Feykir - 20.01.1999, Blaðsíða 5
3/1999 FEYKIR 5
Blessuð sértu sveitin mín
Skotlandsbréf Gunnars Rögnvaldssonar frá Hrauni
Gleðilegt nýtt ár kæru
Skagfirðingar og aðrir lesend-
ur. Mér datt sisona í hug að
senda nokkrar línur norður yfir
höf og lönd héðan frá Skot-
landi þar sem hugur fjölsky Id-
unnar leitaði svo stíft heim á
leið í kringum jólahátíðina.
Reyndar þykir mér afar vænt
um að geta ávarpað sveitunga
mína í fullum rétti sem Skag-
firðinga eftir að hafa velkst í
vafa um nokkra hríð. Er ekki
fráleitt að ætla að þar hafi hinn
pólitíski armur Guðlaugsstaða-
ættarinnar og hans fjölhæfi
fylgissveinn verið nokkuð
framsýnir enda báðir gamal-
grónir sveitamenn og þekkja í
hörgul hvemig á bera sig að
við að halda saman íjárhóp. í
það minnsta hljóta þeir félagar
að hafa tryggt sér atkvæði
Geirmundar Valtýssonar sem
getur haldið áfram að semja
Skagfirsk sveiflulög án þess að
eiga það á hættu að gullmolar
hans verði kynntir á öldum
ljósvakans sem sveifla úr sam-
einuðu sveitarfélagi í Skaga-
firði utan Akrahrepps. Kann ég
þeim félögum Páli og Áma
æskuuvini mínum bestu þakk-
ir fyrir þennan Salomonsdóm
hvað svo sem býr að baki, enda
er sama hvaðan gott kemur.
Eða eins og Láms heitinn í
Neðra-Nesi hefði væntanlega
sagt. Þeim er nú ekki alls vam-
að framsóknarmönnunum.
Hér í landi hinna pils-
klæddu er afar margt sem
minnir á gamla góða Skaga-
ijörðinn, í það minnsta hjá því
fólki sem við höfum kynnst.
Glaðværð fyrir ofan meðallag
og kurteisi. Einkanlega kemur
kurteisin vel fram í umferðinni
en þar er tillitsemin svo mikil
að það liggur við að bflstjórar
taki ekki af stað á grænu ljósi
án þess að gefa hinum sem
bíða sjens fyrst.
Oneitanlega er þjóðfélagið
mun kerfisbundnara en á
heimaslóð og sú ágæta létt-
lyndisstefna sem einkennir
norðlenskt mannlíf gengur
ekki hér. Þannig er allt meira
og minna steypt í EB mót og
ekkert sker sig úr. Allir em eins
til fara og héldum við fyrst í
stað að borgarbúar væm allir á
leið til jarðarfarar, en seinna
upplýstist að svartur alklæðn-
aður ku vera vinnufatnaður
þjónustu- og skrifstofufólks.
Auðvitað rekst maður á
ýmsar persónur sem virka
kunnuglega. Á dögunum hætti
ég mér til dæmis á einn
heimaleikinn hjá knattspymu-
Jói í Stapa 75 ára
Föstudaginn 22. janúar
verður Jói í Stapa, Jóhann
Guðmundsson, 75 ára og í
tilefni dagsins birtist hér ljóð,
sem Jói flutti á hagyrðinga-
mótinu á Hveravöllum 1990.
Bragsnillingum bjóðast völd,
burt skal þvinga amann,
hejjum slyngir hér í kvöld
hagyrðingagaman.
Afram leiðum orku og dug.
Örvaður seiði vœnum
andinn greiðastfer áflug
frjáls í heiðablœnum.
Virkjum anda okkar rétt,
allan vanda þrengjum.
Milli stranda Ijúft og létt
Ijóðabandið tengjum.
Eflaust jysa margan má
manninn vísu að hræra.
Okkar lýsir leiðir þá
ijóðadísin kœra.
Vísan snjalla veitir lið,
víst það kailast gaman
ef stuðlafallastrengi við
stillum allir saman.
Jói í Stapa skrifar á blað,
sjálfsagt vísur, í afmælis-
fagnaði sínum í Árgarði fyrir
fimm árum. Ingi Heiðar
sendi Feyki ljóðið.
Létt með blakið, Ijúfog hrein,
lífgar slaka strengi,
fœðist stakan ein og ein
efmenn vaka lengi.
Við sktdum myrkri víkja úr önd,
við skulum kyrkja amann.
Við skulum styrkja vinabönd.
Við skulum yrkja saman.
JG.
félaginu Ayr United hér í borg
í þeirri von að verða betur
viðræðuhæfur um knattspymu
sem er megin umræðuefnið
hvar sem komi er. Þar er ég
ekki frá því að hafa séð
svipinn af Palla frá Smiðsgerði
og Sveini Guðmunds bregða
fyrir hvar eldurinn brann heit-
ast í áhorfendastúku stuðnings-
manna. Hins vegar hef ég ekki
enn komið auga á neina er
líkjast Sigga í Víðinesi eða Jóni
á Vatnsleysu og reikna því
með að þeir eigi sér enga líka.
Veðurfarið hefur lika borið
keim af samræmdri ládeyðu
allt þar til það braust úr fjötrum
sínum á annan jóladag með
svokölluðu fárviðri. Tæplega
hefði þótt ástæða til messufalls
heima á Fróni.
Talandi um þjónustu þá get
ég ekki sleppt því að minnast
aðeins á bankana og pósthúsin
hér í sveit en afgreiðsluhraði
og fyrirkomulag er allt með
þeim ósköpum að engu lagi er
lflct. Hlýtur allt það fólk sem
stendur þar í biðröðum dag
eftir dag, sem minna á opnum
nýrrar raftækjaverslunar á
Islandi, annaðhvort að vera í
svo leiðinlegri vinnu eða þá að
það þekkir ekkert annað. í það
minnsta sé ég alltaf betur og
betur hvað þau Eva, Jón Hallur
og stelpumar á pósthúsinu em
virkilega hæf í sínum störfum.
Töluverðar skemmdir urðu
þó í þessu svokallaða „fár-
viðri” og má sennilega kenna
um lélegum byggingum til
jafns við veðurhæðina. Við
hjónin vomm reyndar á leið
heim úr jólaboði þegar veðrið
var hvað verst um kvöldið og
þurftum að fara ýmsar króka-
leiðir vegna fallinna stórviða
sem höfðu brotnað og lokuðu
mörgum götum. Vöm þær
umhorfs eins og túnið heima á
Hrauni eftir landgangsbrim,
þaktar spýtnabraki og óhroða.
Er heim var komið blessuðum
við skógleysið á íslandi og
teljum ólíkt hættuminna að
brölta um í stórhríð en eiga það
á hættu að fá tvöhundmð ára
gamla eik í hausinn þó svo að
kæli aðeins á sunnan.
Bestu kveðjur heim og góða
skemmtun á komandi
þorrablótum og árshátíðum.
Gunnar Rögnvaldsson,
Ayr, Skotlandi.
DHL-deildin í körfubolta
íþróttahúsið Sauðárkróki nk. íimmtudagskvöld kl. 20
Tindastóll - ísafjörður
Nú koma Vestfirðingarnir í heimsókn.
Komið og sjáið spennandi leik
og hvetjið Tindastól til sigurs.
Áfram Tindastóll!
Sa%J?k*ÍZi0fHUH‘"
Matráðsmaður/yfirmaður í eldhúsi
Afleysing (70% starf) í 6 vikur frá 22. febrúar 1999.
Starfsmaður í eldhús
Afleysing 70-80% frá 26. jan. - 24. apríl 1999.
Allar nánari upplýsingar um störfin veita Ragnheiður eða Sigríður,
yfirmenn í eldhúsi í síma 455 4015.
Umsóknir sendist til Herdísar Klausen hjúkrunarforstjóra fyrir
25.janúar 1999.
Heilbrigðisstofnunin á Sauðárkróki
Reyklaus vinnustaður