Feykir - 17.03.1999, Síða 2
2 FEYKIR 10/1999
Rökkurkórinn í Skagafirði.
Rökkurkórinn 20 ára
11 björgunarsveitir
við leit um helgína
Ellefu björgunarsveitir og
þyrla landhelgisgæslunnar, alls
um 60 manns og ellefu leitar-
hundar, tóku þátt í leit að manni
er tíndist í ijallgarðinum milli
Skagaijarðar og Húnavatnssýslu
um helgina. Maðurinn kom fram
heilu og höldnu í Tungu í
Gönguskörðum um ijögur leytið
á sunnudag. Hafði hann þá verið
á göngu frá því snemma á laug-
ardagsmorgun. Maðurinn heitir
Gísli Ingvar Jónsson og er 54 ára
að aldri. Hann var þama á ferða-
lagi ásamt félögum sínum úr
Reykjavík. Var hann furðanlega
vel á sig kominn eftir volkið.
Gísli Ingvar fór ásamt þrem
félögum sínum frá bænum Hóli í
Sæmundarhlíð síðdegis á föstu-
dag. Ferðinni var heitið inn að
Vestrahólsvatni, í skála iyrir enda
vatnsins, sem einungis er um
fimm kílómetra inni á fjallinu ífá
fjallsbrún, en þar ætluðu fjór-
menningamir að hittast. Þrír fóru
gagnandi en Gísli Ingvar fór á
litlum snjóbíl. Eitthvað hafði taf-
ið för hans þar sem hann var ekki
mættur á fjallsbrúninni á tilsett-
um tíma og þremenningamir
héldu áfram inn að skálanum.
Af Gísla Ingvari var það að
segja að bilun kom upp í bílnum
og varði hann nokkmm tíma til
viðgerða en án árangurs. Jafn-
framt tók veður að versna. Tók
Það má segja að lagning
þjóðvegar 1 hafi verið með þeim
formerkjum að sem styst væri á
milli Reykjavíkur og Akureyrar,
annað skipti ekki máli. Þar með
vom þorp og bæir gerðir af-
skekktir gagnvart vegi 1 sem
þjónar jafnframt vömflutning-
um og fólksflutningum. Það er
raunar stórfurðulegt að leggja
veg 1 um stijálbýl svæði,
óbyggðir og háar heiðar, til að
losna við sem flesta þéttbýl-
iskjamana á Norðurlandi, aðeins
í þeim tilgangi að menn séu sem
fljótastir milli Akureyrar og
Reykjavíkur.
Öll arðsemi við veg 1 er í al-
gjöm lámarki vegna þess að það
em langar vegalengdir til þétt-
býlisstaðanna á svæðinu út frá
vegi 1. Einnig hefur þessi vega-
lagning hreinlega komið í veg
fyrir nokkra þróun í samskiptum
þéttbýliskjama á Norðurlandi
vegna of mikilla vegalengda.
Eg nefni hér nokkrar tölur
um vegalengdir til glöggvunar
hann það þá til bragðs að halda
kyrru fyrir í bílnum aðfaranótt
laugardags. Um hálfníuleytið á
laugadagsmorgun var honum
síðan farið að leiðast vistin í bíln-
um og lagði þá af stað gangandi,
en fór þá í þveröfuga átt upp í
veðrið, hvorki inn að skálanum
eða stystu leið ofan af fjallinu.
Hann gekk allan laugardaginn,
en félagar hans héldu hinsvegar
til byggða og þegar Gísli Ingvar
var ekki kominn fram um hádeg-
isbil var óskað eftir aðstoð björg-
unarsveita í Skagafirði, síðan
bættust við sveitir úr Húnavatns-
sýslu, frá Akureyri, Dalvík,
Reykjavík og Kópavogi.
Gísli Ingvar reyndi að halda á
sér hita aðfaranótt sunnudagsins
en hélt síðan áfram göngunni er
birti. Reikna má með að hann
hafi rambað inn í Hryggjardal og
gengið þar langa leið, líklega
hefur leiðin í heild verið hátt í
þijátíu kílómetra. Gera má ráð
fyrir að víða á þessari leið hafi
verið snjóflóðahætta, og því lík-
legt að bæði hann og björgunar-
sveitarmenn hafi sloppið vel frá
þessari útivist um helgina. - En
sem fyrr er hinn almenni borgari
alltaf jafn undrandi á því hvað
menn séu að flækjast upp um
fjöll, sérstaklega þegar veðurút-
litið er nú eins og það var hér fyr-
ir norðan fyrir helgina.
hugmynda minna. Skagaströnd
- Sauðárkrókur er 96 km um
þjóðveg I en um Þverárfjall 52.
Blönduós - Sauðárkrókur 74 km
en um Þverárfjall 47. Sauðár-
krókur -Dalvík er 144 um veg 1,
en í gegnum Heljarfjall 68-70
km. Blönduós -Dalvík er 169
km en um Þverárfjall og gegn-
um Heljarfjall u.þ.b. 115 km.
Vegur 1 átti að sveigja við
Blönduós í átt til Skagastrandar
og þaðan um Þverárfjall til
Sauðárkróks og þar með gert
Skagaströnd, Blönduós og
Sauðárkrók að einu atvinnu-
svæði. Síðan lægi vegur 1 aust-
ur ffá Sauðárkróki að Sleitustöð-
um og þaðan upp í Kolbeinsdal
og gegnum Heljarfjall niður
Svarfaðardal til Dalvíkur ca 68-
70 krn. Göngin í gegnum Helj-
arfjall yrðu á milli 9 og 10 km
löng. Þar með er Hofsós komið
í nánd við veg 1 og sama er um
Ólafsijörð.
Siglufjörður yrði miðað við
hugmyndir um göng til Ólafs-
Rökkurkórinn er blandaður
kór úr Skagafirði. Hann var
stofnaður um vetumætur 1978
af söngglöðu fólki. Mikill kraft-
ur er í starfsemi kórsins og góð-
ur félagsandi. Kórinn æfir í
Miðgarði tvisvar í viku, að öllu
jöfnu frá vetumætum og fram á
vor. Lagaval hjá kómum er fjöl-
breytt og skemmtilegt eftir inn-
lenda og erlenda höfunda. Kór-
félagar koma víðsvegar að úr
Skagafirði.
Frá áramótum hefur Rökk-
urkórinn haldið tónleika við
fjarðar um 30-35 km frá vegi 1.
Frá Dalvík lægi vegur 1 um Ár-
skógssand undir Eyjafjörð ca 7-
7,5 km göng að Höfða í Höfða-
hverfi og þaðan um Dalsmynni
til Húsavíkur. Grenivík, Litli-
Árskógur og Hrísey yrði nú nán-
ast við veg 1. Þá væri komin
upp ákjósanleg staða að Dalvík
yrði inn- og útllutningshöfn fyr-
ir Norðurland því vegalengdin
til Blönduóss er 115 km og
Húsavíkur um 110 km. Með
slíkri vegalagningu losna veg-
farendur við Vatnsskarð, Öxna-
dalsheiði og Víkurskarð á vetr-
um.
mjög góðar undirtektir áheyr-
enda og ágæt aðskókn verið á
eftirfarandi stöðum: Glerár-
kirkju Akureyri og Laugarborg
Eyjafirði í janúar og Höfðaborg
Hofsósi í mars. Þá var kórinn
þátttakandi í styrktartónleikum
á Blönduósi í mars.
Það sem er framundan hjá
Rökkurkórnum: Afmælistón-
leikar í Miðgarði 27. mars,
Húsavtkurkirkja 10. aprílkl. 16,
Breiðumýri Reykjadal 10. apríl
kl. 21, upptaka á geisladisk nr.
2 18. apni, vorferð um sumar-
Stytting vegalengda hefur
margfeldis áhrif á flutninga og
lega vegarins veitir meira öryggi
vegna nálægðar við þéttbýli.
Þessi vegalagning myndi einnig
stuðla að því að flugvöllurinn
við Sauðárkrók yrði góður kost-
ur til fragtflugs til og frá Norður-
landi. Hann hefur ótakmarkaða
lengingarmöguleika og aðflugið
er eitt það besta á íslandi.
Svo ég víki aftur að Dalvík-
urhöfn þá opnar hún möguleik-
ann á því að raunhæft sé að
stofna skipafélag um beinar sigl-
ingar til Evrópu, eða bjóða út
þessa flutningsleið. Hvor leiðin
sem farin væri myndi valda
byltingu á farmgjöldum til og
frá landinu miðað við það svart-
nætti sem dreifbýlið lifir við í
dag. Þá má reikna með að ef
þessar hugmyndir yrðu að vem-
leika þá fjölgaði störfum á Dal-
víkursvæðinu (Eyjafjarðarsvæð-
inu) um svona eina stóriðju.
Annar plús sem er ómetanlegur
em sterkari tengsl í mannlegum
samskiptum og í sameiginlegri
baráttu við að halda blómlegri
byggð á Norðurlandi.
Pálmi Sighvats.
mál; Reykholtskirkja 22. apríl
kl. 21, Víðistaðakirkja Hafnar-
firði 23. apríl kl. 21, Hlégarður
Mosfellsbæ 24. apríl kl. 14, á-
samt Reykjalundarkómum sem
er vinakór Rökkurkórsins í
Dalabúð 24. apríl á Jörfagleði
kl. 21, Sæluvikutónleikar í Bif-
röst 28. apríl kl. 21, Sæluviku-
tónleikar í Miðgarði kl. 16 og
20,30 1. maí. Stjómandi kórsins
er Sveinn Ámason og undir-
leikari Pál Szabo.
í tilefni af 20 ára afmæli
kórsins er stefnt að ferð til
Portúgals 20.-27. október nk.
og mun ferðaskrifstofan Úrval-
Útsýn sjá um ferðina. Þar verða
skipulagðar skoðunarferðir
með góðum leiðsögumanni og
kóramót er í boði Portúgala, þar
sem að Rökkurkórinn er þátt-
takandi ásamt heimakómm. Er
mikil eftirvænting og tilhlökk-
un út af ferðinni.
Stjóm kórsins skipa: Árdís
Maggý Bjömsdóttir formaður,
Drífa Ámadóttir ritari og Helgi
Þorleifsson gjaldkeri. Upplýs-
ingarsími kórsins er 855 4460.
Rökkurkórinn þakkar þeirn
fjölmörgu áheyrendum sem
stutt hafa kórinn með því að
sækja tónleika hans og sendir
einlægar vinarkveðjur.
Hross til
sölu!
Til sölu hross á ýmsum
tamningastigum, ýmsir
litir á hrossunum.
Upplýsingar í síma
453 7406 eftir klukkan
19 á kvöldin
Byggða- og vegamál
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra
Kemur út á miðvikudögum. Útgefandi Feykir hf.
Skrifstofa: Ægisstíg 10, Sauðárkróki. Póstfang: Box4,
550 Sauðárkróki. Símar: 453 5757 og 453 6703.
Myndsúni 453 6703. Farsími 854 6207. Netfang:
feykir @ krokur. is. Ritstjóri: Þórhallur Ásmundsson.
Fréttaritari: Öm Þórarinsson.
Blaðstjóm: Jón F. Hjartarson, Guðbrandur Þ. Guð-
brandsson, Sæmundur Hermannsson, Sigurður
Ágústsson og Stefán Ámason.
Áskriftarverð 170 krónur hvert tölublað með vsk.
Lausasöluverð: 200 krónur með vsk. Setning og
umbrot: Feykir. Prentun: Hvítt & Svait hf.
Feykir á aðild að Samtökum bæja- og héraðs-
fréttablaða.