Feykir


Feykir - 06.11.1991, Blaðsíða 5

Feykir - 06.11.1991, Blaðsíða 5
39/1991 FEYKIR 5 Jón Karlsson nýkjörinn varaformaður VMSI: „Ætla að sýna að þeir sem búa langt frá Reykjavík geti gert þetta jafn vel" „í sjálfu sér er þetta ekki svo mikil breyting fyrir mig. Eg hef verið í stjórn sambandsins í 10 ár og talið mig vera sæmilega virkan í kringum kjarasamninga og annað”, sagði Jón Karlsson formaður Verkamannafélagsins Fram á Sauðárkróki, en hann var á dögunum kosinn varaformaður Verkamannasambands Islands, hlaut 70% atkvæða á móti 30% Hrafnkels Jónssonar frá Eskifirði. Aðspurður sagði Jón að kosning sín hefði enga sérstaka þýðingu fyrir kjör- dæmið. Það þætti hinsvegar sjálfsagt að dreifa stjórnar- fólki VMSÍ um landið. Nú eru tveir landsbyggðarmenn komnir í æðstu stjórn sambandsins í stað manna af þéttbýlissvæðinu á suðvestur horninu, Björn Grétar á Hornafírði og Jón Karlsson í stað Guðmundar J. í Dags- brún og Karls Steinars af Suðurnesjum. Auk þessara tveggja þungaviktarmanna gaf Ragna Bergmann ekki kost á sér í stjórn VMSÍ. Baklandið minna hjá okkur „Þessi breyting hefur bæði kosti og ókosti. Það var sterkt fyrir þá að koma úr svona stórum félögum og tinna æðasláttinn í gegnum þau. Baklandið hjá okkur er ekki eins stórt hvað þetta snertir en við verðum að vinna það upp á annan hátt. í mér er sá metnaður að sýna að þeir sem búa nokkur hundruð kílómetra frá Reykjavík geti sinnt stjómar- störfunum ekki verr en þeir sem búa á höfuðborgarsvæð- inu”. Nú er sama formið og í síðustu stjórn, að Alþýðu- bandalagið á formanninn og Alþýðuflokkurinn varafor- manninn. Er þetta föst regla eða hvað? ,,Nei, þetta fer einvörð- ungu eftir því hvaða fólk er tilbúið að gefa kost á sér í þessar stjómunarstöður. Sann- leikurinn er sá að það er leitun að fólki í þetta. En vissulega hefur verið reynt að Mikill bridsáhugi á Hvammstanga Mikill áhugi er nú um þessar mundir fyrir brids á Hvamms- tanga og má að einhverju leyti rekja hann til stórkostlegs árangurs Islendinga er þeir urðu heimsmeistarar á heimsmeistara- mótinu í brids nú í haust. Bridsnámskeið hefur verið sett á laggirnar og eru það Unnar Atli Guðmundsson og Guðmundur Haukur Sigurðsson sem standa að þessu námskeiði fyrir hönd bridsfélagsins á staðnum. Að sögn Unnars þykir aðsókn á námskeiðinu alveg viðunandi miðað við íbúafjölda á Hvamms- tanga, en á það innrituðu sig tíu manns. Laugardaginn 2. nóv. s.l. var Guðmundarmótið í brids haldið á Hvammstanga. Var þarna um að ræða tvímenningsmót og kepptu 32 pör. Mót þetta er haldið ár hvert fyrsta laugardag í nóvember á Hvammstanga og var það fyrst haldið árið 1980 svo þetta mun vera í tólfta sinn sem það er haldið. Gefandi verðlauna var Sparisjóður Vestur- Húnavatnssýslu. Guðmundarmótið er tileinkað Guðmundi Kr. Sigurðssyni, heiðursfélaga bridsspilara, keppnis- stjóra og aðalhvatamanni brids- hreyfingarinnar á íslandi. Hann er fæddur 22. ágúst árið 1902 og er enn að spila. Bridsfélag Vestur-Húnvetninga Hvammstanga var stofnað 2. október 1977, en bókfærð spilamennska hefur verið síðan 1967. Helstu úrslit úr keppnum í haust eru sem hér segir: 8. 10. Tvímenningur 1. Einar Jónsson/Örn Guðmunds- son ................. 72 stig 2. Sigurður Þorvaldsson/Guð- mundur H. Sigurðsson 71 stig 3. Eggert O. Levý/Steingrímur Steinþórsson ........ 67 stig 15. 10. Butler tvímenningur 1. Marteinn Reimarsson/Unnar Atli Guðmundsson ... 89 stig 2. Einar Jónsson/Örn Guðjóns- son .................. 88 stig 3. Karl Sigurðsson/Kristján Björnsson ............ 87 stig 22. 10. Tvímenningur 1. Sigurður Þorvaldsson/Guð- mundur H. Sigurðsson 116 stig 2. Bjamey Valdimarsdóttir/Val- gerður Jakobsdóttir . 115 stig 3. Eggert Karlsson/Steingrímur Steinþórsson ......... 113 stig 2. 11. Guðmundarmót 1. Jón Sigurbjörnsson/Asgrímur Sigurbjörnsson ....... 182 stig 2. Kristján Blöndal/Viðar Jóns- son .................. 162 stig 3. Þórir Leifsson/Þorsteinn Pétursson ............ 145 stig halda ákveðnu jafnvægi í stjórn sambandsins”. Nú er Alþýðuflokkurinn í stjórn en Alþýðubandalag í stjórnarandstöðu. Verður þú var við það innan VMSI í dag? Rétt að byrja „Nei alls ekki. Verkalýðs- hreyfingin er orðin mjög fagleg og ég veit ekki um neinn verkalýðsleiðtoga sem lætur fjarstýrast af pólitísk- um flokkum. Þetta hefur breyst mikið á 20-30 síðustu árum, hvað þá ef farið er enn lengra aftur. Við reynum að Jón Karlsson. meta hvað er okkar umbjóð- endum fyrir bestu á hverjum tíma og vinnum samkvæmt því”. Nú eru kjarasamningar framundan. Sýnistþérstefna í átök á vinnumarkaðnum? „Það er gjörsamlega ómögu- legt að segja til um það. Þetta er rétt að byrja. Menn rétt búnir að móta kröfurnar en samningaviðræður ekki hafnar. Það er því alltof snemmt að segja nokkuð til um þessa hluti. Þetta fer eftir svo mörgu”, sagði Jón Karlsson. Villeroy&Boch GLÆSILEQ GJAFALÍriA: Kökudiskar könnur, krúsir, matar- og kaffisteli HLÝJU MYMDATEPPirí KOMIN í MIKLU ÚRVALI M.A. HESTAMYHDIR 3 QERDIR Rúmföt sængur koddar púöar HÁTÍIN búðin þín Sæmundargötu 7 Sími 35420 Qíknarfelójj, söfhuðir, skólar\ íþróttafélqg o.fl. sem eru ífjáröflunarhugleiðingum. er rétti tíminn til að láta prenta jólakortin. Qitprentum eftir Ijósmyndum og teikningum. Qeitið upplýsinga tímanlega. AÐALGÖTU 2 - SÍMI 95-35711 SAUÐÁRKRÓKI

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.