Feykir


Feykir - 24.05.1995, Side 8

Feykir - 24.05.1995, Side 8
Oháð fréttablað á Norðurlandi vestra 24. maí 1995, 20. tölublað 15. árgangur. Auglýsing í Feyki fer víða! Það komast allir í Gengið unglingaklúbb Landsbankans Sláðu til og komdu í Gengið Pottþéttur klúbbur! fM Landsbanki Sími 35353 Mk íslands ÆMLÆ Banki allra landsmanna Góðir gestir voru á ferð á Blönduósi í síðustu viku og fengu íbúar Hnitbjarga, Dvalarheimilis aldr- aðra að njóta hæfileika þeirra. Þetta var blásarasveit Hjálpræðishersins, er kom við á leið sinni til Akureyrar, en þar var þess minnst að 100 ár eru liðin frá stofhun Hjálpræðishersins á íslandi. Meðferðar- og uppeldis- fulltrúar útskrifaðir í síðustu viku lauk á Sauðár- króki grunnnámskeiði fyrir meðferðar- og uppeldisfull- trúa, en það hefur staðið frá haustdögum. Fræðslunefnd fé- lagsmálaráðuneytisins stóð fyrir þessu námskeiði í sam- vinnu við Svæðisstjórn um málefni fatlaðra og Farskóla Norðurlands vestra. Þeir voru 33 sem útskrifuðust, allt starfs- menn sambýla fyrir fatlaða á svæðinu frá Siglufirði til Vest- ur-HúnavatnssýsIu. Að sögn Margrétar Margeirs- dóttur frá fræðslunefnd félags- málaráðuneytisins hafa alls verið útskrifaðir 115 nemendur af þessum námskeiðum, en þetta var fyrsta námskeiðið sem hald- ið hefur verið utan Reykjavíkur. Til stendur að halda þrjú svona námskeið næsta vetur, tvö úti á landi og eitt á höfúðborgarsvæð- inu. Margrét sagði um nám- skeiðin að þau gerðu kröfur til nemenda, væm nokkuó erfið, en þau skiluðu því að styrkja þátt- takenduma í starfi og efla á alla lund. „Allt snýst þetta um að manneskjan séi fyrirrúmi og samskiptin við einstaklinginn séu á þann hátt að honum líði eins vel og frekast er kostur", sagði Margrét Jónína Hjaltadóttir, einn þátt- takanda á námskeiðinu, sagði að námið hefói skilað þeim mjög miklu. Haustið hefði verið erfitt en síðan hefði þetta lagast. Jón- ína Iét mjög vel af aðbúnaði nemenda. Fjölbrautaskólinn léói bæói kennsluhúsnæði, í bók- námshúsinu, og síðan fengju nemendur að borða og dvelja á heimavistinni. Jónína sagði að þama hefði fólk gengið inn á heimavistina að nýju og notið þess vel. Hún sagðist vonast til þess að fljótlega gæfist kostur á framhaldsnámskeiði, en eins og áður segir var hér um grunnnám- skeið að ræða. □ Jeppinn fannst loksins í snjónum Það er til marks um hið mikla fannfergi sem vcrið hefur í Vesturhópi í vetur, að fyrir nokkrum dögum kom í leitirn- ar rússajeppi bóndans í Kistu, sem hvarf í snjó í stórhríðunum seinnipart janúar. Hafði jepp- inn verið undir snjó í rúma þrjá mánuði þcgar stika sem rekin var niður í snjóinn við jcppann kom í Ijós. Valdimar Eggertsson bóndi í Kistu var á ferð á jeppa sínum í vetur, skömmu eftir fyrstu alvöru- stórhríðina í janúar. Þiónað hafði og gert blota, síðan fryst þannig að snjóþekjan hélt jeppanum. Valdimar uggði þó ekki að sér þegar hann fór fram af snjóhengju skammt frá bænum. Snjór hafói þar lagst óvenjulega og myndast mikil geil sem jeppinn stakkst ofan í á endann. Valdmar lenti í framrúðunni, braut hana og skarst talsvert í andliti. „Ég var hálftuskulegur eftir þetta og lagði ekki í að ná jeppan- um upp þennan dag. Síðan gerist það að hann snjóar mikið næstu nótt og þá var orðið um seinan aö ná honum upp þannig aö ég brá á þaö ráð aö reka niður staur við enda jeppans svo ég fyndi hann í snjónum aftur', sagði Valdimar. En það snjóaði meira á skömmum tíma í vetur en nokkum óaði fyrir að mundi gera og svo fór að jeppinn á Kistu gjörsamlega týndist í snjónum og fannst eins og áður segir ekki fyrr en fyrir nokkrum dögum. „Þegar búið var að moka frá honum og draga hann aðeins til í holunni, þá rauk hann í gang og það var ekk- ert annað en keyra hann heim“, sagði Valdimar, sem nú hefur endurheimt aftur sinn gamla Gaz rússajeppa af ‘69 árgerðinni. Atvinnulausir færri í apríl en í mars Meðalfjöldi atvinnuiausra á Norðurlandi vestra var í apr- ílmánuði 295 eða um 5,5% af áætluðum mannafla, en var 7,1% í mars. Atvinnulausum hefur fækkað um 74 að með- altaii milli mánaða. Atvinnu- leysið minnkar í heild um 20% frá því í mars og um 2% frá aprfl í fyrra, og færri eru án vinnu á öllum svæð- um, samkvæmt skýrslu vinnumáiaskrifstofu félags- málaráðuneytisins. Atvinnulausum fækkar um 10 á Siglufirði eða að meðaltali um 22%, um 8 á Hólmavík eða 49%, um 7 í Lýtingsstaða- hreppi, um 6 á Hvammstanga, um 5 á Sauðárkróki, um 4 á Blönduósi og Ameshreppi, um 3 í Bólstaðahlíðarhreppi og Fljótahreppi en minna annars staðar. Um 90 eða 30% at- vinnulausra eru skráðir á Sauð- árkróki, 38 eða 13% á Siglu- firði, 25 eða 8% á Skagaströnd, 21 eða 7% á Blönduósi, 18 eða 6% í Lýtingsstaðahreppi en minna en 55 atvinnulausra eru skráðir annars staðar. Ekkert atvinnuleysi er nú í Þverár- hreppi. Atvinnuleysi karla mælist nú 4,1% en var 6% í mars. At- vinnuleysi kvenna mælist 7,8% en var 8,7% í mánuðinum á undan. Atvinnulausum körlum hefur fækkað um 59 að meóal- tali í aprílmánuði en atvinnu- lausum konum um 15.

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.