Feykir - 17.03.1999, Page 4
4 FEYKIR 10/1999
Gerjun
Það hefur heldur betur verið
að iifna yflr Gamla bænum
að undanförnu og miklar
breytingar til batnaðar orðið í
athafnab'finu við Aðalgötuna.
Það voru miður skemmtileg-
ar fréttir af verslunum og fyr-
irtækjum við Aðalgötuna á
liðnu hausti en þá stóðu um
tíma að minnsta kosti fjögur
verslunarhúsnæði auð. Upp á
síðkastið hafa hins vegar
hlutir snúist til mun betri veg-
ar og nokkur ný fyrirtæki
hafið starfsemi ásamt því að
önnur hafa fært út kvíarnar.
Ekki verður annað séð en
áframhaldandi gerjun verði í
athafnalífinu í Gamla bæn-
um og t.d. má nefna eins og
reyndar hefur komið fram í
Feyki, að í vor er áætlað að
opna nýtt glæsilegt gistihús í
Hótel Tindastóli.
Búið er að opna sérstaka
skóbúð í Gamla bænum, en sér-
verslun með skófatnað hefur
ekki verið starfandi á Króknum
í langan tíma. Það var Sigríður
Káradóttir sem opnaði Skóbót-
ina ó.mars sl. Sigríður segir við-
tökur hafa verið mjög góðar og
kveðst hafa tröllatrú á því að
skóbúð í Gamla bænum eigi
framtíðina fyrir sér. „Það þýðir
ekkert annað en vera bjartsýnn á
Sauðárkróki þessa dagana”,
segir Sigríður. Skóbótin er til
húsnæðis í Aðalgötu 20 þar sem
Verslunin Aðalblóm var áður til
húsa.
Aðalblóm er hins vegar flutt
að Aðalgötu 8 þar sem Mat-
vörubúðin var áður til húsa. Er
þar í suðurhluta hússins og þetta
húsnæði hefur heldur betur tek-
ið breytingum. Jenný Ragnars-
dóttir eigandi Aðalblóms segist
hafa orðið vör við aukin við-
skipti frá því hún flutti starfsem-
ina 4. febrúar sl. „Við erum
núna komin í bjartara og þægi-
legra húsnæði og vinnuaðstaðan
er betri”, segir Jenný, en eigin-
maður hennar Hilmar Sverris-
son tónlistarmaður er að koma
fyrir stúdíói í kjallaranum. „Það
hentaði okkur ágætlega að kom-
í Gamla bænum
Guðrún Sölvadóttir í Sauðárkróksbakaríi og Ása Sverris-
dóttir afgreiðslustúlka sjá til þess að Lárus Dagur Pálsson fái
nóg með miðdegiskafHnu.
María Lóa Friðjónsdóttir í Galleríinu Lindarkoti.
ast héma í sameiginlegt hús-
næði”, segir Jenný, en sem fyrr
leggur Aðalblóm áherslu á
vandaða blóma- og gjafavöm.
í norðurendanum á Aðalgötu
8 hefur María Lóa Friðjónsdótt-
ir komið sér fyrir með gallerí
auk þess sem útibú Samvinnu-
ferða - Landsýnar er þar í einu
hominu. Það er Gallerí Lindar-
kot sem María Lóa hefur sett á
stofn. Þar er til sölu og sýnis
handverk ýmiss konar; málverk,
myndir, listmunir og ýmislegt
fleira. María segist leggja
áherslu á að fá skagfirskt hand-
verk þama inn, en einnig em
munir úr nágrannabyggðum og
víðar að. María Lóa segist hafa
mikinn áhuga á því að eiga góða
samvinnu við listamenn og
handverksfólk. ,JÉg vonast til að
þetta geti orðið einn liðurinn í
því að ná fleiri ferðamönnum
inn í bæinn”, segir María Lóa.
I næsta húsi norðan við, það
sem venjulega hefur verið kall-
að hjá Torfa, eða þar sem Versl-
unin Vökull var lengi til húsa, er
búið að koma á fót myndbanda-
leigu. Myndheimar heitir þessi
Jenný Ragnarsdóttir í Aðalblómi ásamt Ragndísi dóttur sinni.
Sigríður Káradóttir í skóversluninni Skóbótinni.
vídeóleiga, sem væntanlega er
sú stærsta í bænum um þessar
mundir, en fyrir vom tvær leig-
ur. Eigendur Myndheima em
þær Ragnheiður Jónsdóttir og
Ema Rós Hafsteinsdóttir. Ragn-
heiður sagði í samtali við Feyki
að frá því að leigan opnaði 20.
febrúar sl. hefði verið mikið að
gera, enda væri þama mesta úr-
val myndbanda í bænum.
Sauðárkróksbakarí hefur
verið að færa út kvíamar að
undanfömu. Þau bakarahjón
Ottar og Guðrún em búin að
stækka veitingaaðstöðuna, hafa
lagt undir hana plássið að sunn-
anverðu þar sem Isbarinn gamli
góði var einu sinni. Bakaríið
býður nú upp á aukið úrval
brauðrétta ýmiss konar, s.s. pítu-
brauð og smárétti, og súpur. Þá
hefúr Sauðárkróksbakarí komið
úl móts við viðskiptavini eftir að
matvömverslun lagðist af í
Gamla bænum, og í kæliborði
er hægt að ganga að mjólkur-
vömm og ýmsum dagvömm. Er
þetta til mikils hægðarauka t.d.
íyrir gamla fólkið í útbænum.
Þá em ótalin sú breyúng sem
orðið hefúr í veitingahúsageir-
anum í vetur. Olafur Jónsson,
Óli vert, endurbyggði syðri
hluta Pollans á linu hausti og
opnaði skömmu fyrir áramót
iýmri og skemmtilegri veitings-
tofu. Reyndar kallar Óli húsið
nú Ólafshús, en það mun vera
upprunalegtnafnáAðalgötu 15.
Ragnheiður Jónsdóttir annar tveggja eigenda Myndheima.
Karlakorinn
Heimir Skagafirði
heldur tónleika í Grafarvogskirkju í Reykjavík
föstudaginn 19. mars kl. 20,30.
Ytri - Njarðvíkurkirkju laugardaginn 20. mars kl. 14,00
Söngstjóri: Stefán R. Gíslason
Undirleikarar:Thomas Higgerson og Jón St. Gíslason.
Einsöngvarar: Einar Halldórsson og Álftagerðisbræðurnir
Óskar Pétursson, Pétur Pétursson og Sigfús Pétursson.
Fjölbreytt skemmtileg söngskrá.