Feykir - 06.11.1996, Qupperneq 6
6 FEYKIR 37/1996
Heilir og sælir lesendur góðir.
Vegna vísu Sigurðar á Gilsbakka,
,3eitir víða veiðiklónum“, er birtist í síó-
asta þætti varð til eftirfarandi vísa hjá
Kristjáni Runólfssyni á Sauðárkróki.
Þegar allskyns œti finn
undir snjó og klaka,
get ég sagt þér góði minn
gjaman fœðist staka.
Ekki verður undan vikist að játa þá
staðreynd að kominn er vetur. Það er
María Helgadóttir á Stóm-Ökrum í
Blönduhlíð semyrkirsvo.
Víst hann tekur völdinflest
á vetri gránar kjóllinn.
I kólgunni nú hvergi sést
kœri Tindastóllinn.
Önnur vísa kemur hér eftir Maríu.
Sólin gyllir fjöll ogfjörð,
fónn á syllu og bala.
Fegurð snilli og frost á jörð
frið ei spillir dala.
Þegar haustið nálgast og séð er að
hveiju stefnir yrkir Rúnar Kristjánsson
svo.
Norðanátt um mela og móa
magnar slátt og döggin grœtur.
Haustar brátt við Húnaflóa,
hélugrátt mun verða um nœtur.
Staddur á Fossum í Svartárdal yrkir
Rúnar.
Óskahnoss ég orða nú
ör og hress í vöku,
að á Fossum blessist bú
bið ég þess í stöku.
Til samferðamanns yrkir Rúnar svo.
77/ Rögnvaldar í Réttarholti
renni ég mínum huga enn.
Þrátt ég fyllist þjóðarstolti
þegar ég hugsa um slíka menn.
Þá koma næst tvær sléttubandavísur
eftir Rúnar sem einnig em hringhentar.
Em þær ortar til Kjartans Keen listmálara.
Kjartan reigðu höfúð hátt
hryggðar fleygðu pínum.
Bjartan eygðu þráðinn þrátt
þrœða sveigða línu.
Hertu skalla þrumu Þór
þeygi halla kvíðinn.
Vertu allar stundir stór
starfsins kalli hlýðinn.
Þegar ég nú sit hér og vinn þáttinn
með þessu ágæta ífamlagi frá Skaga-
strönd rifjast upp ferð sem Karlakór Ból-
staðahlíðarhrepps fór þangað á sl. vetri
með söngskrá sína til flutnings í þeirra
ágætu kirkju. Hafði undirritaður velt
nokkuð fyrir sér hverjir mundu koma á
konsertinn og staldrað þá ákveðið vió
einn mann í huganum sem ég var alveg
viss um að myndi koma. Fylgdist ég vel
með þegar tónleikagestir komu inn og um
það leyti sem kórmenn gerðu sig klára til
að flytja fyrri hlutann af söngskránni varð
hugsunin á þennan veg.
Bágt er nú að bíða hér
bregðast traustir hlynir.
Þessi vinur verður mér
verri en ýmsir hinir.
Um það leyti er kórinn var að ljúka
flutningi fyrsta lagsins opnaðist kirkju-
hurðin og inn gekk sveitarstjórinn með
fnðu fömneyti. Var nú ekki um annað að
ræða en gera bragabót og hafði það tekist
um það leyti er flutningi fyrri hluta söng-
skrárinnar lauk.
Bregðast ekki bestu menn
bágt, er orðið þá að lasta.
Magnús Jónsson átti enn
ejtir teningnum að kasta.
Næst koma tvær fallegar hringhendur
eftir Rósberg G. Snædal, en ekki veit ég
til hvers hann yrkir svo.
Þú hefurfengið frost og él
frœgð og gengi þegið.
Þú hefur lengi lista vel
Ijóðastrenginn slegið.
Syngdu snjallan blóma brag
brátt þófalli snærinn.
Frjáls um allan œvidag
eins ogfjallablœrinn.
Ein vísa kemur hér enn sem ég held að
sé eftir Rósberg en ekki man ég um hvem
hún er.
Hrœðist valla veður stór
vog þó falla taki.
Sá sem alla œvi fór
einn að fjallabaki.
Maður nokkur hafði áhyggjur af
heilsufari konu sinnar og orti svo af því
tilefni.
Sorg mín speglar ásýnd sína
í tregans bláa vami.
Það œtlar að verða bið á því
að Sigríði minni batni.
Að lokum þessi góða kveðja sem Kári
ffá Valadal sendi eitt sinn nokkmm kunn-
ingjum.
Ykkar vaka verði góð,
vel það drengjum scemir.
Takið lagið töfrið fljóð
tilfinninganæmir.
Veriði þar með sæl að sinni.
Guðmundur Valtýsson, Eiríksstöðum,
541 Blönduósi, sími 452 7154.
Tindastóll án stiga úr tveim
síðustu deildarleikjum
Þrátt fyrir stórgóðan leik
Tindastólsmanna í fyrri hálf-
leik og í byrjun þess síðari
gegn Grindvikingum sl.
sunnudagskvöld, urðu þeir að
sætta sig við 18 stiga tap gegn
Suðurnesjamönnum, 75:93. Þá
fóru Tindastólsmenn illa að
ráði sínu sl. fimmtudagskvöld
þegar þeir glutruðu niður unn-
um leik móti IR-ingum á síð-
ustu sekúndum leiksins. Hlut-
irnir virðast enn ekki vera
smolinir saman hjá Tinda-
stólsliðinu en cngin ástæða þó
til að örvænta um gengi liðsins
í úrvalsdeildinni. Næstu leikir
Tindastóls eru í Lengjubikarn-
um gegn Grindvíkingum. Þeir
fara enn á ný til Grindavíkur
nk. fimmtudagskvöld en fá síð-
an Suðurnesjamennina í heim-
sókn á sunnudagskvöldið.
Leikur Tindastóls og ÍR í Sík-
inu á fimmtudagskvöldið var
hnífjafn og spennandi. Heima-
menn vom þó yfirleitt með frum-
kvæðið, en það brá ævinlega
þannig við að þegar liðið var
komið yfir, þá gerði einhver
taugaveiklun vart við sig. Tinda-
stólsmenn höfðu sigurinn innan
seilingar, höfðu eins stigs forustu
þegar 20 sekúntur voru til
leiksloka og nýbúnir að ná bolt-
anum, en gestimir pressuðu stíft,
náðu boltanum strax aftur og
innbyrtu sigurinn. Jefffey Johns-
son var besti maður liósins og
þeir Lárus Dagur og Sesaro
Piccini komust mjög vel frá
leiknum. Stig Tindastóls: Jeffrey
Johnson 35, Lárus D. Páls 17,
Sesaro Piccini 14, Amar Kára
10, Ómar Sigmars 5 og Yorek
Parke 4.
Tindastólsmenn voru mun
betri aðilinn í fyrri hálfleik í
Grindavík á sunnudagskvöldið.
Jeffrey Johnsson átti stórleik,
sem og Amar Kárason, og Lárus
Dagur Pálsson var drjúgur. Stað-
an í leikhléi var jöfn 43:43 og
Tindastólsmenn byrjuóu seinni
Jeffrey Johnson lék mjög
vel í Grindavík.
hálfleikinn vel og byrjuðu á því
að ná sjö stiga forskoti. En það
var eftir að Johnson fékk sína
fjórðu villu og þurfti að fara af
velli, sem halla tók undan fæti
hjá Tindastóli. Um það leyti fóm
langskyttur heimamanna í gang
og þá var ekki að sökum að
spyrja. Grindvíkingamir komust
yfir og juku forskotið jafnt og
þétt. Lokatölur eins og fyrr segir
93:75.
Jeffrey Johnson skoraði 28
stig fyrir Tindastól, Amar Kára-
son 23, Láms Dagur 9, Ómar 7
og þeir Sesaro Piccini og Yorek
Parke 4 hvor.
ljós punktur í tilverunni...
Fjölmennt að venju á
uppskeruhátíð Neista
Ungmennafélagið Neisti heldur
uppi þróttmiklu starfl fyrir
ungmenni á Hofsósi og í sveit-
unum í kring. Uppskeruhátíð
féiagsins er jafnan íjölsótt og
mættu tæplega 200 manns á há-
tíðina að þessu sinni, en hún var
haldin í Höfðaborg sl. laugar-
dagskvöld. Skemmtincfnd hafði
undirbúið dagskrá og að henni
lokinni voru afhcnt verðlaun og
viðurkenningar fyrir árangur
og ástundun á liðnu sumri.
Nýr bikar bættist nú vió þá
gripi sem stjóm Neista úthlutar til
íþróttafólksins. Sigrún Ivarsdóttir
færði félaginu bikar til minningar
um Söndm dóttur sína sem lést af
slysfömm á liðnu vori, frá sér og
systkinum Söndm heitinnar. Bik-
arinn skal veittur í meistaraflokki
kvenna í knattspymu fyrir góða
ástundun og prúðmannlega fram-
komu innan vallar sem utan. Bik-
arinn hlaut nú í fyrsta sinn sem
hann var veittur, Anna Freyja Vil-
hjálmsdóttir.
í knattspyrnunni var Ragn-
heiður Bjamadóttir valinn besti
leikmaður kvennaflokks og Elva
Frióriksdóttir efnilegusL í meist-
araflokki karla var Sigmundur Jó-
hannesson valinn besti leikmaður-
inn og Guðmundur Stefánsson sá
efnilegasti. Kristján Jónsson var
með bestu ástundun og Oddur
Jónsson varð markakóngur liðs-
ins.^
í yngri aldursflokkum var Vió-
ar Steinþórsson valinn sá besti í
flokki 11-14 ára og Gréta Jóns-
dóttir efnilegusL I flokki 10 ára og
yngri var Friðrik Pálmason valinn
besti leikmaóurinn og Gísli Bjöm
Reynisson sá efnilegasti.
Dagný Ösp Vilhjálmsdóttir var
útnefnd íþróttamaóur Neista og
hún var einnig valin besti frjáls-
íþróttamaður félagsins. Þá fékk
Þröstur Valgeirsson viðurkenningu
fyrir góðan árangur í frjálsum
íþróttum eldri flokki og Garóar
Vilhjálmsson hjá þeim yngri.
Góðir áskrifendur!
Muniö aö greiöa sem fyrst heimsenda
greiösluseóla fyrir áskriftargjöldunum.