Feykir - 22.12.1993, Side 2
2FEYKIR 45/1993
Kemur út á mióvikudögum vikulega. Utgefandi
Feykir hf. Skrifstofa: Aðalgata 2, Sauðárkróki.
Póstfang: Pósthólf 4,550 Sauóárkróki. Símar:
95-35757 og 95-36703. Myndsími 95-36703.
Ritstjóri: Þórhallur Ásmundsson. Fréttaritarar:
Magnús Olafsson Austur - Húnavatnssýslu og
Eggert Antonsson Vestur - Húnavatnssýslu.
Blaðstjóm: Jón F. Hjartarson, Guðbrandur Þ.
Guðbrandsson, Sæmundur Hermannsson, Sigurður
Agústsson og Stefán Árnason. Áskriftarveró
137 krónur hvert tölublaó meö viróisaukask..
Lausasöluverö: 150 krónur með viróisaukask.
JSetning og umbrot: Feykir. Prentun: Sást hf.
Feykir á aðild að Samtökum bæja- og héraðs-
fréttablaða.
Heimsóknartímar á
sjúkrahúsi og
dvalarheimili yfir
jól og áramót
Sjúkrahús:
Aðfangadagur kl. 18-22
Jóladagur kl. 15-17 og 19-21
Gamlársdagur 18-22
Nýársdagur 15-17 og 19-21
Heimsóknartímar á dvalarheimili
alla dagana frá kl. 13-21.
Aðrir tímar eftir samkomulagi.
Jólin eru öðru fremur hátíð barnanna og víst er að mörg þeirra eru búin að telja dagana og
bíða komu hátíðarinnar með óþreyju. Þessa mynd tók Eggert Antonsson þegar yngri krakk-
arnir í Grunnskóla Hvammstanga voru að halda litlu jólin sín í lok síðustu viku.
Sveiflan í Sjallanum í vetur
Þeir sem einhverra hluta vegna
misstu af söngskemmtun Geir-
mundar Valtýssonar á Hótel ís-
landi síðasta vetur eða komu
því aldrei í verk að lyfta sér upp
úr amstrinu, fá tækifæri til að
bregða sér til næsta bæjar í vet-
ur og sjá uppfærslu skagfirsku
sveiflunnar í Sjallanum á Akur-
eyri. „Látum sönginn hljóma“,
eins og sýningin heitir verður
fyrst á dagskrá í Sjallanum 12.
febrúar og síðan verður fram-
haldið eins og áhugi Norðlend-
inga og annarra gesta endist
fram á vorið.
Eins og menn muna naut sýn-
ingin mikilla vinsælda á Hótel Is-
landi sl. vetur og til stóð jafnvel
að sýningum yrði haldið þar
áfram í vetur, en Akureyrarsýn-
ingin varð síðan ofan á. Skemmti-
kraftamir verða margir hverjir
þeir sömu og á Hótel Islandi síð-
asta vetur, auk þeirra hljómsveit-
armeðlima Geirmundar, Eiríks,
Sólmundar og Kristjáns, leika
þeir með, Magnús Kjartansson
sem verður hljómsveitarstjóri og
VilhjálmurGuðjónsson. Söngvar-
ar verða auk Geirmundar, söng-
konumar Helga Möller og Ema
Gunnarsdóttir og Ingvar Grétars-
son Akureyringur kemur inn í
hópinn í stað Ara Jónssonar.
Sala nýjustu breiðskífu Geir-
mundar gengur vel. Hún hefur
fengið ágæta dóma. Asgeir Tómas-
son plötugagnrýnandi DV sagði
m.a. í rýni sinni:
„Geirmundur nær mörgum
betur til hlustenda og á endanum
er það hann sem hlær alla leið í
bankann eins og þeir orða það
meðal enskumælandi þjóða. Geir-
mundur á nefnilega traustan aðdá-
endahóp sem mætir á dansleikina
hans og kaupir plötumar og fagn-
ar hverju nýju lagi frá honum.
Geirmundur þekkir sitt fólk og
hvers vegna ætti hann að breyta
formúlunni fyrst hún fellur í
kramið? A plötunni Geirmundur
fáum við nákvæmlega það sem
búast má viö: létt popp, hratt, ró-
legt og allt þar á milli. Vilhjálm-
ur Guðjónsson stýrir gerö plöt-
unnar og hcfur tekið við af félaga
sínum Magnúsi Kjartanssyni.
Hann fer troðnar slóðir í útsetn-
ingum og upptökustjóm. Engin
ævintýramennska eða áhætta tek-
in. Utkoman er í samræmi við
það. Poppþétt Skagafjarðarsveifla
eins og á síðustu plötu Geirmund-
ar og öllum hinum þar á undan".
Ritstjórinn heldur áfram
Væntanlega hafa margir les-
endur blaðsins tekið eftir aug-
lýsingum sem birtust í blaðinu
seinni hluta októbermánaðar
í haust, þar sem starf ritstjóra
Feykis var auglýst laust til
Feykir óskar lesendum sínum
og velunnurum öllum
Gleðilegra jóla og
farsœldar á nýju ári
umsóknar. Síðan hafa mál
skipast á þann veg, að sá sem
annast hefúr ritstjórn blaðsins
síðasta fimm og hálfa árið
hefur ákveðið að gegna starfi
sínu áfram enn um sinn.
Auk sitjandi ritstjóra reyndist
einungis einn fús til að gegna
starfinu. Blaðstjórn komst að
þeirri niðurstöðu að rétt væri
að ritstjóri gengdi starfi sínu
áfram fyrst hann væri tilbúinn
til þess, og var þar lagt til gmnd-
vallar starf hans að blaðinu undan-
farin ár.
Ritstjóra þykir rétt að framan-
greint komi fram, þar sem hann
hefur tíðum verið spurður að
því að undanförnu hvort hann
sé að láta af ritstjóm blaðsins.
Næsta blað
Feykis kemur út
miðvikudaginn
5. janúar
Verslun með
skartgripi á
Tanganum
Síðastliðinn laugardag, 18.
desember, opnaði Einar
Esrason skartgripaverslun í
tengslum við gullsmíðaverk-
stæði sitt að Brúarlandi 3 á
Hvammstanga, en þar hefúr
hann rekið eðalmálmsteypu
umi nokkurt skeið.
I nýju verslunni verður hann
með allskonar skartgripi á
boðstólum, bæði smíðaða af
sjálfum sér og öðmm. Einnig
tekur hann skartgripi til við-
gerðar. Einar hefur bryddað
upp á ýmsum nýjungum í
minjagripagerð svo sem fram-
leiðuslu á Hvítserk, steyptan í
eðalmálm. Einnig hefur hann
prófað sig áfram með gerð
ýmissa annarra muna svo sem
krabbaklóa og hvítra víkinga,
sem allt lofar góðu með fram-
haldið.
EA.