Þegar
nær kaupstaðnum dregur sér
maður nýjan byggðakjarna,
rétt innan við sjúkrahúsið og
þá spyr maður sjálfan sig, „er
allt svona vel byggt á
Sauðárkróki?”. En reyndin
verður önnur þegar utar
dregur á Króknum.
Utan við Safnahúsið gefur að
líta gömul hús sem varla eru
mannabústaðir og sum alls
ekki. Sérstaklega finnst mér
Aðalgatan ljót að sjá, allar
gömlu byggingarnar niður-
níddar vegna viðhaldsleysis.
Mikið væri það fallegra að
gömlu húsin yrðu látin
hverfa, en þau eru látin
standa og fúna og verða
engum til gagns eða ánægju.
Þetta eru húsin nr. 16 og 18
við Aðalgötuna.
Nokkrar af fiðlunum sem Kristinn hefur smíðað síðan hann hóf
fiðlusmíðina á árinu 1989.
reyndar ekki alveg eins og
hún átti að vera”.
Fiðlurnar sem Kristinn
hefur smíðað eru 11 að tölu.
Hann er ekki að þessu til að
hagnast og hefur einungis
selt eina fiðlu. „Þetta er
ákaflega gaman, auk þess að
smíða gripinn svo hann líti
þokkalega út, reynir maður
alltaf að gera betur og betur í
sambandi við hljóminn. Það
er ekki sami hljómur úr
nokkrum tveim fiðlum”.
I fyrstu fiðlurnar notaði
Kristinn íslenskt birki nema
furu í forstykkið. Venjulega
er notaður hlynur að megin-
uppistöðu og greni í forstykkið.
Kristni tókst að útvega sér
þetta efni í gegnum Michael
Clark tónlistarkennara á
Akureyri og íslenskan fiðlu-
smið sem starfar í Luxem-
burg, Hans Jóhannsson.
Eins og allir vilji
hjálpa mér
„Það er eins og allir vilji
hjálpa mér, það er svo
merkilegt með það. Bjarni
sonur minn hefur t.d. sýnt
fiðlusmíðinni mikinn áhuga.
Michael og Hans hafa hjálpað
mér mikið. Hans er búinn að
segja mér mikið til og ég má
alltaf leita til hans. Ég heldég
geti sagt að í dag viti ég
nokkurn veginn hvernig eigi
að smíða fiðlu.
Ég heimsótti Guðnýju
Guðmundsdóttur konsertmeist-
ara á síðasta vori. Hún og
maður hennai' Gunnar Kvaran
sellóleikari tóku ákaflega vel
á móti mér. Guðný fór með
mig inn í lítinn tónlistarsal
sem er á heimilinu og spilaði
á fiðlurnar mínar ásamt
bandarískum píanóleikara
sem var í heimsókn. Þetta var
sko ekkert fálm hjá Guðnýju
og henni líkaði bara vel við
fiðlurnar og hafði einstak-
lega gaman af því og var
hissa á að ég skyldi geta notað
íslenska birkið í smíðina.
Guðný ætlar að halda
tónleika hér á Sauðárkróki í
haust og leika þá á fiðluna
mína lika”.
Þegar litið er inn á
vinnustofuna eða verkstæðið
hans Kristins, er augljóst að
þar gengur um snyrtimenni
og fagurkeri. Fiðlusmíðinni
hefur hann ekki sinnt síðan í
vor enda nóg að gera. Tveir
píanóstólar eru nær fullgerðir á
verkstæðinu. Tvö byssuskefti
smíðaði hann í vor, barna-
vöggu með 36 renndum
pílum og ýmislegt fleira.
Kristinn segist ekki þurfa að
kvíða því að hafa ekki
eitthvað fyrir stafni.
Svo er lóð nr. 22 sem eftirer
að byggja á. Það mætti
endurbyggja á þessum lóðum,
sem myndi lífga upp á
norðurbæinn með byggingu
nýrra húsa þar. Lóðirnar
þarna eru vel í sveit settar
hvað varðar rýmri staðsetn-
ingu til að endurnýja gamla
miðbæinn, því annars væri
hætta á að gamli hluti
kaupstaðarins liði undir lok,
og yrði engum til gagns,
hvorki íbúum þar né öðrum
Sauðkrækingum að ekki sé
talað um neikvæða fjárhags-
afkomu núverandi íbúa þar.
Óskandi væri að bæjar-
stjórnin sæi að sér í þessum
efnum og fleiri, og gæfi betur
gaum að því sem betur mætti
gera. Akbrautum og grænum
svæðum mætti koma víða
við í gamla bænum. Ég sem
er burtfluttur Sauðkrækingur
Þannig lítur gamla Blöndalshúsið út í dag.
finn til með staðnum þegar ég
kem á mínar æskustöðvar og
þoli ekki að horfa upp á
gamla bæinn fara í rúst á
kostnað þess nýja. Vonast ég
því til þess að bæjarstjórn
Sauðárkróks geri eitthvað í
þessum málum.
Með bestu kveðju.
Gamall Skagfirðingur.
HUSNÆÐISREIKNINGUR
Réttur til húsnæðisláns
Há ávöxtun að viðbættum ríflegum skattaafslætti
gerir Húsnæðisreikning Búnaðarbankans að
einum besta spamaðarkosti sem völ er á.
BUNAÐARBANKI ISLANDS
-Traustur banki
Útibúið á Sauðárkróki
Afgreiðslurnar Hofsósi og Varmahlíð