Feykir - 22.01.1997, Qupperneq 2
2FEYK1R VI997
Útför Helga Tónssonar frá Merkigili
Söguleg jarðarför að Ábæ í dag
Sögulegur viðburður á sér
stað í dag þegar Helgi Jóns-
son einbúinn á Merkigili
verður tii moldar borinn að
Ábæ. Helgi var eina sóknar-
barnið í Ábæjarsókn og hafði
óskað þess að vera greftraður
fremra. Síðast var jarðað á
Ábæ árið 1956 og þar verður
talsvert fyrirhafnarmikil jarð-
arför í dag, enda ófært að
Ábæ á þessum árstíma og yflr
jökulfljót að fara. Þrenn far-
artæki þarf í þessa hinstu för
Helga á Merkigili og síðasta
spölinn verður kistan borin,
um einn og hálfan kílómeter.
Það er Flugbjörgunarsveitin
í Varmahlíð sem tók að sér að
koma kistu Helga fram í Ábæ
og einnig að grafa gröfina.
„Þar sem Helgi hafði óskað
eftir því að vera jarðaður á
Ábæ, vildum við tryggja að
ekki vantaði mannskap til að
koma því í kring, og buðum
þess vegna fram aðstoð okkar.
Við fórum fram eftir sl. sunnu-
dag til að taka gröfina. Geng-
um tíu menn frá bænum á
Merkigili og fram að Ábæ, lið-
lega fimm kflómetra. Á leið-
inni sáum við að það yrði von-
laust verk að ryðja snjó og
klaka af vegarslóðanum og
gera hann færan. Gilskoming-
ar eru fullir af snjó og stór-
hættulegir svellbunkar, þannig
að við höfum undirbúið þetta
þannig að vera með tiltæka
bæði dráttarvél á keðjum og
bát, sem við notum ef vöxtur
verður í ánni. Við komust á bfl
með kistuna þónokkuð suður
fyrir Skatastaði og förum síðan
yfir Jökulsána á vaði. Síðasta
spölinn verðum við síðan að
bera kistuna en það er yfir
þægilegt land að fara, tiltölu-
lega slétt og svellalaust”, segir
Böðvar Finnbogason hjá Flug-
björgunarsveitinni í Varma-
hlíð.
Böðvar sagðist reikna með
að lagt yrði af stað í birtingu og
þegar búið væri að hreinsa
skarimar af Jökulsánni og gera
klárt til að flytja kistuna yfir
ána, yrði líklega komið hádegi.
Áætlað væri að mannskapur-
inn yrði kominn að ánni aftur
að lokinni greftmn um þrjú
leytið. Böðvar segir að sam-
kvæmt veðurspá sé útlit fyrir
stillt veður í dag. Veðurfræð-
ingar segja uppstyttu milli
lægða og frost. „Það er heppi-
legasta veðrið fyrir okkur”,
sagði Böðvar.
Fjölmenni var viðstatt útför
Helga Jónssonar, sem fór fram
frá Reykjakirkju í gær. Ekki
komst nema lítill hluti kirkju-
gesta fyrir innandyra, hinir sátu
í bílum sínum við kirkjuna og
fylgdust með útförinni sem var
endurvarpað á útvarpsbylgju.
„Er eittthvað títt? Það var loksins að hann gerði hlé á þessum
umhleypingum“. Kári Steinsson og Björn Ásgrímsson taka tal
saman fyrir framan kirkjuna á Sauðárkróki.
Þorvaldur Þorvaldsson, Búbbi í Vísi, eins og
hann var gjarnan kallaður, lét fara makinda-
lega um sig í stólnum hjá Hlyn rakara í
Pýramídanum, þegar ljósmyndari Feykir Ieit
þar inn á dögunum. Það er ekki að sjá að
aldurinn færist yfir gamla kaupmanninn á
horninu, eða hvað sýnist ykkur brottfluttir
Króksarar?
Feykir
Blaðið þitt!
Sími 453 5757
Undir Borginni
Sj álfsbj argarviðleitn i n er
þeim í blóð borin
Þá er árið 1997 gengið í garð og
vonandi verður það gott ár fyrir land
og þjóð. En ekkert ár er svo gott að
það krefjist ekki sinna fóma. Það
varð mörgum sár fregn að heyra að
Helgi bóndi á Merkigili hefði látist
af slyförum þann 12. janúar, hrapað
niður í gilið sem bær hans dregur
nafn af. Það er löngum svo að segir
fátt af einum.
Þá er eina sóknarbam Ábæjar-
kirkju fallið í valinn og skarð fyrir
skildi á þeim slóðum. Þó Helgi væri
ekki Skagfirðingur að ætt og upp-
runa var hann samt orðinn samgró-
inn héraðinu á margan hátt og stóð
með heiðri sína vakt sem útvörður
byggðar í Austurdal.
Það finna margir til þess að bæir
fari í eyði og gömul byggðasaga fái
sinn lokapunkt. Þeir sem veija lífi
sínu til að hamla gegn þeirri þróun
em af sumum taldir sérvitringar og
þverhausar, en aðrir meta staðfestu
þeirra og tryggð við sögu og sveit.
Sjálfsbjargarviðleimin er þeim í blóð
borin og það er meira en hægt er að
segja um suma.
Einhvem veginn standa menn
eins og Helgi á Merkigili manni fyr-
ir hugarsjónum sem miklu sannari
fulltrúar íslenskrar þjóðhátta en aðr-
ir. Slfldr menn leggja það ekki í vana
sinn að elta hvert fyrirbæri hé-
gómans sem berst til lands okkar frá
andlausum umheimi. Þeir una glað-
ir við sitt og þó lífsbaráttan sé hörð
og óvægin, einkum að vetrinum, þá
stælast þeir við erfiðleikana og
verða menn að meiri.
Það má nefna ýmsa kjamakvisti
af hinum þjóðlega stofni, sem berj-
ast við vetrarhörkur og stórhríðar í
afdalabyggðum og hörfa ekki um
fet. Þar í flokki er Jón í Gautsdal,
sem glímir við óblíð náttúmöflin í
herklæðum hins íslenska bónda,
með klakað skegg og sindur í aug-
um. Það er ekki að undra að rnyndir
af honum öðlist háan sess, því slík er
persónan.
Og ekki em konumar síðri þar
sem þær standa á verðinum. Enn
beijast hetjukonumar á Balaskarði
við vetrarríkið og grimmd náttúm-
aflanna. Þær vilja hlynna að búi sínu
og heimareit þó baráttan herðist í
mörgu og bæir fari í eyði í kring. En
það verður stundum mannfall í liði
þeirra sem standa ysta vörð mann-
legrar búsetu, en sannarlega sveipar
þar særndin klæðum um hvem fall-
inn.
Ég bið almáttugan Guð að blessa
og styrkja alla þá sem heyja harða
lífsbaráttu í ystu byggðum okkar
harðbýla lands. Og ég veit að þá
bæn biðja margir með mér. Hver
veit svo nema sá dagur renni, að aft-
ur verði land numið og sveitimar
fyllist á ný, að samtakamáttur vax-
andi mannfélags eflist á ný og þar
með öryggi hvers og eins, á þeim
slóðum sem nú em í hættu vegna
fólksflótta úr dölum og dreifbýli.
Sannarlega væri það gott mál, að
hið kunna aldamótaljóð Hannesar
Hafstein yrði sungið með endumýj-
uðum slagkrafti við upphaf komandi
aldar. Mannlíf sveitanna hefur nefni-
lega löngum verið það heilbrigðasta
sem völ er á.
Rúnar Kristjánsson.
Kemur út á miðvikudögum. Útgefandi Feykir hf.
Skrifstofa: Aðalgata 2, Sauðárkróki. Póstfang:
Pósthólf 4, 550 Sauðárkróki. Símar: 453 5757 og
453 6703. Myndsími 453 6703. Ritstjóri: Þórhallur
Ásmundsson. Fréttaritarar: Sesselja Traustadóttir og
Öm Þórarinsson. Blaðstjóm: Jón F. Hjartarson,
Guðbrandur Þ. Guðbrandsson, Sæmundur
Hermannsson, Sigurður Ágústsson og Stefán
Ámason. Áskriftarverð 160 krónur hvert tölublað
með vsk. Lausasöluverð: 180 krónur með vsk.
Setning og umbrot: Feykir. Prentun: Sást hf. Feykir
á aðild að Samtökum bæja- og héraðsfréttablaða.