Feykir


Feykir - 24.01.1996, Blaðsíða 6

Feykir - 24.01.1996, Blaðsíða 6
6FEYKIR 3/1996 Heilir og sælir lesendur góðir. Gerð skal tilraun til að leiðrétta eina af vísum Jóns Gissurarsonar sem birtist í síóasta þætti. Ennþá tíðin yljar blíð ei mig níðir vandinn. Afram líður œvin þýð engum kvíða blandin. Þá var í síðasta þætti spurt um höfund vísu sem þar birtist. Tel ég mig hafa feng- ið greinargóðar upplýsingar þar um og mun höfundurinn vera Jón Benediktsson Höfnum á Skaga. Þar sem vísan mun ekki hafa verið rétt meðfarin tel ég rétt að birta hana aftur. Enga blíðu útifinn enn er hríðar kliður. Ætlar tíðar andskotinn allt að ríða niður. Ekki á þessi vísa við það góða tíðarfar sem ríkt hefur nú undanfarið og gott hef- ur verið að lifa við á þessum tíma árs. Ég held að það hafi verið Bjami ffá Gröf sem komst eitt sinn svo að orði. Eg hefbeinar brautir lagt burtu meinin skrifa. Það er í einu orði sagt unun hrein að lifa. Mjög góður vetur mun hafa verið þeg- arLúðvík Kemp orti svo. Margt er ífréttum, mikið ort messar séra Pétur. Enda hefur engan skort áfengi í vetur. Onnur vísa kemur hér sem ber það með sér að vera ort að vetri til. Held ég að hún sé eftir Svein Hannesson frá Elivogum. Óðum ber að bœttum hag, bráðumfer að hlána. Leysir frera lengir dag, loftið er að blána. Sú tíðindi spurðust nú í vetur að maó- ur nokkur hefði lent í nokkuð tímafrekri heimsókn í opinberri byggingu á Sauðár- króki. Aðalbjöm Benediktsson orti svo eftir að hafa spurt þessi tíðindi. Ingvar hann rak sig á refsilög ströng og reyndist það etfiður biti. Hann varð að bíða og biðin var löng hann beið efitir löggu með viti. Ekki kann ég að segja frá af hvaða til- efni næsta vísa hefur verið gerð en höf- undur mun vera Steinbjöm Jónsson. Drengja solli sig frá dró svo ei olli skaða. A til hollar óskir þó Unnur Bollastaða. Þá kemur þorrablótsvísa sem mun vera eftir Steingrím Baldvinsson. Mjöður er hér afmörgum sortum nuetur eins og girnist hver. Eg hefsjaldan áður ort um efni sem er kœrra mér. Einhverju sinni er Steingrími vom veitt laun fyrir skáldskap orti hann svo. Eg hélt ég vœri lítill listamaður, litu fleiri eins á það, bölvað er að vera verðlaunaður og vita ekkifyrir hvað. Ekki hefúr umræðan verið sérstaklega gáfuleg að mati Steingríms þegar hann orti svo. Varla erfœrt upp úr vaðlinum hér vitinu höfuð að teygja. Algengust heimska í heiminum er að hafa ekki vit á að þegja. Einn af þeim sem lagt hefur vísnagerð lið um æviárin, Þorsteinn Guðmundsson á Skálpastöðum, hefur nú nýverið verið kallaður úr þessum heimi. Eftirfarandi vísa mun vera eftir hann. Aldrei hestur beisli bar betur sprettifeginn. Var sem hryndu hendingar hvar sem hann snerti veginn. Þá held ég að eftirfarandi vísa sé einnig eftir Þorstein. Vel ég finn mér vœri það veiga mestur auður. Efþú gœtir gert mig að góðum manni Rauður. Þá kemur aó lokum fallega orðuð sú hugsun sem margir hafa þegar birtan fer að lengjast og vetrinum hallar á seinni hlutann. Höfundur er Gissur Jónsson ffá Valadal. Daglega ég dreifi áfrest döpru vetrar sinni. Vorið hefur vakið best von í sálu minni. Veriði þar með sæl að sinni. Guðmundur Valtýsson, Eiríksstöðum 541 Blönduósi, sími 452 7154. Körfubolti 1. deild kvenna: Tap gegn íslandsmeist urum Breiðabliks Tindastóll er nú aftur farinn að blanda sér í baráttu efstu liða í úrvalsdeildinni og hefúr þegar tryggt sér sæti í sæti í úrslitakeppninni. Liðið vann tvo góða sigra í síðustu viku. Fyrst Skallagrím á Króknum sl. fimmtudagskvöld með 20 stiga mun, 82:62, og síðan Þórsara með 5 stiga mun á Akureyri 76:71. Tindastóll tók fljótlega ffum- kvæðið í leiknum á Akureyri og hittnin var góð, 9 þriggja stiga körfur fóru ofaní í fyrri hálf- leiknum. Þar af átti Lárus Dagur fjórar úr fimm skotum, en Lárus er mjög heitur þessa dagana og skotnýtingin góð. Þegar skammt var til leikhlés var forusta Tindastóls oróin 19 stig, en Þórsurum tókst að minnka mun- inn í 13 stig fyrir leikhléið og þá var staðan 46:33. Þór skoraði síðan níu fyrstu stigin í seinni hálfleiknum. Tindstóll reif sig aftur upp, en heimamönnum tókst í tvígang að minnka muninn í eitt stig. En þrautseigja Tindastólsmanna var mikil, liðið sýndi styrk sinn og vann öruggan sigur 76:71. Liðsheildin hjá Tindastóli var góð eins og í síðustu leikjum. Lárus Dagur skoraði mest 18 stig, Torrey var með 17, Pétur 16, Ómar 10, Hinrik 7, Atli 6 og Amar 2 stig. „Þetta var sigur liðsheildar- innar, baráttan góó og nú emm við famir að gera hluti sem við vomm að gera í byrjun móts í haust. Nú þýðir ekkert annað en setja stefnuna á fjórða sætið í deildinni. Ef við vinnum Þór á laugardaginn aukast möguleik- amir á því“, sagði Pétur Guð- mundsson ffamvörðurinn sterki í Tindastólsliðinu eftir góðan sigur liðs síns gegn .Skallagrími á Sauðárkróki í skemmtilegum og fjömgum leik á fimmtudags- kvöldið. Það vom gestimir frá Borgar- nesi sem byrjuðu betur og það var ekki fyrr en um miðjan hálf- leikinn sem heimamönnum tókst að komast yfir, en eftir það höfóu þeir yfirleitt ffumkvæði í leiknum. Skallagrímsmenn vom þó vel inni í leiknum þar til komið var fram yfir miðjan seinni hálfleik. Þá kom góður kafli hjá Tindastólsmönnum og leiðir skildu. A lokakaflanum var svo greinilegt hvort liðið var sterkara og Tindastólsmönnum tókst það sem þeir höfðu reynd- ar lítið gælt við fyrir leikinn, það er að vinna upp tapið ffá viður- eign liðanna í Borgamesi fyrr í vetur. Þá tapaði Tindastóll með 19 stiga mun, en liðið stendur nú betur en Skallagrímur í deild- inni er með 26 stig í 5. sæti deildarinnar. Liósheildin var góó hjá Tindastóli en Pétur Guðmunds- son þó bestur. Hinrik Gunnars- son var drjúgur allan tímann og lék ágætis vörn gegn Ermol- inski. Láms Dagur var góður í fýrri hálfleiknum og hitti vel á þeim kafla sem Tindastóll náði yfirhöndinni í leiknum. Omar, Torrey og Arnar léku einnig skínandi vel. Stig Tindastóls: Pétur G. 20, LámsD. 17, ÓmarS. 14, Torrey 13, HinrikG. 10, AmarK. 8. Það er alkunna aó skammdeg- ið leggst misjafnlega í fólk og margir fagna því þegar sól fer að hækka á lofti að nýju. Nú er rúm- ur mánuður liðinn frá því að sól- argangur var skemmstur og það má því segja að svartasta skammdegið sé að mestu liðið. Upp frá þessu fer daga að lengja hraðar en gert hefur frá vetrarsól- stöðum og fólk fer aó sjá vem- legar breytingar á birtutíma á næstu dögum. I fyrradag 22. janúar er birt- ing kl. 9,31, sólris 10,40, sólarlag 16,08 og myrkur 17,18. Frá ára- Kvennalið Tindastóls hafði ekki erindi sem erflði þegar Is- landsmeistarar Breiðabliks komu í heimsókn sl. laugar- dag. Það voru fyrstu mínútur leiksins sem reyndust Tinda- stóli afdrifaríkar. Heimamenn voru þá afar slakir og íslands- meistararnir gengu á lagið. I>egar síðan Tindastólsliðið fór í gang gaf það úrvalsliðinu í Kópavoginum lítið eftir og t.d. tapaðist seinni hálfieikurinn aðeins með fjórum stigum. Staðan í Ieikhléi var 21:36 og lokatölur 57:76. Strax í fyrstu sókn Tindastóls hmndi tuminn í Tindastólsliðinu Audry Codner og þurfti að yfir- mótum hel'ur dagrenningin færst fram um 19 mínútur, en myrkur aftur um 47 mínútur. Daginn mun lengja mun meir á næstu þrem vikum, dagrenningin mun þá færast fram um 49 mínútu og myrkur færast aftur um 64 mín- útur. Daginn mun því lengja á þessum tíma um þrjá stundar- fjórðunga umfram það sem gerst hefur í byrjun ársins. Birting 12. febrúar nk. verður kl. 8,33, sólar- lag kl. 17,26 og myrkur verður kl. 18,22. Þessar upplýsingar eru fengnar úr almanaki Háskóla Is- lands. gefa völlinn, en hún á við þrálát hnémeiðsli að stríða. Þegar Audrey síðan kom inn á um miðjan hálfleikinn og sýndi meiri keppnishörku en hún hefur oftast sýnt í vetur, í þeim leikjum sem blaðamaður hefur séð, þá fóru hlutirnir að ganga hjá Tindastóli. Vamarleikur Tinda- stóls var á stórum köflum ágætur og sóknarleikurinn í lagi. Audrey Codner var langbest í liði Tindastóls. Kristín, Sigrún og Rúna Bima léku líka ágæt- lega og í heild barðist liðið vel. Codner skoraði 26 stig, Kristín Magnúsdóttir 11, Rúna Bima Finnsdóttir 8, Sigrún Skarphéð- insdóttir 6, Sandra Guðlaugs- dóttir 2, Dagbjört Hermunds- dóttir 2 og Eygló Agnarsdóttir 2. í liði Breiðabliks fór banda- ríski leikmaðurinn Betsy Harris á kostum, skoraði 28 stig auk fjölda stoðsendinga. Hanna Kjartansdóttir lét líka mikið að sér kveða, skoraði 19 stig. Þær stöllur Bima Valgarðsdóttir og Inga Dóra Magnúsdóttir, fyrr- verandi Tindastólsmenn, eru meðal þeirra bestu hjá Breiða- bliki og báðar i byrjunarliði. Bima gerði 10 stig í leiknum og Inga Dóra 6. Báðar léku þær vel, en það gefur auga leið að með svo frábæran leikmann innan- borðs og Harris, þurfa hinir í lið- inu ekki að sýna eins mikið frumkvæði. Birtutíminn lengist

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.