Feykir


Feykir - 03.04.1996, Blaðsíða 3

Feykir - 03.04.1996, Blaðsíða 3
13/1996 FEYKIR 3 „Ótrúlegt hvað árið líður f Ijótt" Fregnir af Guðmundi frá Veðramóti Sl. haust fór Guðmundur Ein- arsson frá Veðramóti sem AFS skiptinemi til Massachusetts fylkis í Bandaríkjunum. Bær- inn sem hann dvelur í heitir Auburn og eru þrír unglingar á heimilinu, ein stelpa og tveir strákar. Við fengum fregnir af dvöl Guðmundar ytra og kíkt- um í bréf frá honum. „Það er ótnílegt hvað árið er fljótt að líða. Eg trúi því varla að ég sé meira en hálfnaóur með dvölina hérna. Það er búið að vera mjög gaman, en það skemmtilegasta af öllu var að spila amerískan fótbolta. Eftir um það bil 2 vikur byrja ég að æfa frjálsar íþróttir sem endast út maí“. Guðmundur hefur ferðast töluvert þennan tíma og farið meðal annars á bændahátíð í Woodstock, Connecticut og einnig ferðast töluvert með AFS en samtökin skipuleggja ferðir með skiptinemum sem búa á sama svæði. Farið var til Boston og Rhode Island. Einnig hefur Guómundur fengið tækifæri til að fara á skíði sem er meira en Skagfirðingar geta státað af þennan vetur. Guðmundur stundar nám í bandarískum skóla og er í efsta bekk. Þess má geta að í ensku fékk hann hæstu einkunn í bekknum eða 9,7. „Utskriftin verður 7. júní og svo hef ég mán- Guðmundi finnst ameríski fótboltinn mjög skemmtilegur. uð til að slappa af áður en ég kem heim. Sjáumst í júlí!“, segir Guðmundur. AFS-deildin á Sauðárkróki hvetur þau ungmenni frá 16 ára aldri sem áhuga hafa á því að fara sem skiptinemar að hafa samband við Debbie í síma 453 6097 eða Ásdísi í síma 453 5045, þar sem hægt er að fá nánari upplýsingar. Tilboð opnuð í hækkun Blöndustíflu: Ræktunarsamband Flóa- og Skeiða með langlægsta tilboðið Ræktunarsamband Flóa- og Skeiða átti langlægsta tilboð í hækkun Blöndustíflu en þau voru opnuð hjá Landsvirkjun í gær. Tilboð Flóa- og Skeiða- manna var að upphæð 81,3 milljónir, eða einungis 51% af kostnaðaráætlun, sem var 159 milljónir króna. Völur hf. átti næst lægsta tilboð 113,8 milljónir, Ingileifur Jónsson bauð 117,6 milljónir, ístak hf 128,5 milljónir, Háfell hf. 128,8 milljónir, Suðurverk hf bauó 135,2 milljónir og langhæsta tilboöið kom frá Firði hf. og Rögnvaldi Ámasyni að upphæð 149,4 milljónir. Verkið er fólgið í því að Blöndustífla við Reftjamarbungu verður hækkuð um 3,5 metra og yfirfall Blöndustíflu verður hækkað um 3,7 metra og lengd um 130 metra eins og ráð var fyrir gert við upphaflega hönnun virkjunarinnar. Verkinu skal lokið fyrir 1. nóvember nk. Viö þessar framkvæmdir vex flatarmál Blöndulóns úr 39 í 56 ferkílómetra og miðlunarrými úr 220 í 400 gígalítra. Þá eykst orkugeta raforkukerfísins um 165 gígawattsstundir. Gleðilega páska! að kenna nema hlutaðeigandi. Þessir fuglar eru eins og ég. Þeir hafa ekki nennt að tálga blýantinn en sitja bara súrir á svip og naga hann og ætlast til aó aðrir túlki þær skoðanir sem þeir em talsmenn fyrir. Eg segi hiklaust að Sauðárkrókur mundi setja stórlega niður ef Feykir væri ekki hér og það yrðu fleiri en við sem mundum sakna hans. Þá er ég kominn að því sem ég vildi nota sem umræðuefni. Er hér fyrirkomulag sem bjargað gæti þjóðkirkjunni? Þegar ritstjórinn spurði mig, hvort ég vildi segja fréttir „Und- ir Nöfúm“ var ég ekki viss um hvort ég hefði tíma, hvort ég gæti sagt eitthvað af viti, eða hvort mig langaði til að hafa skoðun á lífinu yfirleitt. Við nánari yfirvegun sá ég að ekkert af þessu var rétt, víst hafði ég tíma, vit og skoðun og gat þess vegna skrifað pistilinn. Það sem mig vantaði var vilji og dugnaður. Sem sagt, ég nennti því ekki, en það er auðvirðileg- asta afsökun sem til er. Þórhallur kvartar réttilega undan deyfð manna og afskipta- leysi um Feyki, meðan hlutimir em nokkum veginn í eðlilegu fari. Hitt er ég sannfærður um að kæmi til tals að leggja blaðið niður mundi mikill grátkór fara af stað og þá væri ég að öllum líkindum forsöngvari, að minnsta kosti líklegur umsækj- andi um stöðuna. Málfrelsi er svo dýrmætt að án þess gæti ekki þrifist eðlilegt mannlíf á Is- landi, en þessu gleymi ég stund- um og þá líka því að ef ég legg ekkert að mörkum til að varð- veita og viðhalda því, gæti það glatast. Þetta er mergurinn málsins „- Litla gula hænan“ lenti í þessu þegar allir sögðu „ekki ég“ og oft er svo með mig að þessi fá- ránlega setning kemur á tung- una, „þetta er ekki mitt mál“. Þrátt fyrir að Feykir er mest- anpart skrifaður af ritstjóranum, hefur tekist að halda því fari, að óháða línan er ráðandi. Auðvit- að em alltaf einstaka vælukjóar sem rísa upp á afturfótunum og kvarta, segja að hitt og annað sem birt er, sé ekki nægjanlega skoðað og þau sjónarmið sem þeir hafi fái ekki nægjanlega umfjöllun, en það er engum um Ég sakna þess að hér á Krók er allt í sæmilegu ástandi. Hér er verið að tala um sameiningu sveitarfélaga í Skagafírði. Hvers konar dauðyfli em þetta? Því er ekki rifist og skammast? Það væri mikið meira gaman. Eins er með safnaðarmál. Fjölmiðlar standa á öndinni vegna Langholtsdeilunnar og biskupamála, en enginn talar um það að hér á Krók er allt safhað- arstarf og trúarmálefm í einingu og bræðralagi. Af hverju fer enginn af þess- um vösku fréttariddurum að rannsaka það, hvort hér hafi ver- ið fundið upp það fyrirkomulag sem gæti oröið til bjargar þjóð- kirkjunni á þessum síðustu og verstu tímum. Ég spyr bara svona? Króksari. Vegna páskanna kemur næsta bla .7. Ng vs5«f.jr' Z&M t 1 ÉwWL m Páskamót í knattspyrnu á Sauðárkróki Mánudagur 1. apríl kl. 20,00 Neisti - Hvöt (úrslit 1:1) Mióvikudagur 3. apríl kl. 20,00 Tindastóll - Kormákur Laugardagur 6. apríl kl. 10,30 Tindastóll - Neisti Mánudagur 8. apríl kl. 13,00 Tindastóll - Hvöt Mánudagur 8. apríl kl. 15,00 Kormákur - Neisti Þriójudagur 9. apríl kl. 15,00 Hvöt - Kormákur Tindastóll.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.