Feykir - 22.12.1992, Blaðsíða 3
45/1992 FEYKIR3
Bændur hagnast á
að klippa dilka
Einstaka Ixmdi tók það til bragðs í
haust að rýja sláturlömb sín, og
hagnaðist vel á því, þar sem um
520 krónur fást fyrir ull af
mcðallamhi, en cinungis 170
krónur fyrir gæruna til sútunar-
stöðva. Sigvaldi Böðvarsson bóndi
á Mýrum II við Hrútafjörð er
einn þeirra fáu bænda sem rúði
öll sín sláturlömb. Sigvaldi scm
er alvanur og fljótur rúnings-
maður, reiknar sér 350 krónur í
laun fyrir rúning á hverju lamhi,
og segir að ef hann hefði alltaf
haft svona hátt kaup við rún-
inginn, ætti hann orðið digra sjóði.
Bændablaðið og Flóinn hafa
fjallaó um þennan þátt ullarmál-
anna undanfarið. Bændablaðið segir
að þessi aukabúgrein sé ekki vel
séð, enda mundi hún kosta ríkis-
sjóð cinar 150 milljónir króna í
auknum niðurgreiðslum ef allir
bændur færu að stunda þetta, en
stefnt hefur verió að minnkun
niðurgreiðslna frekar en hitt á
stjórnarheimilinu. Það sem milli-
liðurinn greiðir fyrir ullina er um
20% af útsöluverði, hinn hlutinn
tæplega 80% eru niðurgreiðslur.
Jóhann Már Jóhannsson í
Kellavík í Hegranesi klippti í
haust gærur af öllum lömbum
sínum eftir að þeim hafi verið
slátrað, en hann óttaðist að ganga
of nærri gærunni við rúning fyrir
slátrun og særa dilkinn svo hann
félli í kjötmati. Jóhann sótti um
leyfi til að klippa ullina af
gærunum og segir að það hafi strax
komið í ljós að „kerfið“ hafi ekki
ætlað að leyfa sér að ná í auka-
pening með þessu móti. Hann fékk
þó undanþágu að gera þetta einu
sinni en aldrei meir.
Jóhann var síðan viðstaddur
mat á ullinni og átti frekar von á
þokkalegri flokkun, þar sem ull af
heimaslátruðu frá honum hafði
vcnjulega farið nokkuð jafnt í
fyrsta og annan flokk. „Þetta endaði
með því að ég strunsaði út eftir
nokkuð frjálsleg orðaskipti við
yfirmatsmanninn. Það var aó vísu
örlítið blóð á stöku stað en hann sá
blóð „út um allt“ og flokkaði þessa
bestu ull sem hægt er að fá ýmist í
2. eða 3. flokk”, segir Jóhann.
Hann þurfti að henda gærunum þar
sem sútunarverksmiðjur vildu ekki
kaupa þær án ullar.
Sigvaldi á Mýrum klippir sín
lömb fyrir slátrun, og skilur eftir
smákraga á hálsi og kviö, til að
þokkalegt sé aó handsama þau í
sláturhúsi. Ekki er útséð með að
gærur Sigvalda seljist ekki þótt
snoðaðar séu, en nokkuð ljóst að
Sigvaldi má vel við una.
Söngur í Miðgarði
yfir hátíðarnar
Bæði Rökkurkórinn og Karla-
kórinn Heimir verða með
söngskemmtanir yfir hátíð-
arnar. Rökkurkórinn verður
með sína skemmtun í Mið-
garði á annan í jólum, og
Heimir verður síðan með ára-
mótaskemmtun á sama stað
2. janúar. Venjulega hefur
Heimir verið meö þrettánda-
skemmtun, en þar sem þrett-
ándinn lenti í miðri viku að
þessu sinni varð að færa
skemmtunina fram.
Fjöldi cinsöngvara kemur
fram meö Rökkurkórnum aö
þessu sinni. Þeir eru Valgeir
Þorvaldsson, Ásgeir Eiríksson,
Svana Berglind Karlsdóttir,
Sigurjón Jóhannesson og Mar-
grét Stefánsdóttir. Stjórnandi
Rökkurkórsins er Sveinn Ama-
son og undirleikari Tomas Higger-
son. Að lokinni söngskemmt-
uninni leikur hljómsveit Ingi-
mars Eydal fyrir dansi.
Þrír einsöngvarar syngja
meö Karlakómum Heimi laug-
ardaginn 2. janúar. Þeir eru
bræðumir Pétur og Sigfús Pét-
urssynir og Einar Halldórsson.
Stjómandi Heimis er Sólveig S.
Einarsdóttir og undirleikari Tomas
Higgerson. Þá skcmmta Gal-
goparnir frá Akureyri, meö
Óskar Pétursson fremstan í
flokki, og að lokum leikur
hljómsveit Geirmundar fyrir
dansi. Báöar söngskemmtan-
imar hefjast kl. 21.
Tíunda skáldsaga Birgittu
„Nei, það er alveg fjarri því
að ég lifi í einhverjum ímynd-
uöum heimi, þó svo að skáld-
sagan höfði svona sterkt til
mín. Þvert á móti held ég að
þetta viðfangsefni geri mig
raunsærri, og foröi mér frá
því að bíta í mig einhverjar
ranghugmyndir”, segir Birg-
itta Halldórsdóttir rithöfúndur
á Syðri-Löngumýri. Enn ein
skáldsagan kemur frá Birg-
ittu fyrir þessi jól, sú tíunda í
röðinni, en síðan sú fyrsta
kom út fyrir jólin 1983,
hefur árlega komið saga úr
ritsmiðjunni á Löngumýri
fyrir hver jól.
Nýjasta saga Birgittu er
reifarakennd eins og þær fyrri.
Þessi heitir Dætur regnbogans
og er gefin út af Skjaldborgu
eins og fyrri bækur höfundar. í
sögunni er lesandanum boöiö í
ferð til fortíóarinnar, þar sem
hjátrú og hindurvitni ráða
ríkjum. Þar kynnist hann Mar-
gréti, 16 ára stúlku, sem nauóug
er gefin sýslumanninum, sem
hæglega gæti verið faðir
hennar, og baráttu Margrétar
viö örlögin og ástina. Einnig
Halldóru vitru, þessari dular-
fullu konu sem vill ckki ræða
fortíð sína. Sú spuming cr áleitin
hvort Halldóra sé nom eða gáfuð
kona á undan sinni samtíð.
I sögunni eru margar áhuga-
verðar pcrsónur, svo sem eins
og séra Matthías sem einungis
sér biskupsembættið í hillingum,
Andrew, Englendingurinn fagri,
sem kemur hjörtum ungu kvenn-
anna til að slá hraðar, og þá
kcmur við sögu Blóðugi-Bcrgur,
þcssi grimnii lostafulli böóull.
Fyrst og fremst er þetta
samt saga kvennanna, sem á
magnþrunginn hátt veróa að
bcrjast fyrir lífi sínu og ham-
ingju. Sagan er hlaðin spennu,
dulúð og rómantík frá upphafi
til enda. Hún lýsir á bcrorðan
hátt margháttuðum tilfinn-
ingum sögupersónanna og
kcmur trúlcga til mcð að halda
föngnum huga margs lesandans.
„Ég hcld ég geti ckki annað
cn verið ánægð mcð þær
viðtökur sem bækur rnínar
hafa fengió, og kannski sér-
staklega með þessa bók. Mínar
bækur hafa selst ágætlcga miðað
við bókasölu yfirlcitt, cn hins-
vegar mættu bækur seljast mun
betur en þær gera nú orðið“,
segir Birgitta, sem stundarþessa
sérstæðu aukabúgrein mcðal
bænda, að skrifa magnþrungna
reyfara og skáldsögur.
r *
JOLA VFJSLA )
Á
lHJLF--4a=:-j . ‘ Miu|
Tilboð á AEG og TEFAL heimilistækjum
t.d. Djúpsteikingarpottur aðeins kr. 8490.-
Mínútugrill aðeins kr. 7990,-
Samlokugrill aðeins kr. 3995.-
Husqvarna sauma- og overlockvélar
vélar f sérflokki
Úrval SIEMENS heimilistækja til jólagjafa
kaffikönnur - brauðristar - vöfflujárn - gufustraujárn o.m.fl.
ÍTÖLSKU POTTARNIR FRÁ
LAGOSTINA
LOKSINS KOMNIR.
Emile Henry glervörurnar fyrir ofna og örbylgjuofna
Munið eftir aukaperum í jólaseríuna
og rafhlöðum í leikföngin.
ófjj/itzcj jót
RAFVERKTAKAR